Sólris á upphaflegum stað. Myndin er tekin um 1940 og síldarverksmiðjan og mjölhúsið hafa verið reist. Ljósmynd úr safni Jónasar Hreinssonar.
Sólris á upphaflegum stað. Myndin er tekin um 1940 og síldarverksmiðjan og mjölhúsið hafa verið reist. Ljósmynd úr safni Jónasar Hreinssonar.

Sólris, Aðalbraut 7, Raufarhöfn

Heiti: Sólris - Ballhúsið
Byggingarár: ≈ 1928
Brann: 2000
Upphafleg notkun: Samkomu- og íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Kristján Önundarson ?
Aðrir eigendur:
≈ 1940 ? : Geir Ágústsson
Upphafleg staðsetning: Við höfnina á Raufarhöfn á svokallaðri Mjölhúslóð
Flutt: 1940-1945 út í Sand, að Aðalbraut 7, Raufarhöfn

Saga:

Um 1940 reistu Síldarverksmiðjur ríkisins mikla verksmiðju á Raufarhöfn og tilheyrði henni stórt mjölhús. Til að koma því fyrir þurftu nokkur hús á svæðinu að víkja og voru þau ýmist flutt eða rifin. Eitt þessara húsa var Sólris, hús Kristjáns Önundarsonar (1901-1945). Húsið var einnig nefnt Ballhúsið og er talið byggt í lok þriðja áratugs 20. aldar.1Níels Árni Lund (2016). Sléttunga III. Safn til sögu Melrakkasléttu. Raufarhöfn, bls. 177. Reykjavík: Skrudda ehf.; Raufarhöfn: Gamalt timburhús ónýtt af eldi (2000, 16. desember). Dagblaðið Vísir, 90. og 26. árg., 291. tbl., bls. 4.

Þegar húsið var virt til brunabóta árið 1932 var eigandi þess Kristján Önundarson. Húsið var sagt úr timbri á steinsteyptum kjallara, um 80 fermetrar að grunnfleti. Uppi var íbúð en dans- og samkomusalur niðri. Port var á húsinni og tveir kvistir. Þá voru fjórar stofur sagðar vera á hæðinni, tvö eldhús og gangur, tvær eldavélar og tveir ofnar. Á loftinu voru 2 stofur, 3 herbergi, gangur og geymsla. Steypti kjallarinn var í einu lagi.2Virðingabók Brunabótasjóð Íslands fyrir Raufarhafnarumboð 1932-1933. Héraðsskjalasafn Norður Þingeyinga. HRP-455/1, bls. 62. Sótt 12. október 2025 af https://issuu.com/heradsskjalasafnthingeyinga/docs/hrp-455-1?fr=sZTIxZjcxNzA4MTQ.

Þar var auk heimilis Kristjáns símstöðin um tíma og á jarðhæðinni var salur með skorsteini í miðjum salnum. Þetta var aðalsamkomustaður þorpsins. Þarna var dansað, leikið og haldnir fundir. Þá voru þar einnig um tíma barnaskólinn og unglingaskólinn. Síðar var vélaverkstæði síldarverksmiðjanna á jarðhæðinni í nokkur ár. … Þegar rýma þurfti til fyrir mjölhúsinu, færði Geir Ágústsson [1926-2021] húsið út í Sand.3Níels Árni Lund (2016), bls. 177.

Höfundur veit ekki hvenær Geir flutti húsið út í Sand, en væntanlega hefur það verið um svipað leyti og önnur hús sem flutt voru af Mjölhúslóðinni, t.d. Stafnes og Sæból, þ.e. um eða skömmu eftir 1940.

Í minningargrein um Geir kemur fram að hann hafi verið á Raufarhöfn til ársins 1945 en flutti þá til Reykjavíkur og hóf nám í húsasmíði. Árið 1949 flutti hann svo aftur til Raufarhafnar ásamt eiginkonu sinni, Ingigerði Guðmundsdóttur (1921-2018).4Minning: Geir Ágústsson (2021, 29. desember). Morgunblaðið, 109. árg., 304. tbl., bls. 15

Geir var mikill athafnamaður á Raufarhöfn, sat um tíma í sveitarstjórn og var hann mikilvirkur trésmiður á staðnum og byggði þar fjölda húsa. Má nefna Hafsilfursbraggann, Borgarplanið, nýja Kaupfélagshúsið, Læknishúsið, Barnaskólann og félagsheimilið Hnitbjörg. Auk þess fjölda íbúðarhúsa sem hann teiknaði mörg hver. Hann byggði húsið Breiðablik. Rak þar trésmíðaverkstæði í öðrum helmingi hússins en í hinum var íbúð þeirra hjóna þar sem allir fjórir synirnir ólust upp. Uppi á lofti voru verbúðir á síldarárunum. Margar eldhúsinnréttingar sem hann smíðaði standa enn í dag. …
Sjómennskan átti einnig hug hans allan og stundaði hann smábátaútgerð í fjölda ára samhliða smíðunum, í byrjun með bróður sínum Hilmari eða einn og átti í gegnum tíðina fjölda báta á Raufarhöfn og Reykjavík.
5Minning: Geir Ágústsson (2021, 29. desember)

Þegar húsið var fært út í Sand var það skráð við Aðalbraut 7. Þar stóð húsið ekki á neinum kjallara en þar var það forskalað. Síðustu ár hússins bjó enginn í húsinu en það var notað fyrir geymslu og dekkjaviðgerðir. Í desember 2000 kom upp eldur í húsinu og húsið gjöreyðilagðist. Þá var húsið mannlaust.6Kviknaði í mannlausu húsi (2000, 16. desember). Morgunblaðið, 88. árg., 290. tbl., bls. 6.; Húsið Sólris á Raufarhöfn gjörónýtt eftir bruna (2000, 15. desember). Sótt 16. október 2025 af https://www.mbl.is/frettir/innlent/2000/12/15/husid_solris_a_raufarhofn_gjoronytt_eftir_bruna/.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. október, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. október, 2025