Hafnarbraut 7, Hólmavík um 1990. Heimild: Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 81. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps;
Hafnarbraut 7, Hólmavík um 1990. Heimild: Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 81. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps;

Hafnarbraut 7, Hólmavík

Heiti: Gautshamar - Grímeyjarhús
Byggingarár: 1932
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Árni Andrésson og Þuríður Guðmundsdóttir
Aðrir eigendur:
1949: Aðalsteinn Aðalsteinsson og Grímey Jónatansdóttir
1951: Grímey Jónatansdóttir
? : Guðjón Magnússon
? : Halldór Halldórsson
1977: Jón K. Vilhjálmsson
1986: Guðjón Halldórsson og Ragnheiður Guðmundsdóttir
1987: Ragnheiður Guðmundsdóttir
Upphafleg staðsetning: Gautshamar á Selströnd við Steingrímsfjörð
Flutt: 1948 að Hafnarbraut 7, Hólmavík

Saga:

Árið 1929 gengu þau Árni Andrésson (1895-1964) og Þuríður Guðmundsdóttir (1901-1992) í hjónaband. Þau hófu búskap á Bæ á Selströnd, þar sem Þuríður var uppalin og kenndi hún sig alla tíð við þann bæ. Í Bæ eignuðust þau Árni þrjú börn, en alls áttu börnin eftir að verða tólf talsins.1„Mig hefur alltaf langað til að skrifa“ (1982, 6. febrúar). Þjóðviljinn, 47. árg., 29. – 30. tbl., bls. 16-17.

Þegar þau fluttu frá Bæ að Gautshamri árið 1929 fluttu þau með sér íbúðarhús sem þau höfðu byggt þar. Lesa má um það hús hér: Gautshamar, Selströnd, Steingrímsfirði.

Mikið var umleikis að Gautshamri og oft margir í heimili. Þau byggðu því stærra hús árið 1932. Í því húsi bjuggu þau þar til þau fluttu frá Gautshamri til Hólmavíkur árið 1948. Þá fluttu þau húsið sem þau höfðu byggt árið 1932 með sér til Hólmavíkur, en ekki settust þau að í húsinu, heldur seldu það Aðalsteini Aðalsteinssyni og Grímeyju Jónatansdóttur (1908-1997). Eftir lát Aðalsteins árið 1951 bjó Grímey áfram í húsinu og var húsið síðan kennt við hana og nefnt Grímeyjarhús.2Þuríður Guðmundsdóttir (1983, 1. júní). Hugsað heim. Strandapósturinn, 17. árg., 1. tbl., bls. 28-35; „Mig hefur alltaf langað til að skrifa“ (1982, 6. febrúar); Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 80-82. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps.

Næstu eigendur voru: Guðjón Magnússon frá Ósi sem endurbætti húsið, Halldór Halldórsson á Hrófbergi, hann bjó þar þó ekki, Magnús Magnússon Ingimundarsonar og Jón K. Vilhjálmsson (1977). Loks keypti Guðjón Halldórsson frá Heiðarbæ þetta hús 1896, en auðnaðist ekki að búa í því neitt sem hér, því hann lést ekki löngu síðar, 14. maí 1987. Síðan hefur ekkjan, Ragnheiður Guðmundsdóttir [1915-2003] , búið í húsinu.3Óli E. Björnsson (1990), bls. 82.

Eftir að þetta var skrifað hefur húsið skipt um eigendur.

Grímeyjarhús, Hafnargötu 7, Hólmavík, í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.

 

Leitarorð: Strandir – Steingrímsfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025