Tjarnargata 3, Vogum
Líkan af Hábær, eins og hann leit út árið 1922. Heimild: Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 72.
Hábær, í kringum 1985. Heimild: Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 72.
Hábær, Tjarnargötu 3 í Vogum, Vatnsleysuströnd, suðurhluti, austurhlið, árið 2011. Ljósm. sótt 30. janúar 2026 af Gjöf til Minjafélags Vatnsleysustrandar - Víkurfréttir.
Hábær, Tjarnargötu 3 í Vogum, Vatnsleysuströnd, suðurhluti, vesturhlið, í ágúst 2022. Ljósm.: Ja.is.
Saga:
Hvammur var lítið grasbýli á leigulandi syðst í Brunnastaðahverfi á Vatnsleysuströnd. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær bærinn var byggður en um aldamótin 1900 bjuggu þar hjónin Kristján Kristjánsson (f. 1843) og Guðbjörg Eiríksdóttir (f. 1849). Árið 1918 fluttu hjónin Árni Theodór Pétursson (1871-1963) og kona hans, Anna Kristín Daníelsdóttir (1888-1981), í Hvamm.1Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 194. [Útg.staðar ekki getið:] Höfundur; Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Kristborg Þórsdóttir, Sædís Gunnarsdóttir og Þóra Pétursdóttir (2016). Aðalskráning fornleifa í Sveitarfélaginu Vogum. Áfangaskýrsla III, bls. 25-26. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands. Skýrsla nr. FS596-07253.
Þegar Ásmundur Árnason (1862-1932) í Hábæ hafði flutt hús sitt til Hafnarfjarðar árið 1921 (sjá Skúlaskeið 3, Hafnarfirði) létu Árni og Anna rífa Hvamm og „… byggja að nýju á Hábæjargrunninum, þó í öðrum stíl væri en áður, og er það enn í dag sá hluti hússins sem snýr mót suðri.“2Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Eva Kristín Dal, Kristborg Þórsdóttir o.fl. (2001). Aðalskráning fornleifa í Sveitarfélaginu Vogum. Áfangaskýrsla I, bls. 16. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands. Skýrsla nr. FS460-07251. Um það verk sá Eyjólfur Pétursson frá Tumakoti.
Þegar Árni og Anna slitu samvistum 1926 eignuðust systkinin Kristján og María Finnsbörn Hábæ. Kristján drukknaði 1928 og seldi María þá Sveini Pálssyni (1886-1970) og konu hans Önnu Guðmundsdóttur (1894-1983) jörðina.3Guðmundur B. Jónsson (1987), bls. 70-74.
Sveinn var búfræðingur, enda urðu umtalsverðar breytingar í Hábæ þegar hann lét byggja fjós, heyhlöðu og fóðurgeymslu við norðurendann árið 1929. Sama ár setti Sveinn upp verslun, þá fyrstu hér í hrepp, íbúum til mikils hagræðis. Hann var fyrstur með algera rafvæðingu á sínu heimili. Hann steypti safnþró og byggði þar yfir timburhús með rafvélina í norðurenda hússins og verslunarvörulagerinn í suðurendanum. Ris var á húsinu sem var notað eitt ár sem verbúð.4Guðmundur B. Jónsson (1987), bls. 74.
Hábær, sem byggður var árið 1921 stendur enn, er númer 3 við Tjarnargötu í Vogum, en búið er að byggja við húsið tvisvar eða þrisvar sinnum.5Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Eva Kristín Dal, Kristborg Þórsdóttir o.fl. (2001), bls. 16. Geir Pálsson byggingameistari úr Reykjavík, bróðir Sveins, sá um allar byggingar við húsið.6Guðmundur B. Jónsson (1987), bls. 75.
Leitarorð: Vogar
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. janúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 194. [Útg.staðar ekki getið:] Höfundur; Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Kristborg Þórsdóttir, Sædís Gunnarsdóttir og Þóra Pétursdóttir (2016). Aðalskráning fornleifa í Sveitarfélaginu Vogum. Áfangaskýrsla III, bls. 25-26. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands. Skýrsla nr. FS596-07253.
- 2Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Eva Kristín Dal, Kristborg Þórsdóttir o.fl. (2001). Aðalskráning fornleifa í Sveitarfélaginu Vogum. Áfangaskýrsla I, bls. 16. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands. Skýrsla nr. FS460-07251.
- 3Guðmundur B. Jónsson (1987), bls. 70-74.
- 4Guðmundur B. Jónsson (1987), bls. 74.
- 5Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Eva Kristín Dal, Kristborg Þórsdóttir o.fl. (2001), bls. 16.
- 6Guðmundur B. Jónsson (1987), bls. 75.
Deila færslu
Síðast uppfært 30. janúar, 2026



