Laugavegur 53b, Sólheimar, Grímsnesi
Laugavegur 53b, árið 1998. Heimild: Freyja Jónsdóttir (1998, 4. janúar). Laugavegur 53 B. Dagur – Íslendingaþættir, 16. tbl. 1997, bls. 2.
Laugavegur 53b séð frá Hverfisgötu árið 1998. Heimild: Freyja Jónsdóttir (1998, 4. janúar). Laugavegur 53 B. Dagur – Íslendingaþættir, 16. tbl. 1997, bls. 2.
Laugavegur 53b fluttur til Sólheima í Grímsnesi í febrúar 1998. Heimild: Umdeilt hús öðlast frið (1998, 16. febrúar). Dagblaðið Vísir, 88. og 24. árg., 39. tbl., bls. 2.
Laugavegur 53b í björtu báli á Sólheimum í Grímsnesi. Ljósm.: Þórir Guðmundsson. Heimild: Eldur í timburhús á Sólheimum (2007, 26. maí). Vísir. Sótt 9. maí 2025 af https://www.visir.is/g/200770526047/eldur-i-timburhusi-a-solheimum-.
Saga:
Á árunum 1901 til 1904 byggði Samúel Ólafsson (1859-1934) söðlasmiður tvílyft timburhús við Laugaveg 53b í Reykjavík.
Árið 1998 birtist ítarleg grein eftir Freyju Jónsdóttir í Íslendingaþáttum Dags. Þar segir m.a.
Fyrsta brunavirðingin var gerð 26. febrúar 1904 og var þá húsið að fullu byggt. Það er tvílyft með risi, byggt af bindingi, klætt utan með plægðum 1“ borðum, pappa og járni og með járnþaki á plægðri 1“ borða súð með pappa í milli.
Allir útveggir stoppaðir með marhálmi og er marhálmur einnig í öllum bitalögum. Á fyrsta gólfi eru þrjú íbúðarherbergi, sölubúð með borði og skápum, vinnustofa, eldhús, búr og gangur með þremur föstum skápum. Öll hæðin er þiljuð og herbergin með striga og pappa á veggjum og loftum. Allt málað. Á hæðinni eru þrír ofnar og ein eldavél. Á annarri hæð eru sex íbúðarherbergi, eldhús, búr, gangur og einn fastur klæðaskápur. Allt þiljað og herbergin með striga og pappa á loftum og veggjum, og máluð. Á hæðinni eru þrír ofnar og eldavél. Risið er óinnréttað og einn geimur. Kjallari er undir öllu húsinu, 2,5 metrar á hæð og í honum öllum er steinsteypugólf. Þar eru tvö þiljuð og máluð herbergi, fjórir geymsluklefar og tveir fastir skápar. A húsinu eru tveir reykháfar.
Við norðurhlið hússins er útbygging, byggð eins og húsið sjálft. Í henni er eitt íbúðarherbergi, tveir gangar og einn fastur skápur. Allt þiljað en herbergið með striga og pappa bæði í lofti og á veggjum. Allt málað. Þar að auki er þar einn geymsluklefi. Sveinn Jónsson var byggingarmeistari hússins.
Í brunavirðingu frá 1904 kemur fram að búið er að byggja geymsluskúr við húsið. Skúrinn er byggður af bindingi, klæddur utan með járni á langböndum á þrjá vegu og á þaki, en austurveggur er brandveggur. Í alla útveggi og þak er fyllt með sagspónum. Í norðurenda skúrsins er afþiljaður hjallur. Hinn hlutinn er hólfaður í tvö geymslurými og bæði veggir og loft eru þiljuð innan. Gólfið í skúrnum er úr plægðum borðum. Kjallari er undir hluta skúrsins, rúmir tveir og hálfur metir á hæð.
Samúel Ólafsson var fæddur 16. ágúst 1859 að Efra-Seli í Stokkseyrarhreppi. Hann nam söðlasmíði og stofnaði bæði verkstæði og verslun á Laugavegi 53 B. Þar smíðað hann reiðtygi og var með viðgerð. Samúel hafði ár hvert nokkra nema í söðlasmíði, og eins og venja var til á þessum árum bjuggu þeir á heimili meistara síns á meðan á námi stóð. …
Fyrri kona Samúels Ólafssonar hét Guðrún Jónsdóttir, fædd 1872 á Rútsstöðum í Gaulverjabæjarhreppi. Saman eignuðust þau fimm börn. Guðrún lést langt um aldur fram árið 1909.
