Grundarstígur 15, Flateyri árið 1992. Ljósm.: Gagnasafn Húsafriðunarnefndar.
Grundarstígur 15, Flateyri árið 1992. Ljósm.: Gagnasafn Húsafriðunarnefndar.

Grundarstígur 15, Flateyri

Heiti: Maríuhús - Kiwanishúsið
Byggingarár: 1912-1914
Upphafleg notkun: Verbúð
Fyrsti eigandi: Jón og Kristján Eyjólfssynir
Aðrir eigendur:
1921: María Einarsdóttir, ekkja Kristjáns
Upphafleg staðsetning: Valþjófsdalur, Önundarfirði
Flutt: 1922 að Grundarstíg 15, Flateyri
Hvernig flutt: Settar undir húsið sleskjur og tunnur bundnar við það og fleytt yfir fjörðinn

Saga:

Hús þetta byggðu bræðurnir Jón og Kristján Eyjólfssynir frá Kirkjubóli í Valþjófsdal á árunum 1912-14 sem verbúð á svonefndum Mölum í Valþjófsdal, vestan við Önundarfjörð, gegnt Flateyri. Þeir bræður ráku útgerð í Valþjófsdal til ársins 1921 þegar Kristján fórst í sjóróðri í september ásamt skipsfélögum sínum. Mest gerðu þeir bræður út þrjá báta.

Grundarstígur 15, Flateyri, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.

Húsið smíðaði Guðmundur Pétursson (1891-1993), sem ættaður var úr Strandasýslu. Hann flutti húsið einnig yfir Önundarfjörð, þar sem það var sett niður við Grundarstíg 15 á Flateyri árið 1922.1Guðmundur Björn Hagalínsson (1992, 12. mars). Bréf til Húsafriðunarnefndar. Verknr. 2109 í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Um þetta hús sagði Guðmundur smiður í viðtali sem tekið var við hann:

Ég man eftir Dalsbræðrum, Kristjáni og Jóni Eyjólfssonum. Þeir gerðu út mótorbát frá Valþjófsdal og fengu mig til að byggja verbúð niður við sjóinn, þetta var talsvert stórt hús 8 x 12 álnir. Þriðji bróðirinn hét Jens og varð síldarspekúlant fyrir norðan. Hann keypti svo á Flateyri verslun af Bergi Rósinkranssyni og nefndi hana „Bræðurnir Eyjólfsson.“ En eitthvað mun honum ekki hafa litist á fyrirtækið þegar frá leið, því hann yfirgaf það og flutti norður í land. Jón bróðir hans tók þá við versluninni en Kristján var áfram með útgerðina. En svo ferst hann í fiskiróðri á mótorbát sínum og þá var úti um útgerðina. Ekkja Kristjáns, María Einarsdóttir, vill þá flytja til Flateyrar og þar sem ekki voru lengur nein not af húsinu sem byggt hafði verið fyrir útgerðina vill hún flytja húsið líka. María og Kristján voru foreldrar Þorvaldar Garðars Kristjánssonar alþingismanns. Þar sem nú er ákveðið að flytja húsið er ég fenginn til að sjá um flutninginn. Ég lyfti því af grunninum setti undir það sleskjur og batt svo tunnur utan á. Þessi flutningur gekk vel og ég held að nær hvert mannsbarn á Flateyri hafi fylgst með og komið til að vera við landtökuna.2Þorsteinn Matthíasson (1985). Hrafnistumenn III. Minningar og frásagnir vistmanna og kvenna á Dvalarheimilum aldraðra sjómanna, Hrafnistu, skráðar af Þorsteini Matthíassyni, bls. 77-78. Reykjavík: Sjómannadagsráð

María Einarsdóttir, ekkja Kristjáns, bjó í húsinu á Flateyri ásamt börnum sínum. Húsið var 48,45 fermetrar að grunnfleti, en við vesturhlið hússins var lítill inngangsskúr. Um tíma var húsinu skipt eftir endilöngu og bjó þá Anna Eyjólfsdóttir systir Kristjáns í austurhlutanum og var þá eldhús, stofa og svefnherbergi í hvorum hluta. Anna rak kaffisölu um tíma í sínum hluta.3Guðmundur Björn Hagalínsson (1992, 12. mars).

Þess má geta að Guðmundur Pétursson smiður flutti einnig húsið við Ránargötu 2 á Flateyri, sem lesa má um hér.

 

Leitarorð: Önundarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. september, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Guðmundur Björn Hagalínsson (1992, 12. mars). Bréf til Húsafriðunarnefndar. Verknr. 2109 í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
  • 2
    Þorsteinn Matthíasson (1985). Hrafnistumenn III. Minningar og frásagnir vistmanna og kvenna á Dvalarheimilum aldraðra sjómanna, Hrafnistu, skráðar af Þorsteini Matthíassyni, bls. 77-78. Reykjavík: Sjómannadagsráð
  • 3
    Guðmundur Björn Hagalínsson (1992, 12. mars).

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. september, 2025