Húsið til hægri á myndinni var flutt úr Grafarósi eða a.m.k. viðir þess. Heimild: Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014). Byggðasaga Skagafjarðar. VII. bindi. Hofshreppur, bls. 443. Ritstjóri og aðalhöfundur: Hjalti Pálsson frá Hofi. Sauðárkróki. Sögufélag Skagfirðinga.
Húsið til hægri á myndinni var flutt úr Grafarósi eða a.m.k. viðir þess. Heimild: Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014). Byggðasaga Skagafjarðar. VII. bindi. Hofshreppur, bls. 443. Ritstjóri og aðalhöfundur: Hjalti Pálsson frá Hofi. Sauðárkróki. Sögufélag Skagfirðinga.

Vatn, Höfðaströnd, Skagafirði

Heiti: Vatn
Byggingarár: <1914
Rifið: ≈ 1955
Upphafleg notkun: ?
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
≈ 1915: Sigurður Sigurðsson / Jón Kristbergur Árnason og Amalía Sigurðardóttir
1919: Jón Kristbergur Árnason og Amalía Sigurðardóttir
1919: Félagið Höfðavatn
1923: Jón Kristbergur Árnason og Amalía Sigurðardóttir
1926: Amalía Sigurðardóttir
1933: Amalía Sigurðardóttir og Gunnar Valdimarsson
1941: Ólafur og Jón Þorsteinssynir
Upphafleg staðsetning: Grafarós, Höfðaströnd, Skagafirði
Flutt: 1915-1919 að Vatni á Höfðaströnd, Skagafirði
Hvernig flutt: Tekið í sundur

Saga:

Á litlum höfða við ósa Grafarár á Höfðaströnd var verslunarstaður frá árinu 1835 til 1915. Fyrsta húsið sem þar var reist var hús sem C. M. Nisson kaupmaður átti í Hofsósi og flutti í Grafarós 1835 vegna yfirgangs kaupmannsins í Hofósi. Síðan bættust fleiri kaupmenn við og fleiri hús og á tímabili var þar nokkur fjöldi timburhúsa, auk torfhúsa.1Páll Sigurðsson (2016). Skagafjörður austan Vatna. Frá Hjaltadal að Úlfsdölum. Árbók Ferðafélags Íslands 2016, bls. 100-101. Reykjavík: Ferðafélag Íslands.

Þegar verslunin í Grafarósi lagðist af árið 1915 stóðu þar líklega fimm timburhús.2Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson (2021). Byggðasaga Skagafjarðar. 10, Hofsós, Grafarós, Haganesvík, Drangey og Málmey, bls. 192. Sauðárkróki: Sögufélag Skagfirðinga.

Eitt þessara húsa, eða a.m.k. viðir þess, var flutt að Vatni á Höfðaströnd einhvern tímann á árabilinu 1915-1919. Þá var Sigurður Sigurðsson (1851-1914) bóndi á Víðivöllum í Blönduhlíð eigandi jarðarinnar, en ábúendur voru Amalía (1890-1967) dóttir Sigurðar og Jón Kristbergur Árnason (1885-1926) eiginmaður hennar og hafa þau væntanlega staðið fyrir byggingu hússins á Vatni því bæjarhús voru orðin mjög léleg. Þegar húsakostur var virtur árið 1919 kemur fram að búið sé að byggja nýtt íbúðarhús frá því að virðing var gerð fimm árum áður.3Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014). Byggðasaga Skagafjarðar. VII. bindi. Hofshreppur, bls. 440-448. Ritstjóri og aðalhöfundur: Hjalti Pálsson frá Hofi. Sauðárkróki. Sögufélag Skagfirðinga. Hið „nýja“ hús er „… talsvert lengra en gamla framhúsið „byggt úr gömlum við (rifið á öðrum stað og flutt), sem að sjálfsögðu er farinn að feyskjast til muna.“4Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014), bls. 443.

Nokkur eigendaskipti voru á jörðinni næstu árin, en árið 1941 eignuðust bræðurnir Ólafur (1923-1981) og Jón Þorsteinssynir (1921-1988) hana. Sumarið 1945 steypti Jón viðbyggingu norðan við gamla húsið, sem hann bjó í með fjölskyldu sinni þangað til hann fluttist frá Vatni vorið 1954. Gamla húsið var svo rifið á árunum um eða eftir 1955, en steinsteypti hlutinn stendur enn og er nýttur sem sumarbústaður, en þegar nýtt bæjarhús var byggt á árunum 1950-1951 var það haft eilítið norðvestan við gamla bæinn.5Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014), bls. 440-448.

Minnt er á að ekki eru til ítarlegar upplýsingar um afdrif húsanna í Grafarósi og þær heimildir sem finnast eru oft misvísandi.

Lesa má um fleiri hús á þessum vef sem tengjast Grafarósi. Má t.d. nefna Tindastól á Sauðárkróki, Hvassafell í Hofsósi, hús á Þrastarstöðum og Hólakoti á Höfðaströnd.

 

Leitarorð: Skagafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. ágúst, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Páll Sigurðsson (2016). Skagafjörður austan Vatna. Frá Hjaltadal að Úlfsdölum. Árbók Ferðafélags Íslands 2016, bls. 100-101. Reykjavík: Ferðafélag Íslands.
  • 2
    Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson (2021). Byggðasaga Skagafjarðar. 10, Hofsós, Grafarós, Haganesvík, Drangey og Málmey, bls. 192. Sauðárkróki: Sögufélag Skagfirðinga.
  • 3
    Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014). Byggðasaga Skagafjarðar. VII. bindi. Hofshreppur, bls. 440-448. Ritstjóri og aðalhöfundur: Hjalti Pálsson frá Hofi. Sauðárkróki. Sögufélag Skagfirðinga.
  • 4
    Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014), bls. 443.
  • 5
    Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014), bls. 440-448.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. ágúst, 2024