Stafnes fyrir 2012. Ljósm. úr gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Stafnes fyrir 2012. Ljósm. úr gagnasafni Minjastofnunar Íslands.

Stafnes, Raufarhöfn

Heiti: Fíahúsið - Stafnes
Byggingarár: 1925
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Friðrik Guðmundsson og Guðrún Hansdóttir
Aðrir eigendur:
1989: Afkomendur Friðriks og Guðrúnar
2009: Norðurþing
2012: Helga Lára Þorsteinsdóttir og Pétur Örn Friðriksson
Upphafleg staðsetning: Við höfnina á Raufarhöfn á svokallaðri Mjölhúslóð
Flutt: 1940 að Víkurbraut, um 60 m norðan við Hof, sem er númer 32 við Víkurbraut, og sunnan við Sæblik
Hvernig flutt: Í heilu lagi á keflum

Saga:

Árið 1925 byggðu hjónin Friðrik Guðmundsson (1887-1957) og Guðrún Hansdóttir (1903-1989) sér hús við höfnina á Raufarhöfn (á svokallaðri Mjölhúslóð eða SR-reit). Þó húsið hafi heitið Stafnes var það oftast kallað Fíahús á meðan Friðrik bjó í húsinu. Þau bjuggu alla sína búskapartíð í húsinu og allt til ársins 2005 bjó afkomandi þeirra í húsinu, en alls eignuðust þau 12 börn.1Minning: Kristín Friðriksdóttir (2010, 14. apríl). Morgunblaðið, 96. árg., 85. tbl., bls. 25; Níels Árni Lund (2016). Sléttunga III. Safn til sögu Melrakkasléttu. Raufarhöfn, bls. 184. Reykjavík: Skrudda; Guðrún Hansdóttir – Minning (1989, 26. júlí). Morgunblaðið, 77. árg., 167. tbl., bls. 34.

Um 1940 reistu Síldarverksmiðjur ríkisins mikla verksmiðju á Raufarhöfn og tilheyrði henni stórt mjölhús. Til að koma því fyrir þurftu nokkur hús á svæðinu að víkja og voru þau ýmist flutt eða rifin. Eitt þessara húsa var Stafnes, sem flutt var á keflum árið 1940 á þann stað sem það stendur enn við Víkurbraut, um 60 m norðan við Hof, sem er númer 32 við Víkurbraut. Þar var húsið sett á steyptan kjallara sem beið þess á nýja staðnum. Í fyrstu var húsið klætt með liggjandi timburklæðningu, en síðar var það járnklætt og loks forskalað. Fljótlega eftir að húsið var flutt var byggður beitingaskúr við húsið, en honum var síðan breytt og gerður að íbúðarhúsnæði og salerni, en slíkur munaður hafði ekki áður verið í húsinu.2Níels Árni Lund (2016), bls. 176 og 184; Minjastofnun Íslands. Gagnasafn.

Stafnes, Raufarhöfn, í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.

Árið 2011 óskaði Sveitarfélagið Norðurþing eftir tilboðum í nokkrar fasteignir, Stafnes þar á meðal. Fyrir sölu eignanna voru sett þau skilyrði að þær yrðu gerðar upp, að utan, innan þriggja ára.3Norðurþing (2011, 27. desember). Fasteignir til sölu í sveitarfélaginu Norðurþingi. Sótt 9. október 2025 af https://www.nordurthing.is/is/frettir/fasteignir-til-solu-i-sveitarfelaginu-nordurthingi. Hjónin Helga Lára Þorsteinsdóttir og Pétur Örn Friðriksson eignuðust þá Stafnes.4Minjastofnun Íslands. Gagnasafn.

Nú (2025) hefur húsið fengið viðeigandi viðgerð, bárujárn komið aftur í stað forskalningar, skipt um glugga og viðbygging endurgerð og auðséð að húsið er í góðum höndum.

 

Húsin Sæból og Sólris voru einnig flutt af Mjölhúslóðinni.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. október, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. október, 2025