Stóriskáli, Básar, Goðalandi, Rangárþingi eystra
Skálinn í Básum árið 1982. Ljósm.: Útivist. Sótt 4. maí 2025 af https://www.facebook.com/utivist.
Stóriskáli í Básum 2025. Ljósm.: Magnús Ásgeirsson. Sótt 25. júní 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=24574004315533909&set=pcb.4030251973855920.
Saga:
Félagið Útivist var stofnað árið 1975. Alveg frá upphafi höfðu félagsmenn þá hugsjón að koma sér upp skála í óbyggðum með gistiaðstöðu fyrir þá sem njóta vildu ósnortinnar náttúru. Árið 1980 fékk félagið leyfi til að byggja skála undir Bólfelli á Goðalandi í Rangárþingi eystra.1Sigurþór Þorgilsson (1985). Útivist 10 ára. Sótt 4. maí 2025 af Útivist – Útivist 10 ára
Um þetta leyti fær stjórn Útivistar upplýsingar um húsið að Grettisgötu 5, sem skyldi rífa og fjarlægja. Samningur var gerður um eignaraðild að viðum þess. Húsið var hæð og ris með porti og stóð á hlöðnum kjallara 65 m2 að flatarmáli. Lítið er vitað um forsögu þessa húss framyfir það sem í ljós kom við rif þess. Fyrrum íbúi, sem átti leið hjá þegar þeir feðgar Eiríkur Eiríksson og Eiríkur Símon Eiríksson voru að rífa húsið tjáði þeim, að það hefði verið ákaflega kalt. Í ljós kom að engin einangrun var í húsinu, aðeins pappalag á milli þilja. Menn geta sér til um, að húsið hafi verið innflutt, líklega norskt. Allt efnið tilreitt í Noregi og sett upp samkvæmt teikningum og merkingum. Það sem olli vangaveltum og furðu var, að hús skyldi reist á Íslandi, þar sem hvergi var að finna nagla í grind utan eins sex þumlunga nagla í hverri sperrutá á lausholtunum. Allur burðarviðurinn voru heil tré, tilhöggvin sem kallað er. Allir viðirnir voru merktir saman með rómverskum tölum, lausholt og bitar með hökum, sem féllu í sína gróp á samsetningarstaðnum. Stoðirnar voru allar lausar, en grópaðar í grindina, lásuð saman með fleyg á milli til festingar. Stafnar voru báðir stífaðir og tekið hálft í hálft í krossinum. Húsið var allt klætt á grindina með 1 ½ þumlungs plægðum viði 6 og 8 þumlunga breiðum. Gólfborð voru einnig úr plægðum viði, 1 ¼ þumlungs þykkum. Húsið var klætt að innan með panel, strigalögðum. Hvergi var fúa að finna í húsinu enda voru menn sammála um að vel hefði blásið um viði þess.2Sigurþór Þorgilsson (1985). Útivist 10 ára. Sótt 4. maí 2025 af Útivist – Útivist 10 ára
Viðir þessa húss voru fluttir inn í Bása í Goðalandi sumarið 1980 og þeir notaðir til að byggja 86 fermetra skála með kvisti á steyptum grunni, sem Ólafur Sigurðsson arkitekt hafði teiknað. Húsið fékk heitið Stóriskáli og því nafni hefur skálinn haldið.
Gestaþraut kom upp á staðnum, er setja skyldi saman máttarviðina á nýja grunninum. Hverjum bita og hverri stoð í burðarviðum hússins varð að koma fyrir á sínum upp-runalega stað, hvert hak í stoð og bita varð að falla nákvæmlega í sitt fals, ætti húsið ekki að rísa sem ótrygg spilaborg. Fyrst varð að finna út, eftir hvaða reglu hinar rómversku tölur voru skornar á enda máttarviðanna, þar sem rómversk tala átti ekki ætíð við sömu tölu á samskeytunum. Nú hefði verið gott að njóta aðstoðar þeirra feðga, Eiríkanna, sem rifu húsið. Allt gekk þetta nú upp að lokum. Stóð þá gamla húsgrindin með göflum á báðum endum grunnsins með 5,5 m lengingu í miðju úr nýjum burðarviðum.
Eftir að vinnupallar höfðu verið reistir kringum húsið, loft- og gólfbitum komið fyrir, sperrur festar og gluggar settir á hliðar og gafla voru fánar settir upp á mæni hússins og risgjöld haldin. …
Var nú hafist handa við að klæða skálann að utan. Eldri klæðning hússins var rist í tvennt og látin mynda langbönd á skálann fyrir lóðrétta klæðningu. Tvöfalt pappalag var heft á böndin og unnið af kappi við uppsetningu á vatnsklæðningunni, sem var nýr borðviður 1×6 þumlungar, vel fúavarinn. Klætt var eftir reglunni eitt borð á tvö. Grafið var fyrir undirstöðu skorsteins, slegið upp mótum og hann steyptur upp fyrir efra gólf. Skyldi skorsteinninn þjóna ofni í skála og eldavél í eldhúsi.
