Skólabraut 10, Hellissandi
Skólabraut 10, Hellissandi, um 1981. Ljósm.: Lydia Rafnsdóttir. Sótt 6. júní 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=664823421732396&set=gm.2437788466359599&idorvanity=825870454218083.
Skólabraut 10, Hellissandi, líklega um 2000. Ljósm.: Páll V. Bjarnason. Sótt 6. júní 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10205381717636300&set=oa.920452311329428.
Saga:
Þegar Lárus Skúlason (1844-1925) byggði sér íbúðarhús á Hellissandi árið 1889 er talið líklegt að hann hafi keypt hús, rifið það, flutt til Hellissands og endurbyggt þar. Ekki er vitað hvar hann keypti húsið. „Húsið gekk fyrst undir nafninu Nýjahús en eftir nokkur ár var farið að kalla það Lárusarhús og svo er það nefnt enn.“ Húsið telst vera númer 10 við Skólabraut og er elsta húsið á Hellissandi.1Skúli Alexandersson (2008-2009). Lárus Skúlason og framfaraskeið á Hellissandi, bls. 53. Breiðfirðingur, 62, bls. 36-64.
Lárus Skúlason var mikill athafna- og framfaramaður á Hellissandi til lands og sjávar og tók virkan þátt í stjórnmálum. Hann beitti sér fyrir að koma á fastri og skipulagðri barnafræðslu og var formaður barnaskólanefndar. Árið 1890 stóð hann fyrir því að hús var flutt frá Stykkishólmi, það reist að nýju á Hellissandi og notað sem skólahús (lesa má um húsið hér).2Skúli Alexandersson (2008-2009).
Lárus gaf fósturdóttur sinni, Lárenzínu Lárusdóttur (1890-1952) húsið.3Kristinn Kristjánsson (1995). Upphaf skólahalds á Hellissandi. Kaflar úr lengri ritgerð, bls. 161. Breiðfirðingur, 53, bls. 154-176.
Síðar eignaðist Skúli Alexendersson (1926-2015) oddviti, alþingismaður og framkvæmdastjóri húsið og lét endurbyggja það á árunum 1993 til 1997. Hann fékk Pál V. Bjarnason arkitekt til liðs við sig og sjá má að vandað hefur verið til verka.4Lárusarhúsið endurgert (1997, 16. desember). Morgunblaðið, Blað D, bls. 14.
Leitarorð: Hellissandur
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. júní, 2025
Heimildaskrá
- 1Skúli Alexandersson (2008-2009). Lárus Skúlason og framfaraskeið á Hellissandi, bls. 53. Breiðfirðingur, 62, bls. 36-64.
- 2Skúli Alexandersson (2008-2009).
- 3Kristinn Kristjánsson (1995). Upphaf skólahalds á Hellissandi. Kaflar úr lengri ritgerð, bls. 161. Breiðfirðingur, 53, bls. 154-176.
- 4Lárusarhúsið endurgert (1997, 16. desember). Morgunblaðið, Blað D, bls. 14.
Deila færslu
Síðast uppfært 6. júní, 2025

