Laufás gamli, Fáskrúðsfirði
Saga:
Við Skólaveg 52a á Fáskrúðsfirði stendur húsið Laufás sem byggt var á árunum 1921 til 1923. Áður stóð á sömu lóð eldra hús með sama nafni sem var rifið áður en núverandi Laufás var byggður. Um gamla Laufás segir í skýrslu um Byggingarár húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði1Kristín Ágústsdóttir (2005, október). Byggingarár húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði, bls. 18. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands.:
Í manntali árið 1890 kemur fram að í húsinu Mel í Fáskrúðsfjarðarhreppi búa þær Jóhanna Jónsdóttir (f. 1827), sem titluð er húsfreyja, sem lifir á kaupavinnu, Málfríður (1856-1914, ekki Magnfríður eins og kemur fram hér að ofan), sem sögð er vinnukona, og kornung dóttir hennar.2Sögulegt mann- og bæjatal. Manntal 1890: Melur, Kolfreyjustaðarsókn, Suður-Múlasýsla.
Árið 1895 er húsið ýmist nefnt Melur eða Laufás og þar búa þá Guðjón Guðmundsson (1859-1929) og Áslaug Eiríksdóttir (1858-1898) kona hans. Árið eftir búa þau enn í húsinu og húsið þá nefnt Laufás.3Sigmar Magnússon (2000). Þéttbýli verður til. Um myndun Búðaþorps. Múlaþing, 27, bls. 69-76. Þegar Áslaug lést árið 1898 virðist Guðjón hafa flutt úr þorpinu.4Sögulegt mann- og bæjatal. Manntal 1901: Randversstaðir, Eydalasókn, Suður-Múlasýsla.
Árið 1901 er Geirmundur Ásgeirsson (1855-1930) skráður húsbóndi í Geirmundarhúsi í Fáskrúðsfjarðarhreppi og stundaði daglaunastörf. Eiginkona hans var Kristín Sigmundsdóttir (1844-1904).5Sögulegt mann- og bæjatal. Manntal 1890: Geirmundarhús, Kolfreyjustaðarsókn, Suður-Múlasýsla. Ekki er ósennilegt að húsið hafi verið nefnt eftir Geirmundi þann stutta tíma sem hann bjó í því.
Ekki liggur fyrir hvenær gamli Laufás var fluttur frá Hlíðargötu að Skólavegi 52a, um 55 m leið, en eflaust hefur það verið vegna þess að húsið stóð í götustæðinu þegar Hlíðargatan var lögð.
Eins og áður hefur komið fram var gamli Laufás rifinn um eða fyrir 1921.
Hér sést að þeim heimildum sem höfundur hafði aðgang að ber ekki alveg saman, en komi í ljós skýrari upplýsingar munu þær að sjálfsögðu verða nýttar.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. apríl, 2026
Heimildaskrá
- 1Kristín Ágústsdóttir (2005, október). Byggingarár húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði, bls. 18. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands.
- 2Sögulegt mann- og bæjatal. Manntal 1890: Melur, Kolfreyjustaðarsókn, Suður-Múlasýsla.
- 3Sigmar Magnússon (2000). Þéttbýli verður til. Um myndun Búðaþorps. Múlaþing, 27, bls. 69-76.
- 4Sögulegt mann- og bæjatal. Manntal 1901: Randversstaðir, Eydalasókn, Suður-Múlasýsla.
- 5Sögulegt mann- og bæjatal. Manntal 1890: Geirmundarhús, Kolfreyjustaðarsókn, Suður-Múlasýsla.
Deila færslu
Síðast uppfært 13. apríl, 2026
