Hafnargata 32 B, Seyðisfirði
Saga:
Í Húsasögu Seyðisfjarðarkaupstaðar er ekki farið náið út í sögu þessa húss því það var horfið af sjónarsviðinu þegar bókin var skrifuð. Þar kemur fram að árið 1901 hafi Óli Söring (1865-1915) keypt húsið á Fjarðarströnd í Seyðisfirði. Af því má draga þá ályktun að hann hafi ekki byggt húsið. Árið 1919 keypti sonur hans, Þórarinn (1889-1974), húsið, en tveimur árum síðar var það tekið niður og reist að nýju að Hafnargötu 32 B. Þar var Þórarinn með veitingasölu í húsinu um tíma.1Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 237. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður; Hjalti Þórisson (2025, 13. nóvember). Sótt 14. nóvember 2025 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=3106549529529034&set=p.3106549529529034&type=3.
Í brunabótamati frá 1922 má fá þær upplýsingar um húsið að það var járnvarið timburhús, einlyft og portbyggt. Seinna var þakinu lyft og húsið forskalað. Saga hússins síðustu ár þess er hálfgerð raunasaga. Það skemmdist tvisvar af eldi og var endanlega rifið árið 1989.2Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 237.
Þess má geta að Fjarðarströnd nefnist strandsvæðið undir Strandartindi sunnan Seyðisfjarðar. Þar er mikil snjóflóðahætta og hafa þar oft fallið snjóflóð. Ekki er ólíklegt að húsið hafi verið flutt vegna þess. Hafa má í huga að ef húsið hefði staðið við Hafnargötu 32b í desember 2020, þegar mikil aurskriða féll á það svæði, hefði húsið vafalaust eyðilagst eða orðið fyrir miklum skemmdum.

Hafnargata 32b, Seyðisfirði. Ljósm.: Magnús Reynir. Heimild: Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 237. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. nóvember, 2025
Heimildaskrá
- 1Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 237. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður; Hjalti Þórisson (2025, 13. nóvember). Sótt 14. nóvember 2025 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=3106549529529034&set=p.3106549529529034&type=3.
- 2Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 237.
- 3Þjóðskjalasafn Íslands. Manntal 1901. Sótt 12. nóvember 2025 af https://manntal.is/; Minning: Jón Söring (2013, 9. mars). Morgunblaðið, 101. árg., 57. tbl., bls. 44.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. nóvember, 2025