Bergstaðastræti 6c í Reykjavík árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðrson. Borgarsögusafn Reykjavíkur. Ljósmyndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0061.
Bergstaðastræti 6c í Reykjavík árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðrson. Borgarsögusafn Reykjavíkur. Ljósmyndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0061.

Skerplugata 9, Reykjavík

Byggingarár: 1908
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Guðmundur Ingimundarson og Guðrún Magnúsdóttir
Aðrir eigendur:
1910: Kristinn Guðmundsson
Upphafleg staðsetning: Bergstaðastræti 6c, Reykjavík
Flutt: 1990 að Skerplugötu 9 í Skerjafirði, Reykjavík
Skerplugata 9 2

Bergstaðastræti 6c nýkomið á Skerplugötuna í júní 1990. Séð út um glugga á Bergstaðastræti 8. Gömul hús í nýju hverfi (1990, 23. júní). Dagblaðið – Vísir, 80. og 16. árg., 141. tbl., bls. 23.

Skerplugata 9 3

Saga:

Árið 1908 byggði Guðmundur Ingimundarson (á Bergsstöðum, 1840-1921) timburhús á lóð númer 6c við Bergstaðastræti. Hinn 26. september það ár var húsið virt til brunabóta. Í matsgjörðinni segir að Guðmundur hafi rifið niður geymsluhús, hlöðu og fjárhús á lóð sinni og byggt einlyft íbúðarhús með porti, kvisti í gegn og risi. Húsið var byggt af binding, klætt utan með borðum á 3 vegu og á þaki. Eldvarnargafl var að sunnanverðu. Niðri voru 4 íbúðarherbergi, eldhús og 2 skápar, allt þiljað og herbergin með striga og pappír á veggjum og loftum, allt málað. Þar voru 2 ofnar og ein eldavél. Uppi voru 5 íbúðarherbergi, eldhús og 3 skápar, allt þiljað og málað. Þar voru 3 ofnar og ein eldavél. Kjallari með steinsteyptu gólfi var undir öllu húsinu, hólfaður í 5 geymsluherbergi og gang. Við norðurgafl var inngönguskúr, sem byggður var eins og húsið. Við vesturhlið var einnig inn- og uppgönguskúr með kjallara, byggður eins og húsið. Í honum voru 4 gangar og einn skápur.

Fyrir vestan húsið var nýbyggt heyhús úr binding. Áfast við það að austan var hesthús, einnig nýbyggt.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar 1905-1911. Aðfnr. 736.

Eiginkona Guðmundar var Guðrún Magnúsdóttir (f. 1850). Þau áttu húsið þó ekki lengi því árið 1910 var eigandi þess orðinn Kristinn Guðmundsson (f 1881) bakari, sonur þeirra. Þau voru skráð til heimilis í Bergstaðastræti 6a í manntali frá 1910. Þar er Kristinn skráður sem leigjandi. Í þessu manntali voru 17 manns skráð í Bergstaðastræti 6c, allt leigjendur, bæði fjölskyldur og ein­staklingar.2Þorsteinn Jónsson (2011). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg. Aðalstræti – Bergstaðastræti 8, bls. 303. Reykjavík: Sögusteinn; Þjóðskjalasafn Íslands. Manntal 1910. Sótt 5. október 2023 af https://manntal.is/.

Um 1990 var húsið flutt að Skerplugötu 9 í Litla Skerjafirði, en þangað var fluttur talsverður fjöldi húsa sem þurftu að víkja af sínum upprunalega stað vegna nýbygginga og annarra framkvæmda.3Gömul hús í nýju hverfi (1990, 23. júní). Dagblaðið – Vísir, 80. og 16. árg., 141. tbl., bls. 23.

Við Bergstaðastrætið var reist bílastæðahús.

Þess má geta að um svipað leyti var húsið númer 8 við Bergstaðastræti í Skerjafjörð og varð númer 4 við Skerplugötu, þannig að enn eru húsin nágrannar.

 

Leitarorð: Skerjafjörður

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. janúar, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. janúar, 2025