Matthíasarhús, Hólmavík
Saga:
Matthías Aðalsteinsson (1888-1973) reisti sér íbúðarhús í Hamarsbæli á Selströnd, líklega árið 1930 en þar var þá talsverður uppgangur. Vonir Matthíasar um næga atvinnu þar rættust þó ekki og tók hann og eiginkona hans, Ingveldur Jónsdóttir (1902-1950), það til bragðs að flytja með sig, sína og allt sitt, þar á meðal húsið, til Hólmavíkur árið 1932.1 Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 32-33. Strandapósturinn, bls. 31. 44. árg., bls. 31-36.
Húsið stóð skammt frá húsinu sem nú stendur í Hamarsbæli.2Björn H. Björnsson (2025, 21. nóvember). Munnleg heimild.
Matthías leitaði ásjár Hrófbergshrepps (sem síðar varð Hólmavíkurhreppur). Á fundi sínum í maí 1932 ákvað hreppsnefndin að flytja hús Matthíasar Aðalsteinssonar við Hamarsbæli til Hólmavíkur.3Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 280-281. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps.
Þessari ályktun hefur svo verið hrundið tafarlaust í framkvæmd, því að sama vorið komst húsið á þann stað, sem það síðan stóð á næstu 40 árin eða svo. Og þarna bjó Matthías og fjölskylda hans upp frá því, einnig tengdasonur hans, Lýður Sigmundsson [1911-1994] (kona: Vigdís Matthíasardóttir [1930-2008]), en allra síðast Einar Sumarliðason frá Tungugröf.4Óli E. Björnsson (1990), bls. 281.
Björn H. Björnsson telur að húsinu hafi verið fleytt yfir fjörðinn dregið af bátum.5Björn H. Björnsson (2025, 21. nóvember).
Húsið var sett niður þar sem nú er suðurhlið hússins sem nú (2025) hýsir Galdur brugghús.
Afdrif Mattabæjar eru óljós. Óli E. Björnsson telur að húsið hafi verið rifið um 1972, um sama leyti og Glaumbær, en einnig er talað um að húsið hafi brunnið um 1963, meðan það var í eigu Einars Sumarliðasonar.6Óli E. Björnsson (1990), bls. 281; Gamlar Strandamyndir. Sótt 23. nóvember 2025 af https://www.facebook.com/groups/1737347376485982/permalink/3706730416214325/.
Leitarorð: Strandir – Steingrímsfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025
Heimildaskrá
- 1Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 32-33. Strandapósturinn, bls. 31. 44. árg., bls. 31-36.
- 2Björn H. Björnsson (2025, 21. nóvember). Munnleg heimild.
- 3Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 280-281. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps.
- 4Óli E. Björnsson (1990), bls. 281.
- 5Björn H. Björnsson (2025, 21. nóvember).
- 6Óli E. Björnsson (1990), bls. 281; Gamlar Strandamyndir. Sótt 23. nóvember 2025 af https://www.facebook.com/groups/1737347376485982/permalink/3706730416214325/.
Deila færslu
Síðast uppfært 1. desember, 2025