Melstaður, Hlíðargötu 32, Fáskrúðsfirði
1970 að gamla fótboltavellinum, Fáskrúðsfirði
Saga:
Hjónin Jón Sveinsson (1854-1932) daglaunamaður og Solveig Bjarnadóttir (1862-1936) eru fyrst skráð í þurrabúðinni Melstað í Kolfreyjustaðasókn í Sóknarmannatali frá árinu 1896. Í fasteignamati árið 1916 er húsið nefnt Melstaðir og sagt byggt úr timbri með járnvörðu þaki og sömuleiðis járnvarið á tveimur hliðum. Grunnflötur þess var sagður vera rétt innan við 20 fermetrar, en hæð í mæni 3,76 svo væntanlega hefur verið ris á húsinu.
Árið 1918 er dóttir þeirra, Guðrún Bjarnlaug Jónsdóttir (1892-1959), orðin húsráðandi ásamt eiginmanni sínum, Bjarna Bjarnasyni (1890-1945) sjóróðramanni, en þau Jón og Solveig búa hjá þeim.
Árið 1921 flytja þau Guðrún og Bjarni í Laufás,, sem er líklega húsið sem fjallað er um hér: Laufás gamli, Fáskrúðsfirði – Húsaflutningar. Þá fluttu hjónin Hinrik Benedikt Jónsson (1885-1975) sjómaður og Arnórína Snjófríður Guðnadóttir (1880-1961) í Melstað.1Íslendingabók; Sögulegt mann- og bæjatal; Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl; Þjóðskjalasafn Íslands. Jarðir og fasteignir. Fasteignamat 1916-1918. Búðaþorp í Fáskrúðsfirði. Þar bjuggu þau þar til Snjófríður lést árið 1961, en þá flutti Hinrik til Vestmannaeyja.2Baldur Jónsson (1975, 8. júlí). Hinrik B. Jónsson frá Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið, 62. árg., 151. tbl., bls. 27.
Melstaður stóð þar sem núna stendur húsið við Hlíðargötu 32 á Fáskrúðsfirði, sem byggt var á árunum 1972-1973. Þegar til stóð að byggja nýja húsið þurfti gamli Melstaður að víkja. Húsið var þá flutt að gamla fótboltavellinum á Fáskrúðsfirði, sem er fyrir neðan húsin númer 105 og 107 við Skólaveg. Þar var sjoppa í húsinu. Höfundur veit ekki hve lengi húsið stóð þar áður en það fauk út í veður og vind.3Kristín Ágústsdóttir (2005, október). Byggingarár húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði, bls. 17. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands;
Leitarorð: Fáskrúðsfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 17. apríl, 2026
Heimildaskrá
- 1Íslendingabók; Sögulegt mann- og bæjatal; Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl; Þjóðskjalasafn Íslands. Jarðir og fasteignir. Fasteignamat 1916-1918. Búðaþorp í Fáskrúðsfirði.
- 2Baldur Jónsson (1975, 8. júlí). Hinrik B. Jónsson frá Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið, 62. árg., 151. tbl., bls. 27.
- 3Kristín Ágústsdóttir (2005, október). Byggingarár húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði, bls. 17. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands;
Deila færslu
Síðast uppfært 17. apríl, 2026