Strandgata 49, Vestdalseyrarhúsið, Akureyri
Í texta með þessari mynd segir: „Teikning af Vestdalseyri eftir óþekktan, sýnir hús Gránufélagsins sem öll brunnu 1894 en sum þeirra voru að líkindum frá verslun Örum & Wulff á árunum 1851-1865, þangað flutt úr Framkaupstað á Eskifirði.“ Heimild: Hjörleifur Guttormsson (2005). Austfirðir frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar. Árbók Ferðafélag Íslands 2005, bls. 224. Reykjavík: Ferðafélag Íslands.
Gránufélagshúsin um aldamótin 1900. Vestdalseyrarhúsið er næst okkur á myndinni. Heimild: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 19. [Akureyri:] Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar.
Saga:
Árið 1802 ákvað Kjartan Ísfjörð að hefja verslun á Eskifirði. Hann var fæddur árið 1774 í Eskifirði, en hafði dvalist í Kaupmannahöfn frá unglingsárum og m.a. stundað þar verslun með silki. Hann fékk lóð innan við Grjótá (á svæði þar sem nú stendur húsið nr. 33 A við Strandgötu), þar sem kallað er í Framkaupstað. Árið 1805 hafði hann reist þar íbúðarhús, sem jafnframt var pakkhús, og vatnsmyllu. Árið eftir lét hann reisa annað timburhús. Vatnsmyllan eyðilagðist í stórhlaupi í ánni nokkrum árum síðar.
Verslunarrekstur Kjartans gekk erfiðlega í fyrstu, en betur á styrjaldarárunum fyrri og um skeið rak hann mikið brugghús og lét sig fátt skorta. Árið 1817 lýsti hann sig þó gjaldþrota, en verslunin var rekin af skiptanefnd í Höfn undir stjórn dansks faktors. Árið 1822 keypti Charlotta Amalía, systir Kjartans, þrotabúið og gaf það börnum hans. Kjartan tók þá aftur við rekstrinum og stýrði hann versluninni til dauðadags 24. júlí 1845.
Fljótlega eftir að Kjartan tók aftur við verslunarrekstrinum hóf hann húsabætur í Framkaupstað.1Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986). Sögurit Eskfirðinga V. bindi, bls. 8-14. Einar Bragi Sigurðsson tók saman. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Kristín Ágústsdóttir (2001, maí). Byggingarár húsa á Eskifirði, bls. 7. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands. Sótt 4. september 2024 af https://www.vedur.is/media/vedurstofan/utgafa/greinargerdir/2001/eskifj_byggingarar.pdf.
Á árunum 1823-24 reisti hann stórt pakkhús, 1826-27 nýja mörbúð og sumarið 1827 vatnsmyllu við Grjótá. Á árunum 1831-34 lét hann smíða enn stærra pakkhús, lifrarbræðslu (með tveim bræðslupottum), fjós, hlöðu og vindmyllu. Árið 1836 bætti hann við myndarlegu íbúðarhúsi.2Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986), bls. 11.
Ekki er ósennilegt að Þorsteinn Daníelsson smiður frá Skipalóni í Eyjafirði hafi komið nálægt smíði einhverra af þessum húsum, því hann segir frá því í bréfi að snemmsumars árið 1833 hafi hann dvalist hartnær níu vikur á Eskifirði við húsasmíði.[3]3Kristmundur Bjarnason (1961). Þorsteinn á Skipalóni. Þættir úr norðlenzkri sögu, bls. 252. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Auk þess voru í Framkaupstað fjárrétt, fiskreitir, matjurtagarður, bryggja og skipakví. Við úttekt eftir lát Kjartans 1845 er getið tveggja nýrra stórhýsa, íbúðarhúss (þar sem jafnframt var krambúð) og kornpakkhúss, sem gætu þá hafa verið ársgömul eða eldri. Þá voru alls 16 hús, stór og smá, virt.4Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971). Sögurit Eskfirðinga I. bindi, bls. 81. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986), bls. 14.
Skömmu eftir fráfall Kjartans fluttist allt hans fólk frá Eskifirði, en fóstursonur hans Peter Wilhelm Brandt bóndi í Eskifjarðarseli varð eftir. … Árið 1846 var Framkaupstaðareignin seld Thaae kaupmanni í Höfn. Hann rak þar verslun í nokkur ár undir stjórn Hendrichs Henkel Svendsen. Hinn 30. júlí 1851 keypti verslunarhúsið Ørum & Wulff eignina, lét taka húsin ofan og flytja þau að Vestdalseyri við Seyðisfjörð. Eftir það stóð Framkaupstaður í eyði rúm tuttugu ár.5Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986), bls. 14.
