Gránufélagshúsin á Akureyri, Strandgata 49. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. Lps-4924. Sótt 4. september 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=706230.
Gránufélagshúsin á Akureyri, Strandgata 49. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. Lps-4924. Sótt 4. september 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=706230.

Strandgata 49, Akureyri

Heiti: Skjaldarvíkurstofa – Skjaldarvíkurhúsið – Vestdalseyrarhúsið – Mikla bygging - Grána – Vélsmiðjan Oddi - Gránufélagshúsin
Byggingarár: 1873
Upphafleg notkun: Íbúðarhús, pakkhús, verslunarhús o.fl.
Fyrsti eigandi: Gránufélagið
Aðrir eigendur:
1912: Hinar sameinuðu íslensku verslanir
1926: Ragnar Ólafsson
Upphafleg staðsetning: Skjaldarvík við Eyjafjörð, Grafarós á Höfðaströnd ?, Vatnsdalseyri við Seyðisfjörð (Framkaupstaður, Eskifirði)
Flutt: 1873, 1876 og 1878 að Strandgötu 49, Akureyri
Strandgata 49 2

Gránufélagshúsin á Akureyri, Strandgata 49. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. STÆ2-185. Sótt 4. september 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1971072.

Strandgata 49 1

Saga:

Húsið sem nú er skráð númer 49 við Strandgötu á Akureyri, er í raun þrjú sambyggð hús sem gengur undir nafninu Gránufélagshúsin. Færð hafa verið rök fyrir því að öll húsin þrjú séu aðflutt frá þremur stöðum, byggð á mismunandi tímum og ekki flutt á Oddeyrina á Akureyri á sama tíma.

Til að auðvelda umfjöllun um húsið verður hér fjallað um það í þremur greinum.

Til að fræðast um Gránufélagshúsin á síðari tímum bendi á greinargóðan pistil Arnórs Blika Hallmundssonar um Strandgötu 49 með upplýsandi teikningum hans. Pistil hans má finna hér.

 

Skipta má Strandgötu 49 á Akureyri í þessi hús:

Skjaldarvíkurstofa er austasti hlutinn í húsaröðinni, byggð 1835 í Skjaldarvík við Eyjafjörð. Flutt á Oddeyrina árið 1876.

Mikla bygging er miðhlutinn af Strandgötu 49. Sú tilgáta hefur verið lögð fram að rekja megi uppruna hússins til verslunarhúss sem byggt var í Grafarósi á Höfðaströnd árið 1835 og flutt til Akureyrar árið 1878.

Vestdalseyrarhúsið er vestasta húsið í röðinni. Uppruna þess má rekja til Vestdalseyrar í Seyðisfirði eða jafnvel Framkaupstaðar í Eskifirði, því ekki er vitað með hvaða hús á Vestdalseyri var flutt til Akureyrar árið 1873.

 

Um sögu Gránufélagshúsanna á seinni tímum er vísað í fyrrnefnda grein Arnórs Blika.

 

Leitarorð: Eyjafjörður – Skagafjörður – Seyðisfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. september, 2024

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. september, 2024