Skipasund 85, Reykjavík
Saga:
Elsta teikning af húsinu númer 85 við Skipasund í Reykjavík er frá því í október 1951. Teikningin er gerð af Guðmundi H. Þorlákssyni byggingameistara. Þar teiknar hann útlit húss sem sagt er að flutt sé á lóðina frá Aðalstræti 6a og stækkað. Á teikningu frá 1954 kemur fram að einungis nyrsti hluti hússins sé byggður, en þá var samþykkt að settur verði kvistur á þann hluta hússins og viðbygging við suðurgafl hússins, sem nær austur og vestur fyrir upphaflega húsið. Þá er Kristfinnur Jónsson (1924-2007) sagður eigandi hússins, en hann fékk lóðina leigða árið 1953.1Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skipasund 85. Sótt 3. júní 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5000-A%C3%B0aluppdr%C3%A6ttir/?q=%22Skipasund%2085%22; Fasteignaskrá. Skipasund 85, Reykjavíkurborg. Sótt 3. júní 2025 af https://vefuppfletti.fasteignaskra.is/leit.
Árið 1954 eru fyrstu íbúar hússins skráðir í manntali. Það voru þau Kristfinnur Jónsson bifreiðasmiður, Sigrún Sigurjónsdóttir (1931-2017) kona hans og Jón (f. 1949) sonur þeirra.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1954 II. 7. hluti: Sigluvogur – Suðurlandsbraut. Sótt 3. júní 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1951-1960/manntal-i-reykjavik-1954-ii-7.-hluti.pdf.
En hvaða hús var það sem flutt var í Skipasund 85 árið 1951? Í Alþýðublaðinu í september 1951 er sagt frá því að bæjarráð hafi úthlutað lóðinni Skipasund 85 fyrir húsið Aðalstræti 6b, sem flutt var af Morgunblaðslóðinni.3Alþýðublaðið (1951, 18. september). 32. árg., 211. tbl., bls. 4. Þá stóð til að byggja stórhýsi fyrir Morgunblaðið á lóðinni og voru því öll hús sem stóðu á lóðinni Aðalstræti 6 ýmist flutt af lóðinni eða þau rifin fyrir 1951. Eitt þessara húsa var flutt að Efstasundi 99 í Reykjavík og lesa má um það hér: https://husaflutningar.is/efstasund-99-reykjavik/.
Í heimildum um hús sem stóðu á lóðinni Aðalstræti 6 sést að þar stóðu nokkur hús sem ýmist voru skráð Aðalstræti 6, 6a eða 6b. M.a. má nefna íbúðarhús, geymslur, járnsmiðjur og rakarastofu. Ekkert flatarmál þessara húsa passar við mál á fyrstu teikningum af húsinu við Skipasund. Fyrir utan íbúðarhúsið sem flutt var í Efstasund lét Sigurður Jónsson (1844-1935), sem átti það hús lengi, byggja íbúðarhús á lóðinni árið 1903, sem Bjarnhéðinn Jónsson (1876-1920) járnsmiður keypti. Er hugsanlegt að það hús hafi verið flutt í Skipasund 85. Þó það hús sé nefnt hér er ekki fullvíst að það sé húsið sem var flutt, en eins og fram kemur hér að ofan var flutningshúsið ýmist skráð sem Aðalstræti 6a eða 6b.4Borgarsögusafn. Húsaskrá Reykjavíkur; Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987). Kvosin. Byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur, bls. 70. Reykjavík: Torfusamtökin
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. júní, 2025
Heimildaskrá
- 1Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skipasund 85. Sótt 3. júní 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5000-A%C3%B0aluppdr%C3%A6ttir/?q=%22Skipasund%2085%22; Fasteignaskrá. Skipasund 85, Reykjavíkurborg. Sótt 3. júní 2025 af https://vefuppfletti.fasteignaskra.is/leit.
- 2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1954 II. 7. hluti: Sigluvogur – Suðurlandsbraut. Sótt 3. júní 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1951-1960/manntal-i-reykjavik-1954-ii-7.-hluti.pdf.
- 3
- 4Borgarsögusafn. Húsaskrá Reykjavíkur; Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987). Kvosin. Byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur, bls. 70. Reykjavík: Torfusamtökin
Deila færslu
Síðast uppfært 4. júní, 2025