Strandgata 49, Akureyri
Gránufélagshúsin á Akureyri, Strandgata 49. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. STÆ2-185. Sótt 4. september 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1971072.
Gránufélagshúsin á Akureyri, Strandgata 49, árið 2018. Ljósm.: Arnór Bliki Hallmundsson. Sótt 4. september 2024 af https://www.akureyri.net/is/moya/news/hus-dagsins-strandgata-49.
Saga:
Húsið sem nú er skráð númer 49 við Strandgötu á Akureyri, er í raun þrjú sambyggð hús sem gengur undir nafninu Gránufélagshúsin. Færð hafa verið rök fyrir því að öll húsin þrjú séu aðflutt frá þremur stöðum, byggð á mismunandi tímum og ekki flutt á Oddeyrina á Akureyri á sama tíma.
Til að auðvelda umfjöllun um húsið verður hér fjallað um það í þremur greinum.
Til að fræðast um Gránufélagshúsin á síðari tímum bendi á greinargóðan pistil Arnórs Blika Hallmundssonar um Strandgötu 49 með upplýsandi teikningum hans. Pistil hans má finna hér.
Skipta má Strandgötu 49 á Akureyri í þessi hús:
Skjaldarvíkurstofa er austasti hlutinn í húsaröðinni, byggð 1835 í Skjaldarvík við Eyjafjörð. Flutt á Oddeyrina árið 1876.
Mikla bygging er miðhlutinn af Strandgötu 49. Sú tilgáta hefur verið lögð fram að rekja megi uppruna hússins til verslunarhúss sem byggt var í Grafarósi á Höfðaströnd árið 1835 og flutt til Akureyrar árið 1878.
Vestdalseyrarhúsið er vestasta húsið í röðinni. Uppruna þess má rekja til Vestdalseyrar í Seyðisfirði eða jafnvel Framkaupstaðar í Eskifirði, því ekki er vitað með hvaða hús á Vestdalseyri var flutt til Akureyrar árið 1873.
Um sögu Gránufélagshúsanna á seinni tímum er vísað í fyrrnefnda grein Arnórs Blika.
Leitarorð: Eyjafjörður – Skagafjörður – Seyðisfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. september, 2024
Deila færslu
Síðast uppfært 5. september, 2024