Mestur hluti gólfviðarins af Grettisgötu 5, sem nokkuð var slitinn orðinn, var nýttur til klæðningar á þak. Smíðaður hafði verið vesturkvistur á húsið með góðum glugga, samkvæmt teikningunni. Þar skyldi vera rúmt opnanlegt fag fyrir útgöngu í brunastiga af rishæðinni.3Sigurþór Þorgilsson (1985). Útivist 10 ára. Sótt 4. maí 2025 af Útivist – Útivist 10 ára
Í frétt um húsið sem birtist í Þjóðviljanum í mars 1980 segir:
Undanfarna daga hefur verið unnið að niðurrifi hússins að Grettisgötu 5. Reykjavikurborg á húsið og var það metið ónýtt og óhæft til flutnings, en lóðareigandi, sem er hlutafélagið Samtún hafði i makaskiptasamningi við borgina fengið tryggingu fyrir þvi að húsið yrði fjarlægt af lóðinni.
Athygli Þjóðviljans var vakin á því í gær, hversu snyrtilega að þessu niðurrifi væri staðið, en oft má sjá niðurrifshús moluð mélinu smærra. Þegar nánar var að gáð, kom í ljós að enginn fúi er í húsinu, en timbrið hið nýtilegasta og þvi mjög verðmætt. Í því hefur félagið Útivist, sem um þessar mundir fagnar 5 ára afmæli sinu nú fjárfest og hyggst nýta það til byggingar.
Það sem enn er athyglisvert við þetta niðurrif er að hreinsunardeild borgarinnar annast það ekki, heldur fékk einkaaðili úti I bæ húsið gefins og án skuldbindinga en það er einmitt hann sem selur Útivist timbrið. Ekkert útboð fór fram.4Borgin gaf húsið til niðurrifs. Þiggjandi selur Útivist það (1980, 20. mars). Þjóðviljinn, 45. árg., 67. tbl., bls. 16.
Hér eins og svo oft þegar rætt er um húsaflutninga koma upp vangaveltur um hvort hús hafi verið flutt í orðsins fyllstu merkingu eða hvort viðir þess hafi verið notaðir þegar nýtt hús var reist. Um það verður ekki dæmt hér en full ástæða er til að halda sögu hússins til haga.
Á árunum 1988 til 1989 var byggt eldhús og matsalur við Stóraskála. Nýlega var byggt fullkomið snyrtihús við skálann, en upphaflega húsinu sem byggt var árið 1980 hefur ekki verið breytt. 5Gunnar Hólm Hjálmarsson (2025, 17. maí). Tölvupóstur.
Sama sumar og húsaviðirnir af Grettisgötu voru fluttir í Bása flutti Útivist þangað annað hús, sem fjallað er um hér: https://husaflutningar.is/braedraborgarstigur-39-basar-godalandi-rangarthingi-eystra/.
Húsið var byggt árið 1903 af Bjarna Jónssyni (1859-1915) kaupmanni og snikkara, sem var afkastamikill húsamiður í Reykjavík. Hann byggði um 150 hús á starfsævi sinni, m.a. Bjarnaborg við Vitatorg sem við hann er kennd. Húsið stóð vestan við húsið númer 38 við Klapparstíg, sem Bjarni byggði einnig, og var um tíma skráð sem Klapparstígur 38b.6Hrefna Róbertsdóttir (1993, 1. október). Fyrsta blokkin. Bjarnaborg við Vitatorg. Iðnneminn, 54. árg., bls. 74-81; Lóðauppdráttur frá 1971. Sótt 4. maí 2025 af Teikningavef Reykjavíkurborgar.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 25. júní, 2025
Heimildaskrá
- 1Sigurþór Þorgilsson (1985). Útivist 10 ára. Sótt 4. maí 2025 af Útivist – Útivist 10 ára
- 2Sigurþór Þorgilsson (1985). Útivist 10 ára. Sótt 4. maí 2025 af Útivist – Útivist 10 ára
- 3Sigurþór Þorgilsson (1985). Útivist 10 ára. Sótt 4. maí 2025 af Útivist – Útivist 10 ára
- 4Borgin gaf húsið til niðurrifs. Þiggjandi selur Útivist það (1980, 20. mars). Þjóðviljinn, 45. árg., 67. tbl., bls. 16.
- 5Gunnar Hólm Hjálmarsson (2025, 17. maí). Tölvupóstur.
- 6Hrefna Róbertsdóttir (1993, 1. október). Fyrsta blokkin. Bjarnaborg við Vitatorg. Iðnneminn, 54. árg., bls. 74-81; Lóðauppdráttur frá 1971. Sótt 4. maí 2025 af Teikningavef Reykjavíkurborgar.
Deila færslu
Síðast uppfært 25. júní, 2025

