Fyrsta skólahúsið á Hellissandi
Saga:
Um 1867 byggðu þeir Jón Eiríksson (1836-1920) gullsmiður og Páll Andrésson hús sem stóð á lóð númer 6 við Silfurgötu í Stykkishólmi, rétt sunnan við Kúldshús (lesa má um það hér). Húsið var ýmist nefnt Gestgjafahús því þar ráku þeir félagar veitingahús eða Gullsmiðshús eftir starfsemi Jóns. Árið 1889 flutti Jón til Kanada. Árið eftir keypti Lárus Skúlason (1844-1925) bátaformaður og framfaramaður á Hellissandi húsið, flutti það út á Hellissand og lét endurbyggja það þar sem skólahús.1Ægir Jóhannsson (2010, 2. maí). Tölvupóstur; Skúli Alexandersson (2008-2009). Lárus Skúlason og framfaraskeið á Hellissandi, bls. 51-52. Breiðfirðingur, 62, bls. 36-64. Um þetta sagði Lárus:
Þá keypti ég með hjálp Samúels Richters veitingahús í Stykkishólmi og var það flutt út á Sand og sett þar sem verslun Proppé-bræðra er nú. Var það ekki fullbyggt fyrir haustið en mátti þó kenna í öðrum enda þess. Yfir hið hálfbyggða hús var tjaldað með striga og tjara borin í, því að járn var ekki til. … Þegar húsið var fullbyggt, var það íbúðarhús fyrir kennara og skóli til ársins 1906.2Kristinn Kristjánsson (1995). Upphaf skólahalds á Hellissandi. Kaflar úr lengri ritgerð. Breiðfirðingur, 53, bls. 154-176.
Lárus Skúlason var mikill athafna- og framfaramaður á Hellissandi til lands og sjávar og tók virkan þátt í stjórnmálum. Hann beitti sér fyrir að koma á fastri og skipulagðri barnafræðslu og var formaður barnaskólanefndar til ársins 1906 þegar hann skilaði af sér nýbyggðu húsnæði fyrir skólann.3Skúli Alexandersson (2008-2009). Lárus kenndi einnig við skólann, m.a. réttritun, náttúrufræði og dönsku.4Kristinn Kristjánsson (1995), bls. 155. Um íbúðarhús sem Lárus byggði má lesa um hér: https://husaflutningar.is/skolabraut-10-hellissandi/.
Leitarorð: Hellissandur
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. júní, 2025
Heimildaskrá
- 1Ægir Jóhannsson (2010, 2. maí). Tölvupóstur; Skúli Alexandersson (2008-2009). Lárus Skúlason og framfaraskeið á Hellissandi, bls. 51-52. Breiðfirðingur, 62, bls. 36-64.
- 2Kristinn Kristjánsson (1995). Upphaf skólahalds á Hellissandi. Kaflar úr lengri ritgerð. Breiðfirðingur, 53, bls. 154-176.
- 3Skúli Alexandersson (2008-2009).
- 4Kristinn Kristjánsson (1995), bls. 155.
Deila færslu
Síðast uppfært 6. júní, 2025