Vatnsendablettur 20, Kópavogi, 2005. Ljósm.: Gunnar Bogi Borgarsson.
Vatnsendablettur 20, Kópavogi, 2005. Ljósm.: Gunnar Bogi Borgarsson.

Suðurgata 18, Akranesi

Byggingarár: ?
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: ?
Upphafleg staðsetning: Vatnsendablettur 70a, Kópavogi
Flutt: 2005 að Suðurgötu 18, Akranesi

Saga:

Suðurgata 18, Akranesi, í ágúst 2022. Ljósm.: Ja.is.

Í apríl 2005 var hús sem stóð við Vatnsendablett 70a í Kópavogi auglýst til sölu, með skilyrði um brottflutning af lóðinni. Seinna sama ár fengu hjónin Þuríður M. Magnúsdóttir og Jón Jóel Einarsson heimild til að flytja húsið að Suðurgötu 18 á Akranesi.1Til sölu (2005, 12. apríl). Fréttablaðið, 5. árg., 97. tbl., bls. 16; Vefur Akranesbæjar, mál nr. SU050032; Guðmundur Lúther Hafsteinsson (2008, 4. júlí). Skráning húsa á Akranesi. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands. Það var Gunnar Borgarsson arkitekt sem teiknaði endurgerð hússins við Suðurgötu.

Þess má geta að áður stóð húsið Neðri-Teigur á lóðinni númer 18 við Suðurgötu. Árið 1982 var það hús flutt að Háteigi 8 á Akranesi.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 23. janúar, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 23. janúar, 2024