Seinni kona Samúels var Sigríður Björnsdóttir frá Skálabrekku í Þingvallasveit. Þau eignuðust tvær dætur sem báðar eru búsettar í Reykjavík.
Samúel Ólafsson var í hugum samtíðarmanna sinna sérstakt göfugmenni og góðum gáfum gæddur. Sagt var að mikið lán hefði verið fyrir fátæka í Reykjavík þegar hann var fátækrafulltrúi. Hann skildi þá sem minna máttu sín og tók upp fyrir þá hanskann. Einnig var hann til margra ára formaður Dýraverndunarfélags Íslands ásamt mörgum fleiri störfum sem hann vann fyrir hið opinbera. Þó að Samúel Ólafssyni væri ekki um það gefið að berast mikið á var hann sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar. …
Í gegnum tíðina hafa verið ýmis konar verslanir á fyrstu hæð hússins eins og vefnaðarvara, gjafavara og tískuverslun svo fátt eitt sé nefnt. Á fyrstu hæð aðalhússins hafa, eftir að söðlaverslunin hætt, verið reknar verslanir með margskonar varning. Þar var til margra ára smekkleg gjafavöru – og blómabúð.
Ekki verður annað sagt en þetta hús hafi sérstakan sjarma. Það er einnig vottur um dugnað manns og fjölskyldu hans, sem kom austan úr sveitum og réðist í að byggja stórhýsi á þessa tíma mælikvarða. Samúel Ólafsson hafði áður byggt sér hús við Laugaveg 63, sem hann seldi þegar hann byggði húsið sem hér hefur verið fjallað um. Í gegnum tíðina hefur Laugavegi 53 B. verið breytt verulega bæði gluggum og herbergjaskipan. Þar hafa margir afkomendur þess sem húsið byggði byrjað sín fyrstu búskaparár og sumir hverjir átt þar heima svo áratugum skiptir. Á heimilum þessa húss hefur verið gestkvæmt og ekkert undarlegt við það. Húsið er í þjóðbraut og þar hefur alla tíð verið búið myndarlega og gestrisni mikil.1Freyja Jónsdóttir (1998, 4. janúar). Laugavegur 53 B. Dagur – Íslendingaþættir, 16. tbl. 1997, bls. 2.
Þegar grein þessi var birt lá fyrir að húsið yrði að víkja vegna nýbyggingar sem reisa átti á lóðinni. Í dagblöðum frá þessum tíma sést að margir mótmæltu bæði því að húsið færi og þeirri byggingu sem koma átti í staðinn, en niðurstaðan var sú að í febrúar 1998 var farið með húsið austur að Sólheimum í Grímsnesi þar sem það átti að nýtast þeirri starfsemi sem þar fer fram. Ekkert varð þó af þeim áformum því ekki fékkst leyfi til að nýta húsið þar og hlaut húsið þar þau örlög að brenna til grunna í maí 2007.2Umdeilt hús öðlast frið (1998, 16. febrúar). Dagblaðið Vísir, 88. og 24. árg., 39. tbl., bls. 2; Eldur í timburhús á Sólheimum (2007, 26. maí). Vísir. Sótt 9. maí 2025 af https://www.visir.is/g/200770526047/eldur-i-timburhusi-a-solheimum-.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 9. maí, 2025
Heimildaskrá
- 1Freyja Jónsdóttir (1998, 4. janúar). Laugavegur 53 B. Dagur – Íslendingaþættir, 16. tbl. 1997, bls. 2.
- 2Umdeilt hús öðlast frið (1998, 16. febrúar). Dagblaðið Vísir, 88. og 24. árg., 39. tbl., bls. 2; Eldur í timburhús á Sólheimum (2007, 26. maí). Vísir. Sótt 9. maí 2025 af https://www.visir.is/g/200770526047/eldur-i-timburhusi-a-solheimum-.
Deila færslu
Síðast uppfært 9. maí, 2025



