Laugavegur 37b í Reykjavík árið 2016. Ljósm.: Höfundur.
Laugavegur 37b í Reykjavík árið 2016. Ljósm.: Höfundur.

Norðurgata 21, Árborg

Byggingarár: 1894
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Guðmundur Hallsson
Aðrir eigendur:
1894: Jón Þorleifsson
1904: Árni Jónsson
Upphafleg staðsetning: Laugavegur 37, Reykjavík
Fyrst flutt: 1906 að Laugavegi 37b, Reykjavík
Aftur flutt:
2021 í Hafnarfjörð til geymslu
2023 að Norðurgötu 21 í Tjarnabyggð, Árborg
Hvernig flutt: Í heilu lagi
IMG_5905

Laugavegur 37b á leið á endanlegan stað við Norðurgötu 21 í Árborg árið 2023. Ljósm.: Elfa Dögg Þórðardóttir. Mynd í eigu Erlings Vals Friðrikssonar. 

1000007317

Húsið komið á nýjar undirstöður við Norðurgötu 21 í Árborg í júlí 2025. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Í fasteignaskrá kemur fram að byggingarár hússins, sem nú stendur við Norðurgötu 21 í Tjarnabyggð í Sveitarfélaginu Árborg sé árið 2023. Það mun þó ekki vera rétt, en á aðaluppdrætti af húsinu, dags. 29. júní 2023 segir m.a.:

Lagðir eru inn til samþykktar uppdrættir að uppbyggingu lóðarinnar nr 21 við Norðurgötu í Árborg. Um er að ræða niðursetningu flutningshúss á lóðina.
Húsið sem um ræðir að flytja á lóðina stóð áður á lóð nr 37b við Laugaveg í Reykjavík og var reist þar árið 1894, samkvæmt gögnum frá Minjastofnun Íslands. Húsið er einlyft timburhús með risi undir mansardþaki og stóð upphaflega á kjallara og hefur staðið á öruggum vörslustað síðan það var flutt af Laugavegs lóðinni. Útveggir og þak eru bárujárnsklædd.
Einangraður sökkull á púða verður steyptur undir flutningshúsið á lóðinni nr 21 við Norðurgötu í Árborg.
Minjastofnun Íslands hefur samþykkt flutning þessa friðaða húss á nýja lóð við Norðurgötu 21 í Árborg.1Kortasjá Árborgar. Norðurgata 21. Sótt 4. júní 2024 af https://kort.is/arborg.

Eins og komið hefur fram var húsið sem nú stendur við Norðurgötu 21 byggt árið 1894 við Laugaveg í Reykjavík. Upphaflega stóð það fram við götuna, en var flutt innar á lóðina þegar núverandi hús nr. 37 við Laugaveg var byggt árið 1906.

Það var Guðmundur Hallsson snikkari sem byggði húsið árið 1894, en hann seldi Jóni Þorleifssyni húsið fullbúið. Það var hann sem setti á það mansardþakið og byggði inn- og uppgönguskúr við norðurhlið þess.

Árni Jónsson (1874-1931) bókhaldari eignaðist húsið árið 1904. Tveimur árum síðar flutti hann húsið innar (norðar) á lóðina og byggði reisulegt tvílyft hús í staðinn, sem enn stendur og er númer 37 við Laugaveg. Þá fékk gamla húsið númerið 37b. Árið 1906 var gamla húsinu lýst sem einlyftu timburhúsi með porti og risi. Það var klætt með járni á veggjum og þaki. Grunnflötur þess var tæpir 30 fermetrar. Því til viðbótar var inngönguskúr á norðurhlið. Kjallari var undir öllu húsinu.2Nikulás Úlfar Másson og Helga Maureen Gylfadóttir (2001). Húsakönnun. Laugavegsreitir – miðsvæði. Reykjavík: Skýrslur Árbæjarsafns nr. 86.

Um 2020 hófust framkvæmdir á lóðunum númer 37 og 37b við Laugaveg og þar í kring vegna nýs deiliskipulags. Í framhaldi af því var húsið númer 37b flutt til bráðabirgða í Hafnarfjörð til geymslu þar til endanlega yrði ákveðið hvað um húsið yrði. Líklega hefur húsið verið fært eitthvað til á lóðinni númer 37b áður en það var flutt endanlega úr Reykjavík.

Í lok júlí 2023 var húsið síðan flutt í lögreglufylgd úr Hafnarfirði að Norðurgötu 21 í Tjarnarbyggð í Árborg, skammt vestan Selfoss. Farið var um Krísuvíkurveg, Suðurstrandarveg, Þorlákshafnarveg og loks Eyrarbakkaveg. Það var Erling Valur Friðriksson sem hafði umsjón með flutningnum.3Erling Valur Friðriksson (2024, 22. júní). Tölvupóstur.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2025