Síðar eignaðist Gránufélagið húsin á Vestdalseyri.6Hjörleifur Guttormsson (2005). Austfirðir frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar. Árbók Ferðafélag Íslands 2005, bls. 224. Reykjavík: Ferðafélag Íslands. Gránufélagið var íslenskt hlutafélag um verslun og siglingar, stofnað í janúar 1869, og varð á örskömmum tíma mikið stórveldi í íslenskri verslun og var um skeið langstærsta fyrirtæki landsins á því sviði. Árið 1871 keypti félagið næstum því alla Oddeyri við Eyjafjörð og fór að huga að því að koma sér upp verslunaraðstöðu. Vorið 1873 festi Tryggvi Gunnarsson, framkvæmdastjóri félagsins, kaup á 6 verslunarhúsum á Vestdalseyri við Seyðisfjörð. Eitt þeirra var flutt á skipinu Sæbjörgu til Akureyrar þá um sumarið og sett á grunn, sem tilbúinn var á Oddeyri.7Finnur Birgisson (1992). Gránufélagshúsin. Strandgata 49, Akureyri. Úttektarskýrsla unnin fyrir Húsafriðunarsjóð og Vélsmiðjuna Odda, bls. 3-5. Verknr. 2124 í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
Árið 1894 brunnu öll verslunarhús Gránufélagsins á Vestdalseyri. Þá var gripið til þess ráðs að flytja Liverpoolhúsið út á Vestdalseyri, því hún lá betur við verslun en Fjarðaraldan og þar hefur væntanlega verið betri höfn.8Hjörleifur Guttormsson (2005), bls. 225.
Vestdalseyri er við norðanverðan Seyðisfjörð, skammt utan við kaupstaðinn. Þarna hófst verslun rétt fyrir 1850 en á árunum 1874 til 1913 myndaðist töluverð byggð í kringum Gránufélagsverslunina. Þar var kirkja, barnaskóli, verslun og útgerð. Auk þess var þar rekin prentsmiðja um tíma og veitingahús og þar bjuggu handverksmenn af ýmsu tagi, trésmiðir, gullsmiðir, járnsmiðir, skósmiðir, úrsmiðir ásamt myndasmið. Vestdalseyri varð hluti af Seyðisfjarðarkaupstað árið 1895.9Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 16-17. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður; Kristján Róbertsson (1995). Byggðarsaga Seyðisfjarðar. Fyrra bindi, bls. 112. Seyðisfirði: Seyðisfjarðarbær.
Mannfjölgunin á Vestdalseyri virðist hafa verið mest á árunum 1880-1900. Þá er íbúatalan á milli 2-3 hundruð manns, þó að sveiflur verði oft milli ára. Á fyrstu áratugum [20. aldar] fer íbúunum eitthvað fækkandi. Um 1920 eru þó þar enn um 20-30 hús sem búið er í.
Á hernámsárunum 1940-1945 hreiðraði setuliðið um sig á Vestdalseyri, og fór þá að verða þröngt fyrir dyrum hjá mörgum. Mun það hafa flýtt fyrir hnignun byggðarinnar sem var þó þegar orðin talsverð. Örlög þessa blómlega þorps virtust vera ráðin. Einstaka fjölskyldur þrauka þó áfram um sinn, en á 7. áratugnum hurfu þeir síðustu á braut. Síðan hefur Vestdalseyri verið eyðibyggð.10Kristján Róbertsson (1995), bls. 116.
Víkur nú sögunni til Akureyrar, að Strandgötu 49, þangað sem eitt húsanna af Vestdalseyri var flutt árið 1873. Húsin á þeirri lóð eru einu nafni nefnd Gránufélagshúsin og eru í raun a.m.k. þrjú hús, en talið er að það vestasta sé frá Vestdalseyri, þó ekki sé vitað hvaða hús það var þar sem lagði í þetta ferðalag.
