Konungsskálinn Þingvöllum 1907. Heimild: Poulsen, S. og Rosenberg H. (1958). Íslandsferðin. Frásögn um för Friðriks áttunda og ríkisþingmanna til Færeyja og Íslands sumarið 1907. Geir Jónasson þýddi. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.
Konungsskálinn Þingvöllum 1907. Heimild: Poulsen, S. og Rosenberg H. (1958). Íslandsferðin. Frásögn um för Friðriks áttunda og ríkisþingmanna til Færeyja og Íslands sumarið 1907. Geir Jónasson þýddi. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.

Ráðherrabústaðurinn Þingvöllum

Heiti: Konungshús - Konungsskáli – Ráðherrabústaður
Byggingarár: 1907
Brann: 1970
Upphafleg notkun: Gistiskáli
Fyrsti eigandi: Ríkissjóður
Upphafleg staðsetning: Efri-Vellir, Þingvöllum
Flutt: ≈1929 suður yfir Öxará
Hvernig flutt: Á ís
Ráðherrabústaður 3

Konungsskálinn Þingvöllum 1907. Heimild: Poulsen, S. og Rosenberg H. (1958). Íslandsferðin. Frásögn um för Friðriks áttunda og ríkisþingmanna til Færeyja og Íslands sumarið 1907, bls. 170. Geir Jónasson þýddi. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.

Ráðherrabústaður 5

Ráðherrabústaðurinn Þingvöllum 1936. Kristján X Danakonungur stendur fyrir framan húsið ásamt fleiri einkennisklæddum mönnum. Ljósm.: Ólafur Magnússon. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, mynd nr. ÓLM 0393.jpg. Sótt 9. febrúar 2023 af Myndasafn (thon.is).

 

Saga:

Í lok júlí 1907 kom Friðrik Danakonungur áttundi hingað til lands í opinbera heimsókn ásamt fríðu föruneyti. Hann hélt til Þingvalla 1. ágúst í fylgd íslenskra og danskra hefðarmanna þar sem haldin var mikil hátíð áður en haldið var lengra austur á bóginn. Í fylgdarliði konungs töldust rúm 200 manns, sem allir þurftu að fá hesta, nærast og sofa. En talið er að til Þingvalla hafi skundað milli þrjú til fjögur þúsund manns af þessu tilefni. Því hafði mikill undirbúningur farið fram á Þingvöllum. Meðal annars voru reist þar tvö timburhús, konungsskáli, sem ætlað var konungi, og stór gildaskáli (Mikliskáli), þar sem ríkisþingmenn og nánasta föruneyti konungs gisti í tvær nætur.1Poulsen, S. og Rosenberg H. (1958). Íslandsferðin. Frásögn um för Friðriks áttunda og ríkisþingmanna til Færeyja og Íslands sumarið 1907. Geir Jónasson þýddi. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja. Konungsskálinnstóð fagurlega í halla upp að Almannagjá“.2Poulsen, S. og Rosenberg H. (1958). Um smíði beggja húsanna sá Jónas H. Jónsson og menn hans, alls átta smiðir, og mun það hafa tekið hópinn vikutíma að reisa báða skálana í júní 1907.3Jón Valur Jónsson (2010). Óbirt ritgerð um byggingarlista á Íslandi á 20. öld unnin í Listaháskóla Íslands.

Síðar var Konungshúsið gert að gistihúsi og þótti umgengni þar léleg.4Torfi Stefán Jónsson (2009). Aðdragandi að friðun Þingvalla 1930. Ritgerð til B.A.-prófs við Hugvísindadeild Háskóla Íslands. Sótt 14. desember 2023 af https://skemman.is/handle/1946/2218.

Ráðherrabústaðurinn Þingvöllum 1952. Ljósm.: Pétur Thomsen. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Myndavefur. Mynd PTH 028 060 1-2.jpg. Sótt 14. desember 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.

Þegar farið var að huga að framkvæmdum á Þingvöllum til undirbúnings Alþingishátíðarinnar 1930 vildi undirbúningsnefndin láta rýma burtu þeim byggingum sem „raski náttúrlegum svip þingstaðarins“ því þeim fylgi „margskonar ónæði, óhollusta og óþrifnaður, sem sje staðnum öldungis ósamboðinn“ Þarna er m.a. átt við Valhöll, Konungshúsið og sumarbústað í Fögrubrekku.5Álit Þingvallanefndar (1926, 19. apríl). Ísafold, 51. árg., 20. tbl., bls. 1. Var Konungshúsið þá flutt suður yfir Öxará á ís og sett niður um 200 m sunnan Valhallar og notað eftir það sem sumarhús forsætisráðherra og til að hýsa tigna erlenda gesti.

Bústaðurinn brann til kaldra kola aðfararnótt 10. júlí 1970 og fórust þar Bjarni Benediktsson forsætisráðherra ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Björnsdóttur, og ungum dóttursyni þeirra. Húsið var olíukynt, bárujárnsklætt timburhús.6Snöggur sjónarsviptir (1970, 12. júlí). Tíminn, 54. árg., 153. tbl., bls. 8; Ráðherrabústaðurinn brann til kaldra kola á skammri stund (1970, 11. júlí). Tíminn, 54. árg., 152. tbl., bls. 3 og 6. Það vekur athygli að Ráðherra­bústaðurinn brann sama dag og Valhöll  39 árum síðar.

 

Leitarorð: Þingvellir

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 9. febrúar, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Poulsen, S. og Rosenberg H. (1958). Íslandsferðin. Frásögn um för Friðriks áttunda og ríkisþingmanna til Færeyja og Íslands sumarið 1907. Geir Jónasson þýddi. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.
  • 2
    Poulsen, S. og Rosenberg H. (1958).
  • 3
    Jón Valur Jónsson (2010). Óbirt ritgerð um byggingarlista á Íslandi á 20. öld unnin í Listaháskóla Íslands.
  • 4
    Torfi Stefán Jónsson (2009). Aðdragandi að friðun Þingvalla 1930. Ritgerð til B.A.-prófs við Hugvísindadeild Háskóla Íslands. Sótt 14. desember 2023 af https://skemman.is/handle/1946/2218.
  • 5
    Álit Þingvallanefndar (1926, 19. apríl). Ísafold, 51. árg., 20. tbl., bls. 1.
  • 6
    Snöggur sjónarsviptir (1970, 12. júlí). Tíminn, 54. árg., 153. tbl., bls. 8; Ráðherrabústaðurinn brann til kaldra kola á skammri stund (1970, 11. júlí). Tíminn, 54. árg., 152. tbl., bls. 3 og 6.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 9. febrúar, 2024