Oddagata 1, Seyðisfirði
Oddagata 1 í september 2010. Ljósm.: Nikulás Úlfar Másson. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Oddagata 1 árið 2020. Endurbótum utanhúss næstum lokið. Ljósm.: Helgi Gunnarsson. Sótt 8. nóvember 2023 af https://www.facebook.com/MinjastofnunIslands/posts/3937490206278417/.
Saga:
Þetta litla hús var ein af 16 þurrabúðum sem byggðar voru í nágrenni verslunarhúsa sem reist voru undir Bjólfinum í Seyðisfirði, á svonefndri Fjarðaröldu, sem er norðan við fjörðinn, í jaðri núverandi byggðar. Húsið var byggt árið 1882 af Einari Jónssyni.1Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 14 og 301-302. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austur-lands og Seyðisfjarðarkaupstaður. Byggingarárið var því lýst þannig í húsavirðingu:
10 ál langt, 8 ál breitt, 9 ál hátt. Íbúðarhús úr timbri, með gólfi, lopti og kjallara, 4 ál í ferhyrning; niðri eru 3 herbergi og eldhús með reykháfi og eldstó, uppi er húsið ófullgjört ennþá.2Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 302.
Þann 18. febrúar árið 1885 gerðist sá voveiflegi atburður að mikið snjóflóð úr Bjólfinum sópaði stórum hluta þessarar byggðar, alls 14 húsum, á haf út og varð 24 fjórum manneskjum að fjörtjóni.3 Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 14. „Nokkrar þurrabúðir sem stóðu norðan við farveg flóðsins í kringum svonefnda Liverpoolverslun voru fluttar inn á öruggari svæði á Öldunni.“4Þóra B. Guðmundsdóttir (2003). Gengið um gamla bæinn – þróun byggðar í Seyðisfjarðarkaupstað frá 1850 til 1940. Bæklingur gefinn út af skrifstofu ferða- og menningarmála í Seyðisfirði. Ingimundur Ingimundarson keypti húsið eftir snjóflóðið og flutti það á lóð nr. 1 við Oddagötu og var það kallað Ingimundarhús.5Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 301-302.
Húsið er grindarbyggt, „danskrar ættar og dæmigert þurrabúðarhús frá síðustu öld.“6Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 302.
Um 2013 hófu núverandi eigendur umfangsmikla viðgerð og endurbætur á ytra byrði hússins.7Minjastofnun Íslands (2020, 26. október). Fyrir og eftir. Ingimundarhús, Oddagötu 1, Seyðisfirði. Sótt 8. nóvember 2023 af https://www.facebook.com/MinjastofnunIslands/posts/3937490206278417/. Ekki fer það fram þeim sem leið eiga um Oddagötuna að þeir hafa vandað til verka og nostrað við hvert smáatriði.
Sjá einnig Nóatún sem flutt var að Bjólfsgötu 4 og Gíslahús, flutt að Bjólfsgötu 3.
Leitarorð: Seyðisfjörður – Fjarðaralda – Bjólfur
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 14 og 301-302. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austur-lands og Seyðisfjarðarkaupstaður.
- 2Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 302.
- 3Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 14.
- 4Þóra B. Guðmundsdóttir (2003). Gengið um gamla bæinn – þróun byggðar í Seyðisfjarðarkaupstað frá 1850 til 1940. Bæklingur gefinn út af skrifstofu ferða- og menningarmála í Seyðisfirði.
- 5Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 301-302.
- 6Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 302.
- 7Minjastofnun Íslands (2020, 26. október). Fyrir og eftir. Ingimundarhús, Oddagötu 1, Seyðisfirði. Sótt 8. nóvember 2023 af https://www.facebook.com/MinjastofnunIslands/posts/3937490206278417/.
Deila færslu
Síðast uppfært 13. desember, 2023