Fullvíst getur talist að húsið, sem flutt var frá Vestdalseyri … sé vestasti hluti núverandi húsasamstæðu við Strandgötu. Stærðin … [16,32 x 6,90 m] kemur svo vel heim og saman við stærð þessa parts (16,40 x 7,25 m) að annað kemur varla til greina. Á ljósmynd frá 1883 sést þessi partur nokkuð greinilega í sömu mynd og hann hefur í dag.11Finnur Birgisson (1992), bls. 7-8.
Á næstu árum var byggt við vestasta og elsta húsið. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær það var gert, en ljóst er að það var búið árið 1883 og lögun Gránufélagshúsanna hefur haldist í aðalatriðum frá árinu 1885.12Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 47. [Akureyri:] Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar. Jón Christinn Stefhánsson forsmiður (1829-1910) er talinn hafa haft veg og vanda að byggingu mið- og austurhluta húsanna.13Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð I. Ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940, bls. 169. Önnur prentun, fyrst gefin út 1998. [Reykjavík:] Húsafriðunarnefnd ríkisins.
Komið hefur í ljós að vestasta húsið var með spónaþaki.
Það er reyndar enn á húsinu en nú hulið þakefnum sem sett voru yfir það. Spónaþakið sést þó að innan, úr veitingasalnum. Ysta klæðning þaksins var úr þunnum hreisturslaga tréflögum, sem lagðar voru á sama hátt og steinskífurnar, sem algengari eru nú á dögum. Spónaþök voru algeng á Íslandi á seinni hluta 19. aldar en nú virðist sem Gránufélagshúsið sé eina hús hérlendis sem enn er með slíkt þakefni þó ekki sé það sýnilegt að utan.14Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995), bls. 47.

Gránufélagshúsin á Akureyri, Strandgata 49, árið 2018. Ljósm.: Arnór Bliki Hallmundsson. Sótt 4. september 2024 af https://www.akureyri.net/is/moya/news/hus-dagsins-strandgata-49.
Hin tvö húsin sem Gránufélagshúsin standa saman af eru Skjaldarvíkurstofa og Mikla bygging.
Um sögu Gránufélagshúsanna á seinni tímum er vísað í ítarlega grein Arnórs Blika Hallmundssonar.
Á þessum vef er fjallað um fleiri hús sem flutt voru frá Vestdalseyri, þ.e. Oddagötu 2a, Liverpool, Austurveg 13b og Austurveg 17b öll á Seyðisfirði.
Leitarorð: Eskifjörður – Seyðisfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. september, 2024
Heimildaskrá
- 1Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986). Sögurit Eskfirðinga V. bindi, bls. 8-14. Einar Bragi Sigurðsson tók saman. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Kristín Ágústsdóttir (2001, maí). Byggingarár húsa á Eskifirði, bls. 7. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands. Sótt 4. september 2024 af https://www.vedur.is/media/vedurstofan/utgafa/greinargerdir/2001/eskifj_byggingarar.pdf. ↩︎
- 2Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986), bls. 11. ↩︎
- 3Kristmundur Bjarnason (1961). Þorsteinn á Skipalóni. Þættir úr norðlenzkri sögu, bls. 252. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs. ↩︎
- 4Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971). Sögurit Eskfirðinga I. bindi, bls. 81. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986), bls. 14. ↩︎
- 5Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986), bls. 14. ↩︎
- 6Hjörleifur Guttormsson (2005). Austfirðir frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar. Árbók Ferðafélag Íslands 2005, bls. 224. Reykjavík: Ferðafélag Íslands. ↩︎
- 7Finnur Birgisson (1992). Gránufélagshúsin. Strandgata 49, Akureyri. Úttektarskýrsla unnin fyrir Húsafriðunarsjóð og Vélsmiðjuna Odda, bls. 3-5. Verknr. 2124 í gagnasafni Húsafriðunarnefndar. ↩︎
- 8Hjörleifur Guttormsson (2005), bls. 225. ↩︎
- 9Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 16-17. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður; Kristján Róbertsson (1995). Byggðarsaga Seyðisfjarðar. Fyrra bindi, bls. 112. Seyðisfirði: Seyðisfjarðarbær. ↩︎
- 10Kristján Róbertsson (1995), bls. 116. ↩︎
- 11Finnur Birgisson (1992), bls. 7-8. ↩︎
- 12Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 47. [Akureyri:] Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar. ↩︎
- 13Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð I. Ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940, bls. 169. Önnur prentun, fyrst gefin út 1998. [Reykjavík:] Húsafriðunarnefnd ríkisins. ↩︎
- 14Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995), bls. 47. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 5. september, 2024

