Lágreista húsið, framarlega vinstra megin á myndinni er Kirkjuvegur 12a í Vestmannaeyjum. Sótt 5. júlí 2024 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10225395133400001&set=p.10225395133400001&type=3.
Lágreista húsið, framarlega vinstra megin á myndinni er Kirkjuvegur 12a í Vestmannaeyjum. Sótt 5. júlí 2024 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10225395133400001&set=p.10225395133400001&type=3.

Kirkjuvegur 12a, Vestmannaeyjum

Heiti: Gata - Þorsteinsbúð - Bókabúðin - Prýði
Byggingarár: 1906
Upphafleg notkun: Verslun
Upphafleg staðsetning: Við Heimatorg, Víðisveg 9, Vestmannaeyjum
Fyrst flutt: 1926 að Kirkjuvegi, austan götu
Flutt: 1934 að Kirkjuvegi 12 A, Vestmannaeyjum
Kirkjuvegur 12a 3

Kirkjuvegur 12a í Vestmannaeyjum í júní 2010. Ljósm.: Höfundur.

Kirkjuvegur 12 4

Kirkjuvegur 12a í Vestmannaeyjum í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.

Saga:

Á vefnum Heimaslóð er uppruni hússins sem nú er númer 12a við Kirkjuveg í Vestmannaeyjum rakinn til ársins 1906. Þegar hið reisulega hús Jómsborg var byggt árið 1912 við Víðisveg 9 varð húsið syðsti hluti Jómsborgar, eins konar viðbygging við það. Árið 1926 var húsið flutt á Kirkjuveg austanverðan. Þar stóð það við hlið hússins Rafnseyri (sjá hér), en bæði þessi hús þurfti að færa til þegar legu Kirkjuvegar var breytt árið 1934. Rafnseyri var flutt á Faxastíg en þetta hús yfir götuna. Þá hefur húsið sennilega runnið saman við tómthús sem þar stóð fyrir og nefndist Gata, þar sem hreppurinn hafði áður fyrr „geymt“ þurfalinga sína.

Í húsinu var fyrst rekin skóbúð, en í október árið 1926 opnaði Þorsteinn Johnson (1884-1959) þar bókabúð. Óskar Þorsteinsson (1915-1999), sonur Þorsteins, tók síðan við bókabúðinni og rak hana fram að gosi. Eftir gos hefur margvísleg starfsemi verið í húsinu, m.a. reiðhjólaverkstæði, trésmíðaverkstæði og Gallerý Prýði.1Heimaslóð (2013, 22. janúar). Byggðin undir hrauninu. Jómsborg. Sótt 5. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/J%C3%B3msborg; Heimaslóð (2013, 22. janúar). Húsin á Heimaey. Bókabúðin. Sótt 5. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/B%C3%B3kab%C3%BA%C3%B0in; Arnar Sigurmundsson (2010, 22. júní). Tölvupóstur.

Á loftmyndinni er hvítur ferhyrningur utan um Víðisveg 9. Heimild: https://www.map.is/vestm/.

 

Leitarorð: Vestmannaeyjar

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. júlí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. júlí, 2024