Krosseyrarvegur 2, líklega um 1985. Heimild: Guðmundur Björgvin Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 350. Útgáfustaðar ekki getið: höfundur.
Krosseyrarvegur 2, líklega um 1985. Heimild: Guðmundur Björgvin Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 350. Útgáfustaðar ekki getið: höfundur.

Krosseyrarvegur 2, Hafnarfirði

Heiti: Miðengi
Byggingarár: <1916
Horfið: 1986-1991
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sigurður Lárus Jónsson og Ingibjörg Jónasdóttir
Aðrir eigendur:
1916: Ingibjörg Jónasdóttir
Upphafleg staðsetning: : Miðengi í landi Minni-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd
Flutt: 1917 á Krosseyrarveg 2, Hafnarfirði
Hvernig flutt: Sett á uppskipunarbát sem dreginn var af mótorbáti. Allt efnið fór í sjóinn en rak á land á Álftanesi og flutt þaðan á hestvögnum í Hafnarfjörð

Saga:

Við þekkjum þróunina þegar mikill útvegur fluttist frá Vatnsleysuströndinni og til Hafnarfjarðar. Það skeði með vélvæðingunni en þá gátu menn ekki lengur sett upp báta sína. Hafnleysi háði útvegsmönnum á Vatnsleysuströndinni og þess vegna voru menn nauðbeygðir til að flytja sig um set. Margir fluttu því til Hafnarfjarðar. Og menn fluttu ekki bara báta sína og fjölskyldur heldur einnig fluttu menn með sér húsin. Byggingarefni var oft af skornum skammti svo að menn brugðu á það ráð að rífa húsin, spýtu fyrir spýtu, og endurbyggja í Hafnarfirði. Oft fylgdu nöfnin með og húsin voru í daglegu tali nefnd sömu nöfnum og hétu suður á Strönd.1Jón Kr. Gunnarsson (1998). Húsin voru rifin á Vatnsleysuströndinni og flutt inn í Hafnarfjörð. Viðtal við Jón Guðmundsson rafvirkjameistara. Í Af kunnum æskuslóðum. Viðtöl við valinkunna eldri Hafnfirðinga, bls. 98. Hafnarfirði: Rauðskinna.

Hjónin Sigurður Lárus Jónsson (1879-1916) og Ingibjörg Jónasdóttir (1886-1945) bjuggu í Miðengi, sem var grasbýli í landi Minni-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd. Húsið, sem ekki er vitað hvenær var byggt, stóð niður við sjó við landamörkin að Stóru-Vatnsleysu. Sigurður var formaður og þótti afburðasjómaður og mannkostamaður. Hann fórst með mótorbátnum Hermanni árið 1916 ásamt tveimur mágum sínum, en Sigurður var formaður á bátnum.

Eftir það flutti Ingibjörg til Hafnarfjarðar ásamt þremur börnum sínum og flutti húsið með sér. Það var reist á lóð númer 2 við Krosseyrarveg. Fyrir flutningum stóð Guðmundur Jónasson (1884-1965) bróðir Ingibjargar og samtímis var flutt hús foreldra Ingibjargar og Guðmundar, sem í raun höfðu misst fyrirvinnur sínar þegar synir þeirra tveir drukknuðu. Það hús var Nýibær, sem sett var niður við Vörðustíg 3 í Hafnarfirði og stendur enn (sjá Vörðustíg 3).2Guðmundur Björgvin Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 351. Útgáfustaðar ekki getið: höfundur.; Jón Kr. Gunnarsson (1998), bls. 101-103.

Til að flytja húsin sjósetti Guðmundur tvo gamla uppskipunarbáta sem dregnir voru af mótorbáti, sem hann fékk lánaðan hjá Ágústi Flygenring vinnuveitanda sínum. Á þeim var timbrinu komið fyrir. Flutningur Nýjabæjar gekk vel, en við flutning Miðengis kom í ljós að uppskipunarbáturinn var svo fúinn að stefnið brotnaði úr honum í mynni Hafnarfjarðar og allt timbrið fór í sjóinn. Guðmundur hafði seilað allt timbrið saman í knippi og rak hverja einustu spýtu á land á Hliði á Álftanesi. Þaðan var það svo flutt á hestvögnum inn í Hafnarfjörð.3Jón Kr. Gunnarsson (1998), bls. 103.

Við Krosseyrarveg 2 stendur nú hús sem byggt var árið 19914Fasteignaskrá (ódags.). Krosseyrarvegur 2, Hafnarfirði. þannig að hús Ingibjargar hefur verið rifið fyrir þann tíma, en þó eftir 1986, því í bók Guðmundar B. Jónssonar, Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, sem gefin var út 1987 er mynd af húsinu þar sem það stendur við Krosseyrarveg 2.5Guðmundur Björgvin Jónsson (1987), bls. 350.

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. febrúar, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Jón Kr. Gunnarsson (1998). Húsin voru rifin á Vatnsleysuströndinni og flutt inn í Hafnarfjörð. Viðtal við Jón Guðmundsson rafvirkjameistara. Í Af kunnum æskuslóðum. Viðtöl við valinkunna eldri Hafnfirðinga, bls. 98. Hafnarfirði: Rauðskinna.
  • 2
    Guðmundur Björgvin Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 351. Útgáfustaðar ekki getið: höfundur.; Jón Kr. Gunnarsson (1998), bls. 101-103.
  • 3
    Jón Kr. Gunnarsson (1998), bls. 103.
  • 4
  • 5
    Guðmundur Björgvin Jónsson (1987), bls. 350.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. febrúar, 2024