Neðri-Teigur, Suðurgata 18, Akranesi, á tímabilinu 1930-1949. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 23059. Sótt 23. maí 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is.
Neðri-Teigur, Suðurgata 18, Akranesi, á tímabilinu 1930-1949. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 23059. Sótt 23. maí 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is.

Háteigur 8, Akranesi

Heiti: Vilhjámshús - Neðri-Teigur - Neðriteigur
Byggingarár: 1904
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Vilhjálmur Guðmundsson og Jakobína Pálsdóttir
Aðrir eigendur:
1913: Jónína Guðrún Einarsdóttir og Sigurjón Sigurðsson
1982: Eiríkur Guðmundsson og Steinunn Þórðardóttir
Upphafleg staðsetning: Suðurgata 18, Akranesi
Flutt: 1982 að Háteig 8, Akranesi

Saga:

Það var líklega árið 1904 sem hjónin Vilhjálmur Guðmundsson (1865-1906) (var fyrsti organisti Garðakirkju) og Jakobína Pálsdóttir (1861-1935) byggðu sér hús við Suðurgötu 18 á Akranesi og nefndu Neðri-Teig. Vilhjálmur lést tveimur árum síðar, en ekkja hans bjó þar ásamt börnum sínum til 1913. Þá keyptu hjónin Guðrún Einarsdóttir (1894-1969), eða Gunna á Teig, eins og hún var kölluð, og Sigurjón Sigurðsson (1890-1976) húsið og bjuggu þar til dánardags. Sigurjón var lengi bifreiðastjóri og starfaði mikið við skipaafgreiðslu. Hann var einnig kenndur við heimili sitt.1Gísli S. Sigurðsson (2007). Svipast um á Suðurgötu. Fyrsti hluti. Árbók Akurnesinga, 7, bls. 118-119; Ólafur B. Björnsson (1942, 1. júlí). II. 1. Hallgrímur Jónsson hreppstjóri 1826-1906. Akranes, 1. árg., 5. tbl., bls. 4.

…. Neðri-Teigur, var timburhús og stóð á kjallara, trúlega hlöðnum úr grjóti og vissu tveir gluggar út að götunni. Húsið var lítið um sig, ein hæð með háu risi og inngangsskúr við neðri enda sem hálfri breidd hússins og tröppur frá honum sem vissu út að götunni. við hinn endann var geymsluskúr sem var jafn breiður húsinu og á honum hurð og gluggi sem sneru út að götunni.2Gísli S. Sigurðsson (2007), bls. 118.

Háteigur 8, Akranesi, í ágúst 2022. Ljósm.: Ja.is.

Ekki er vitað hvers vegna hjónin Eiríkur Guðmundsson og Steinunn Þórðardóttir stóðu fyrir flutningi hússins árið 1982. Þegar húsinu var komið fyrir á lóðinni nr. 8 við Háteig var húsið stækkað töluvert með viðbyggingu til suðurs.3Gísli S. Sigurðsson (2007), bls. 118-119.

Þess má geta að árið 2005 var flutt á lóðina við Suðurgötu 18 hús sem stóð við Vatnsendablett 70b í Kópavogi.4Guðmundur Lúther Hafsteinsson (2008, 4. júlí). Skráning húsa á Akranesi. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 22. janúar, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Gísli S. Sigurðsson (2007). Svipast um á Suðurgötu. Fyrsti hluti. Árbók Akurnesinga, 7, bls. 118-119; Ólafur B. Björnsson (1942, 1. júlí). II. 1. Hallgrímur Jónsson hreppstjóri 1826-1906. Akranes, 1. árg., 5. tbl., bls. 4.
  • 2
    Gísli S. Sigurðsson (2007), bls. 118.
  • 3
    Gísli S. Sigurðsson (2007), bls. 118-119.
  • 4
    Guðmundur Lúther Hafsteinsson (2008, 4. júlí). Skráning húsa á Akranesi. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 22. janúar, 2024