Akurprýði, Sunnubraut 2, Akranesi, er ljósa húsið fyrir miðri mynd. Myndin er tekin á tímabilinu 1930 til 1949. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 55727. Hluti myndar. Sjá neðar.
Akurprýði, Sunnubraut 2, Akranesi, er ljósa húsið fyrir miðri mynd. Myndin er tekin á tímabilinu 1930 til 1949. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 55727. Hluti myndar. Sjá neðar.

Skátafell við Akrafjall

Heiti: Akurprýði - Skátafell
Byggingarár: 1903-1904
Horfið: ≈ 1983
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Einar Gíslason og Guðlaug Sigurðardóttir
Aðrir eigendur:
≈ 1980: Skátafélag Akraness
Upphafleg staðsetning:

Sunnubraut 2, Akranesi

Flutt:

Um 1980 að Akrafjalli vestanverðu

Saga:

Á árunum 1903 til 1904 byggðu hjónin Einar Gíslason (1869-1952) og Guðlaug Sigurðardóttir (1854-1939) sér íbúðarhús á miðjum Skipaskaga á Akranesi og nefndu Akurprýði. Húsið fékk síðar númer 2 við Sunnubraut. Þau stunduðu þau hjón mikla kartöflurækt en Einar stundaði sjómennsku alla ævi á meðan heilsa hans leyfði.

Skátafélag Akraness átti lítinn útileguskála vestan við Akrafjall, sem kallaður var Skátafell. Kveikt var í honum veturinn 1976 til 1977 og var það mikið tjón fyrir félagið. Skátafell var tilvalinn staður fyrir helgarútilegur, en þangað var einungis hálftíma gangur, svo ferðakostnaður var enginn.

Um 1980 fengu skátarnir húsið Akurprýði til að flytja upp að Akrafjalli, enda var húsið orðið fyrir þar sem það stóð við Sunnubraut. Skálinn varð oft fyrir miklum skemmdum, rúður voru brotnar og oft reynt að kveikja í honum. Tveimur eða þremur árum eftir flutning þess var húsið annað hvort rifið eða kveikt í því.1Minningarorð um Einar Gíslason (1952, 8. febrúar). Morgunblaðið, 39. árg., 31. tbl., bls. 11; Sigurlína Guðmundsdóttir (2015, 19. ágúst). Húsanöfn á Akranesi. Sótt 29. apríl 2026 af https://www.akranes.is/static/files/2015/Myndir-med-frettum/husanofn-a-akranesi.pdf; Smávegis frá Skátafélaginu (1977, 1. apríl). Umbrot, 4. árg., 4. tbl., bls. 11; Þjóðbjörn Hannesson (2023, 4. september). Munnleg heimild; Erla Dís Sigurjónsdóttir, héraðsskjalavörður Héraðsskjalasafns Akraness (2026, 26. mars). Tölvupóstur.

Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 55727. 1 Kirkjubraut 12 2 Kirkjubraut 14 (Akurgerði) 3 Kirkjubraut 16 (Hvítanes) 4 Kirkjubraut 18 (Andvari) 5 Kirkjubraut 22 (Efstibær) 6 Kirkjubraut 28 (Hákot) 7 Kirkjubraut 33 (Nes) 8 Kirkjubraut 36 (Steinstaðir) 9 Kirkjubraut 40 (Brautarholt) 10 Kirkjubraut 42 (Dagsbrún) 11 Kirkjubraut 46 (Tryggvaskáli) 12 Kirkjubraut 48 (Arnardalur) 13 Skagabraut 2 14 Skagabraut 6 (Berg) 15 Skagabraut 6 (útihús) 16 Skagabraut 8 (Björk) 17 Skagabraut 8 (útihús) 18 Skagabraut 7 19 Skagabraut 13 20 Skagabraut 15 (Strýta) 21 Skagabraut 10 (Esjuberg) 22 Skagabraut 19 (Efra-Nes) 23 Skagabraut 21 (Sigtún) 24 Skagabraut 23 25 Skagabraut 25 26 Skagabraut 28 27 Skagabraut 34 28 Skagabraut 36 29 Skagabraut 38 30 Skagabraut 40 (Varmidalur) 31 Skagabraut 41 (Fögrugrund) 32 Akurgerði 22 (Ólafsvellir) 33 Akurgerði 19 34 Sunnubraut 2 (Akurprýði) 35 Sunnubraut 5 36 Sunnubraut 6 (Efstibær) 37 Sunnubraut 26 (Melaleiti) 38 Sunnubraut 30 39 Suðurgata 104 (Bæjarstæði) 40 Suðurgata 107 (Torfustaðir) 41 Suðurgata 118 (Svanahlíð) 42 Suðurgata 120 (Bakkabúð) 43 Suðurgata 122 (Vindás) 44 Suðurgata 124 45 Suðurgata 126 46 Suðurgata 97 47 Suðurgata 96 48 Suðurgata 102-104 (Bakkagerði).

 

Þess má geta að Skátafélag Akraness fékk annað hús á Akranesi til eignar og nýtti sem skátaskála. Lesa má um það hús hér: Hákot, skátaskáli Leirárdal – Húsaflutningar.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. apríl, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. apríl, 2026