Íbúðarhús verslunarstjórans í Skógarneshólma. Teiknistofa Guðrúnar Jónsdóttur (2014, maí). Eyja- og Miklaholtshreppur. Húsa- og mannvirkjakönnun 2012-2014, bls. 19.
Íbúðarhús verslunarstjórans í Skógarneshólma. Teiknistofa Guðrúnar Jónsdóttur (2014, maí). Eyja- og Miklaholtshreppur. Húsa- og mannvirkjakönnun 2012-2014, bls. 19.

Vegamót, Eyja- og Miklaholtshreppi, Snæfellsnesi

Heiti: Skógarneshólmi – Hólmur - Vegamót
Byggingarár: 1913
Rifið: 1990
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Verslunin Tang & Riis
Aðrir eigendur:
1932: Þorkell Teitsson
1935: Steinunn Þórðardóttir og Jón Sigurgeirsson
1942: Kaupfélag Stykkishólms
1964: Kaupfélag Borgfirðinga
Upphafleg staðsetning: Skógarneshólmi í landi Syðra-Skógarness í Miklaholtshreppi
Flutt: 1935 að Vegamótum á Snæfellsnesi
Vegamót 5

Vegamót fyrir miðja síðustu öldu. Ljósm. ekki þekktur. Heimild: Facebook. Gamlar ljósmyndir. Sótt 1. febrúar 2024 af Facebook.

Vegamót 2

Vegamót árið 1948. Þorsteinn Jónsson (2000). Eyja- og Miklaholtshreppur. Ábúendur og saga Eyja- og Miklaholtshrepps frá 1900, bls. 489. Reykjavík: Sögusteinn.

 

Vegamót 3

Vegamót á Snæfellsnesi 1954-1957. Húsið sem var í Skógarneshólma er til hægri á myndinni. Ljósm.: Guðni Þórðarson. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. GÞ-4378.

Vegamót 4

Vegamót líklega árið 1960. Á hlaðinu eru bílar sem tilheyrðu brúarvinnuflokki Kristleifs Jóhannessonar að koma fram því að brúa Hraunsfjörð. Ljósm.; Gylfi Hallgrímsson. Heimild: Gylfi Hallgrímsson (2024, 31. janúar). Skilaboð á Facebook. Hópur: Gamlar ljósmyndir.

Saga:

Skógarneshólmi er í landi Syðra-Skógarness í Miklaholtshreppi. Þaðan var talsvert útræði á fyrri öldum. Upp úr 1890 hófust reglubundnar skipaferðir með fólk og vörur frá Reykjavík í Skógarneshólma eða Hólminn, eins og staðurinn var oftast nefndur. Skömmu síðar fara að koma þangað lausakaupmenn á skipum með vörur sínar, svonefndir spekúlantar. Engin aðstaða var þó í Hólminum heldur varð fólk að fara um borð í skipin til að versla. Árið 1905 var þar löggiltur verslunarstaður og verslunin Tang & Riis í Stykkishólmi reisti fyrsta verslunarhúsið. Fyrst í stað var ekki um fasta búsetu þar að ræða, en 1913 hafði Tang & Riis bæði reist þar verslunarhús og íbúðarhús verslunarstjóra. Fyrsti verslunarstjórinn þar með fasta búsetu var Helgi Guðmundsson (1889-1943), sem bjó þar ásamt konu sinni Kristínu Ólafsdóttur (1891-1986) til ársins 1917 þegar Ólafur Sigvaldason Blöndal (1888-1966) tók við og stýrði versluninni þar til hún var lögð niður árið 1932. Eignirnar, þ.e. verslunarhús, sláturhús, íbúðarhús, fjós og hlöðu, keypti Þorkell Teitsson (1891-1949) símstöðvarstjóri og póstafgreiðslumaður í Borgarnesi. Um tíma frá árinu 1930 bjuggu hjónin Kristján Gíslason (1897-1990) og Jóhanna Ólafsdóttir (1897-1980) í faktorshúsinu. Þorkell reyndi að stunda verslun í smáum stíl í Skógarnesi í nokkur ár, en árið 1935 voru húsin seld og flutt burt. Jón Aðalsteinn Sigurgeirsson (1901-1946) frá Hömluholtum keypti íbúðarhúsið og endurbyggði það á Vegamótum í Miklaholtshreppi, verslunarhúsið var flutt að Hömluholtum og sláturhúsið var flutt að Ytra-Rauðamel og reist þar á ný sem fjós og hlaða.1Teiknistofa Guðrúnar Jónsdóttur (2014, maí). Eyja- og Miklaholtshreppur. Húsa- og mannvirkjakönnun 2012-2014, bls. 19; Þorsteinn Jónsson (2000). Eyja- og Miklaholtshreppur. Ábúendur og saga Eyja- og Miklaholtshrepps frá 1900, bls. 210-215. Reykjavík: Sögusteinn.

Þegar ljóst var hvar framtíðarvegur til Stykkishólms myndi liggja ákváðu hjónin Steinunn Þórðardóttir (1914-1995) og Jón Sigurgeirsson að fresta gæfunnar og hefja veitingarekstur á Vegamótum, þar sem vegurinn til Stykkishólms og Ólafsvíkur mætast. Þegar þau hófu reksturinn sumarið 1933 voru aðstæður fremur frábrotnar, stórt veitingatjald og lítill bárujárnsskúr og þarna voru hjónin um sumartímann í tvö eða þrjú ár, eða þar til þau festu kaup á faktorshúsinu í Skógarneshólma og fluttu að Vegamótum og endurreistu þar á steyptum kjallara. Í þessu húsi bjuggu þau Jón og Steinunn þar til þau fluttu frá Vegamótum, en á sumrin settu þau upp veitingatjaldið og efndu þar jafnvel til dansleikja. Jafnframt rekstrinum á Vegamótum ráku þau Steinunn og Jón gistihús og kvikmyndahús í Stykkishólmi.

Kaupfélag Stykkishólms keypti staðinn af þeim hjónum árið 1942 en veitingarekstri var haldið áfram í húsinu. Vestur af gamla íbúðarhúsinu var síðar reist verslunar- og veitingahús. Um áramótin 1963 og 1964 keypti Kaupfélag Borgfirðinga Vegamót. Árið 1990 var gamla húsið rifið og ný bygging leysti það af hólmi.2Þorsteinn Jónsson (2000), bls. 487-489.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. febrúar, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. febrúar, 2024