Strandarvegur 5, Seyðisfirði
Utarlega á Fjarðarströnd, Seyðisfirði
1906 að Strandarvegi 5, Seyðisfirði
Saga:
Garðhús byggði Sigurður Sigurðsson aldamótaárið 1900 utarlega á Fjarðarströnd, um það bil sem Strandarsíld stóð áður. Árið 1906 var það tekið niður og flutt þangað sem þá var lóð nr. 5 við Strandarveg. Stóð húsið næst utan við þrær Síldarbræðslunnar. Húsið var 34 fermetrar að grunnfleti. Í brunabótamati árið 1926 var því lýst þannig:
Íbúðarhús, einlyft, portbyggt timburhús, innanþiljað paneli og skilrúmsborðum, málað og veggfóðrað.
Niðri: 3 stofur, eldhús og gangur. Uppi. 1 herbergi, eldhús, gangur og geymsluklefi. Í húsinu er vatnsleiðsla og raflýsing. Kjallari er undir öllu húsinu, hlaðinn úr grjóti.
Af þessari lýsingu má draga þá ályktun að húsið hafi verið tvíbýlt.
Árið 1950 varð húsið fyrir skakkaföllum af völdum skriðufalla og var ekki búið í því eftir það. Síðustu íbúarnir voru þau Þórir Daníelsson og Ragnheiður Jónsdóttir.
Árið 1962 eignuðust Síldarverksmiðjur ríkisins húsið og rifu það, því það var á athafnasvæði fyrirtækisins.1Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar. 2. útg., bls. 373. Seyðisfirði: Seyðisfjarðarkaupstaður.
Þess má geta að Fjarðarströnd nefnist strandsvæðið undir Strandartindi sunnan Seyðisfjarðar. Þar er mikil snjóflóðahætta og hafa þar oft fallið snjóflóð. Ekki er ólíklegt að húsið hafi verið flutt vegna þess. Sjá einnig: Hafnargata 32 B, Seyðisfirði – Húsaflutningar
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 31. janúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar. 2. útg., bls. 373. Seyðisfirði: Seyðisfjarðarkaupstaður.
Deila færslu
Síðast uppfært 31. janúar, 2026