Tjarnargata 12, Keflavík, líklega 1982. Hluti úr mynd. Heimild: Guðjón M. Guðmundsson (1982, 1. apríl). Eftirminnilegt ferðalag tólf ára drengs. Faxi, 42. árg., 3. tbl., bls. 68-69.
Tjarnargata 12, Keflavík, líklega 1982. Hluti úr mynd. Heimild: Guðjón M. Guðmundsson (1982, 1. apríl). Eftirminnilegt ferðalag tólf ára drengs. Faxi, 42. árg., 3. tbl., bls. 68-69.

Hafnagata 10, Höfnum, Reykjanesbæ

Heiti: Þórukot
Byggingarár: 1906 ?
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: ?
Upphafleg staðsetning: Tjarnargata 12, Keflavík, Reykjanesbæ
Flutt: 1980 að Hafnagötu 10, Höfnum, Reykjanesbæ
Hafnagata 10 2

Hafnagata 10, Höfnum, Reykjanesbær í ágúst 2013. Ljósm.: https://www.google.com/maps.

Hafnagata 10 (1)

Saga:

Þar sem ráðhús Reykjanesbæjar stendur nú við Tjarnargötu 12 í Keflavík stóðu áður nokkur hús, sem þurftu að víkja þegar svæðið var endurskipulagt. Líklega hafa öll húsin verið byggð um svipað leyti, en heimildir eru til um að húsið númer 14 hafi verið byggt árið 1906.

Meðal annars þurftu húsin númer 12 og 14 við Tjarnargötu að víkja. Þau voru flutt í Hafnir árið 1980 og urðu þar Hafnabraut 8 og 10.1Margrét Lilja Margeirsdóttir (2019, júní). Hafnir á Suðurnesjum. Skipulagstillaga, bls. 43. MS-ritgerð. Auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands.

Í júlí árið áður hafði Gunnar Sveinbjörnsson gert lóðarleigusamning við hreppsnefnd Hafnahrepps um lóðir við Hafnagötu, Gunnarsholt og Þórukot, til að byggja á þeim íbúðarhús. Í yfirlýsingu frá sveitarstjóra Hafnarhrepps árið 1982 segir að Gunnarsholt skuli vera númer 8 við Hafnagötu og Þórukot númer 10.2 Gögn í skjalasafni Reykjanesbæjar.

Í gögnum Reykjanesbæjar hafa ekki fundist heimildir um hvaða hús var sett niður á hvorri lóð, en Gunnar Sigurðsson, sem átti húsið númer 12 við Tjarnargötu segir að það hús standi nú við Hafnabraut 10 í Höfnum. Auk þess sést á mynd af húsinu frá 1998 að húsið númer 8 við Hafnagötu var portbyggt, en húsið númer 10 er það ekki.3Guðmundur Sigurðsson (2020, 26. nóvember). Tölvupóstur; Hafnabraut 8, Höfnum (1998, 15. október). Víkurfréttir, 19. árg., 40. tbl., bls. 2.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025