Kópnesbraut 12, Hólmavík, í kringum 2012. Heimild: Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 34. Strandapósturinn, 44. árg., bls. 31-36
Kópnesbraut 12, Hólmavík, í kringum 2012. Heimild: Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 34. Strandapósturinn, 44. árg., bls. 31-36

Kópnesbraut 12, Hólmavík

Heiti: Í Dal – Dalur - Dalurinn - Hús Gunnlaugs Magnússonar
Byggingarár: 1936 ?
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sigurgeir Áskelsson og Ólöf Gestsdóttir
Aðrir eigendur:
? : Gunnlaugur Magnússon og María Árnadóttir
? : Guðfinnur Sveinsson og Þórunn Benediktsdóttir
? : Gunnar Jóhannsson
? : Ásta Bjarnadóttir og Margeir Steinþórsson
Upphafleg staðsetning: Í Dal, Selströnd, á milli Hafnarhólma og Gautshamars
Flutt: 1948 að Kópnesbraut 12, Hólmavík
Hvernig flutt: Fleytt sjóleiðis, dregið af bát

Saga:

Í drögum af húsakönnun sem gerð var á Hólmavík um 2000 kemur fram að húsið sem nú stendur við Kópnesbraut 12 á Hólmavík sé byggt árið 1948 og að því hafi verið fleytt frá Selströnd. Í fasteignaskrá er húsið hins vegar sagt byggt árið 1936.1Arinbjörn Vilhjálmsson (2000). Húsakönnun Hólmavíkur. Handrit. Sótt 27. nóvember 2025 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_257.pdf;  Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Fasteignaskrá. Sótt 28. nóvember 2025 af  https://hms.is/fasteignaskra. Verið getur að það sé upphaflegt byggingarár hússins á Selströnd en það hafi verið flutt 1948.

Það var Sigurgeir Áskelsson (1901-1975) frá Bassastöðum sem byggði húsið í Dal. Það stóð upp af Helganesi á milli Gautshamars og Hafnarhólms. Hann reri á eigin trillu, en var víða þekktur fyrir gúmmískó sem hann gerði og losuðu menn við sauðskinnsskóna. Eiginkona hans var Ólöf Gestsdóttir (1907-1997).2Guðmundur Guðni Guðmundsson (1987, 1. júní). Hamarsbæli, bls. 116. Strandapósturinn, 21. árg., bls. 107-118; Minning: Ólöf Gestsdóttir (1997, 9. október). Morgunblaðið, 85. árg., 229. tbl., bls. 38.

Það voru hjónin Gunnlaugur Magnússon (1920-2008) og María Árnadóttir (1922-1975) sem fluttu húsið með sér þegar þau fluttust til Hólmavíkur frá Dal á Selströnd. Húsið var flutt sjóleiðis aftan í bát, með aðstoð Árna Andréssonar (1895-1964), föður Maríu, en segja má að hafi sérhæft sig í þess konar húsaflutningum. Um svipað leyti flutti hann sitt eigið hús frá Gautshamri til Hólmavíkur og varð það hús skráð að Hafnarbraut 7. Hann hafði einnig flutt hús frá Drangsnesi að Gautshamri árið 1929.3Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 162-163. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps; Björn H. Björnsson (2025, 21. nóvember). Munnleg heimild; Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 36. Strandapósturinn, 44. árg., bls. 31-36

Sagan segir að Gunnlaugur hafi staðið í eldhúsinu og bakað pönnukökur á meðan húsið fór í sjóferð sína.4Gamlar Strandamyndir. Sótt 28. nóvember 2025 af https://www.facebook.com/groups/1737347376485982/permalink/2941760919377949/.

„Gunnlaugur fluttist fljótlega til Akraness. Guðfinnur Sveinsson og Þórunn Benediktsdóttir bjuggu næst í húsinu fá ár, síðar Gunnar Jóhannsson og loks Ásta Bjarnadóttir og Margeir Steinþórsson.“5Óli E. Björnsson (1990), bls. 163.

Kópnesbraut 12, Hólmavík, júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.

Leitarorð: Strandir – Steingrímsfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025