Klapparstígur 6, Ytri-Njarðvík, Reykjanesbæ í júlí 2024. Ljósm.: https://www.google.com/maps.
Klapparstígur 6, Ytri-Njarðvík, Reykjanesbæ í júlí 2024. Ljósm.: https://www.google.com/maps.

Klapparstígur 6, Ytri-Njarðvík, Reykjanesbæ

Heiti: Hábær
Byggingarár: ≈ 1929
Upphafleg notkun: Vöruhús
Fyrsti eigandi: Sveinn Pálsson og Anna Guðmundsdóttir

Saga:

Árið 1928 keyptu hjónin Sveinn Pálsson (1886-1970) og Anna Guðmundsdóttir (1894-1983) jörðina Hábæ í Vogum á Vatnsleysuströnd og fluttu þangað í september það ár. Íbúðarhúsið sem þau keyptu stendur enn við Tjarnargötu 3 í Vogum. Lesa má um það hér: Tjarnargata 3, Vogum – Húsaflutningar

Hafði Sveinn þá verið ráðinn bifreiðastjóri á mjólkurflutningabíl fyrir bændasamtök í hreppnum. …

Sveinn var búfræðingur, enda urðu umtalsverðar breytingar í Hábæ þegar hann lét byggja fjós, heyhlöðu og fóðurgeymslu við norðurendann árið 1929. Sama ár setti Sveinn upp verslun, þá fyrstu hér í hrepp, íbúum til mikils hagræðis. Hann var fyrstur með algera rafvæðingu á sínu heimili. Hann steypti safnþró og byggði þar yfir timburhús með rafvélina í norðurenda hússins og verslunarvörulagerinn í suðurendanum. Ris var á húsinu sem var notað eitt ár sem verbúð. Þegar hreppurinn var rafvæddur 1947-8, seldi Sveinn rafvélarnar. Vöruhúsið var síðan flutt í heilu lagi til Ytri-Njarðvíkur og í því er búið enn (Klapparstígur 6). Anna Guðmundsdóttir var fyrsti formaður Kvenfélagsins Fjólu í Vatnsleysustrandarhreppi, en það var stofnað árið 1925. Anna var í stjórn félagsins í tugi ára og vel virk. Hún varð oft að stjórna stóru heimili í Hábæ, því Sveinn stóð allmikið í framkvæmdum, auk þess bættust við annir samfara versluninni. Þau hjónin voru góðir gestgjafar. Sveinn var ávallt kátur og glettinn og hló smitandi hlátri. Hann var greindur vel, alger bindindismaður og lagði mörgum góðum málum lið.1Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 74. [Útg.staðar ekki getið:] Höfundur.

Sú sem þetta ritar veit ekki með vissu hvenær vöruhúsið var flutt að Klapparstíg 6 í Ytri-Njarðvík, en það hefur verið á árunum 1948 til 1954, því það sést á loftmynd frá árinu 1954. Húsið stendur enn við Klapparstíginn en eflaust hefur það verið stækkað eitthvað.

 

Leitarorð: Vogar

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. janúar, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. janúar, 2026