Hvassafell Hofsósi í september 2013. Sótt 28. ágúst 2024 af https://www.google.com/maps.
Hvassafell Hofsósi í september 2013. Sótt 28. ágúst 2024 af https://www.google.com/maps.

Hvassafell, Hofsósi

Heiti: Hvassafell
Byggingarár: ≈1898-1915 ?
Upphafleg notkun: Íbúðarhús ?
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
? : Jónas Guðmundsson
? : Björg Guðmundsdóttir
Upphafleg staðsetning: Grafarós, Höfðaströnd, Skagafirði
Flutt: > 1915 í Hofsós, Skagafirði

Saga:

Á litlum höfða við ósa Grafarár á Höfðaströnd var verslunarstaður frá árinu 1835 til 1915. Fyrsta húsið sem þar var reist var hús sem C. M. Nisson kaupmaður átti í Hofsósi og flutti í Grafarós 1835 vegna yfirgangs kaupmannsins í Hofósi. Síðan bættust fleiri kaupmenn við og fleiri hús og á tímabili var þar nokkur fjöldi timburhúsa, auk torfhúsa. M.a. stóð þar um tíma myndarlegt, norskt einingahús, sem flutt var til Sauðárkróks árið 1884 og stendur þar enn og hýsir Hótel Tindastól.1Páll Sigurðsson (2016). Skagafjörður austan Vatna. Frá Hjaltadal að Úlfsdölum. Árbók Ferðafélags Íslands 2016, bls. 100-101. Reykjavík: Ferðafélag Íslands.

Þegar verslunin í Grafarósi lagðist af árið 1915 voru „… hús öll rifin, viðurinn fluttur til Hofóss, svo og vörubirgðir. Húsin voru endurreist þar, og þangað fluttist verzlunarstjórinn, Erlendur Pálsson, og starfslið hans.“2Kristmundur Bjarnason (1998). Skagfirzkur annáll 1847-1947. Seinna bindi, bls. 371. Reykjavík: Mál og mynd í samvinnu við Sögufélag Skagfirðinga.

Í fornleifaskráningu frá árinu 2001 er sagt frá því að Hvassafell hafi verið eitt þeirra húsa sem flutt var til Hofsóss þegar verslun í Grafarósi lagðist af. Það mun hafa verið Jónas Guðmundsson (1885-1960) smiður, sem flutti húsið og endurbyggði það þar sem það stendur enn, fremst á brekkubrúninni við Suðurbraut sunnan við Plássið. Eftir að hann flutti til Siglufjarðar bjó Björg (1891-1981) systir hans lengi í húsinu.3Katrín Gunnarsdóttir (2001, febrúar). Grafarós og Hofsós. Fornleifaskráning, ekkert bls.tal. Byggðasafn Skagfirðinga – Rannsóknaskýrslur nr. 5.

Húsið var í fyrstu með háu risi og kvisti, en síðar var byggt ofan á húsið og sett á það valmaþak.4Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson (2021). Byggðasaga Skagafjarðar. 10, Hofsós, Grafarós, Haganesvík, Drangey og Málmey, bls. 193. Sauðárkróki: Sögufélag Skagfirðinga.

Síðan segir í fyrrnefndri fornleifaskráningu:

Í gegnum árin hafa orðið miklar breytingar á Hvassafelli, og síðast 1994. Allar innréttingar og þiljur hafa verið teknar úr húsinu, og það hefur verið forskalað. Að sögn Valgeirs Þorvaldssonar sem var eigandi hússins þegar því var breytt árið 1994, eru nánast engir upphaflegir viðir eftir í húsinu.5Katrín Gunnarsdóttir (2001, febrúar).

 

Leitarorð: Skagafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. september, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Páll Sigurðsson (2016). Skagafjörður austan Vatna. Frá Hjaltadal að Úlfsdölum. Árbók Ferðafélags Íslands 2016, bls. 100-101. Reykjavík: Ferðafélag Íslands.
  • 2
    Kristmundur Bjarnason (1998). Skagfirzkur annáll 1847-1947. Seinna bindi, bls. 371. Reykjavík: Mál og mynd í samvinnu við Sögufélag Skagfirðinga.
  • 3
  • 4
    Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson (2021). Byggðasaga Skagafjarðar. 10, Hofsós, Grafarós, Haganesvík, Drangey og Málmey, bls. 193. Sauðárkróki: Sögufélag Skagfirðinga.
  • 5
    Katrín Gunnarsdóttir (2001, febrúar).

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. september, 2024