Glaumbær, Hólmavík
Saga:
Á árunum 1914 til 1915 var reistur viti í Grímsey í Steingrímsfirði.1Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson og Kristján Sveinsson (2002). Vitar á Íslandi. Leiðarljós á landsins ströndum 1878-2002, bls. 287. Kópavogi: Siglingastofnun Íslands. Vitinn þótti af vandaðri gerð og því var ákveðið að ráða þangað vitavörð, Guðmund Magnússon (1889-1966). Eiginkona hans var Vigdís Sigríður Guðmundsdóttir (1895-1977). „Ekki liggur á lausu vitneskja um hvort einnig hafi verið byggt yfir vitavörð og fjölskyldu hans eða þau hafi búið í einhverri sjóbúð sem fyrir var í eynni.“2Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 32. Strandapósturinn, 44. árg., bls. 31-36. Í örnefnaskrá eyjarinnar er nefnt að þar hafi verið sjóbúð út timbri, sem kölluð var Glaumbær.
Árið 1917 flytja þau Guðmundur og Vigdís að Bæ og eiga þar heimili til 1923 að þau flytjast til Hólmavíkur.3Björn H. Björnsson (2012, 1. júní), bls. 32. „Guðmundur Magnússon vitavörður í Grímsey, (kona hans: Vigdís Guðmundsdóttir) stundum kallaður matsmaður, slefaði húsinu úr Grímsey á Steingrímsfirði 1923.“4Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 277. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps. „Hvort þarna er húsið Glaumbær í Grímsey veit ég ekki, en víst er að upp frá því hét húsið Glaumbær á Hólmavík.“5Björn H. Björnsson (2012, 1. júní), bls. 32.
Guðmundur og hans fólk bjó í Glaumbæ til 1948 eða svo, þegar synir hans byggðu við Borgabraut. Guðmundur seldi þá Arngrími Guðbjörnssyni og Guðnýju Bergsveinsdóttur Glaumbæ. Af honum keyptu Pétur Áskelsson og Ingibjörg Benediktsdóttir (1954) og voru þau síðustu ábúendur þar.
Glaumbær var tveggja hæða, um 50-60 fermetrar að flatarmáli. Niðri var eitt herbergi (stofan) og lítið eldhús með búrkompu inn af og forstofa. Úr henni var stigi upp á loft, sem skipt var í tvö svefnherbergi. Allþröngt hefur verið setinn bekkurinn í Glaumbæ á köflum, þar voru tíðast mannmargar fjölskyldur.6Óli E. Björnsson (1990), bls. 277-279.

Glaumbær á Hólmavík. Ljósm. í eigu Hans Steinars Bjarnasonar. Heimild: Gamlar Strandamyndir Sótt 23. nóvember 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10237256015525272&set=g.1737347376485982.
Glaumbær stóð við götu sem uppnefnd var Gorgata og var hús númer 9 við þá götu. Nafnið Gorgata var notað um leiðina frá sláturhúsi K.S.H. niður á Tanga. Ekki var neitt annað heiti á götu þessari.7Óli E. Björnsson (1990), bls. 261; Arinbjörn Vilhjálmsson (2000). Húsakönnun Hólmavíkur. Handrit. Húsið stóð þar sem nú (2025) er malbikað plan á milli hússins sem Galdur Brugghús er í austan megin við planið og gamla sláturhússins (vestan þess), bak við húsið númer 7 við Höfðagötu.8Eiríkur Valdimarsson (2025, 13. nóvember). Tölvupóstur.
Húsið var jafnað við jörðu 13. ágúst 1972.9Óli E. Björnsson (1990), bls. 279.
Leitarorð: Strandir – Steingrímsfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025
Heimildaskrá
- 1Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson og Kristján Sveinsson (2002). Vitar á Íslandi. Leiðarljós á landsins ströndum 1878-2002, bls. 287. Kópavogi: Siglingastofnun Íslands.
- 2Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 32. Strandapósturinn, 44. árg., bls. 31-36.
- 3Björn H. Björnsson (2012, 1. júní), bls. 32.
- 4Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 277. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps.
- 5Björn H. Björnsson (2012, 1. júní), bls. 32.
- 6Óli E. Björnsson (1990), bls. 277-279.
- 7Óli E. Björnsson (1990), bls. 261; Arinbjörn Vilhjálmsson (2000). Húsakönnun Hólmavíkur. Handrit.
- 8Eiríkur Valdimarsson (2025, 13. nóvember). Tölvupóstur.
- 9Óli E. Björnsson (1990), bls. 279.
Deila færslu
Síðast uppfært 1. desember, 2025