Gestahús Einars í Garðhúsum í Grindavík. Heimild: Gísli Sigurðsson (1968, 25. ágúst). Gestahús Einars í Garðhúsum 100 ára. Morgunblaðið, 43. árg., 31. tbl., bls. 7.
Gestahús Einars í Garðhúsum í Grindavík. Heimild: Gísli Sigurðsson (1968, 25. ágúst). Gestahús Einars í Garðhúsum 100 ára. Morgunblaðið, 43. árg., 31. tbl., bls. 7.

Gestahúsið, Sjómannagarðinum, Grindavík

Heiti: Gesthús - Gestahús
Byggingarár: 1862-1870
Upphafleg notkun: Gestahús
Fyrsti eigandi: Einar Jónsson
Aðrir eigendur:
≈ 1918 ?: Einar G. Einarsson
≈ 1994 ?: Grindavíkurbær
Upphafleg staðsetning: Garðhús, Grindavík
Flutt: 1917: Snúið á lóðinni við Garðhús
Aftur flutt:
1935-1937: Fært til og snúið á lóðinni við Garðhús
1997 í Sjómannagarðinn í Grindavík
Gestahús 4

Grindavíkurbær (2022, 9. febrúar). Húsin í gamla bænum. Sótt 17. apríl 2024 af https://grindavik.is/v/25520.

20250813_172844

Gesthús í Sjómannagarðinum í Grindavík í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Páll V. Bjarnason arkitekt birti ljósmyndirnar hér til hægri á Facebook-síðu sinni árið 2016 ásamt eftirfarandi texta:

Þessar myndir eru af Gesthúsinu við Garðhús. Efsta myndir er tekin áður en endurbygging hófst. Upphaflega stóð húsið á þessum stað, en samsíða Garðhúsum. Húsið var byggt á árunum 1850 – 1970 af Einari Jónssyni hreppsstjóra, föður Einars kaupmanns, til að hýsa heldri gesti. Árið 1917 var húsinu snúið um 90° og eftir endurbyggingu árið 1997 var það flutt í Sjómannagarðinn. Myndin í miðju er tekin eftir endurbyggingu og fyrir flutning og sú neðsta eftir flutninginn, daginn sem það var opnað við hátíðlega athöfn.1Páll V. Bjarnason (2016, 19. apríl). Sótt 17. apríl 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10207558567816194&set=gm.1014689928638954.

Einar Jónsson (1838-1918) kom að Garðhúsum árið 1861 og bjó þar til dauðadags. Eiginkona hans var Guðrún Sigurðardóttir (1834-1913) „Í manntölum var [Einar] jafnan titlaður „sjávarbóndi“, enda var útgerðin höfuðatvinnuvegur hans. Hann var lengi hreppstjóri í Grindavíkurhreppi og hlaut árið 1891 heiðursverðlaun úr styrktarsjóði Kristjáns konungs IX.“2Jón Þ. Þór og Guðfinna M. Hreiðarsdóttir (1996). Saga Grindavíkur. Frá 1800-1974, bls. 63. Grindavík: Grindavíkurbær. Við búi í Garðhúsum tók Einar Guðjón sonur þeirra hjóna. Nánar má lesa um hann og hús sem hann flutti frá Garðhúsum í grein um Flagghúsið í Grindavík.

Árið 1994, þegar Grindavíkurbær var nýbúinn að eignast húsið, barst Húsafriðunarnefnd beiðni bæjarins um að húsið yrði friðlýst. Af því hefur ekki orðið, en nú er húsið friðað, eins og öll hús sem byggð voru árið 1923 eða fyrr. Í bréfi Grindavíkurbæjar með beiðni þessari segir m.a.:

Gesthúsið … er bindingsverkshús og ekki hlaðið upp í bindinginn, klætt listasúð utan og með skarsúð. Ekki eru nein merki um rennisúð á þaki. Húsið er byggt eingöngu úr rekaviði og er augljóst að margir viðirnir eru úr skipi. Aðrir viðir eru svo ormétnir svo sem tíðð er um rekavið að t.d. ein stoðin vegur innan við 2 kílógrömm og er þó ófúin. Elstu gólfborðin eru mjög misbreið og sum yfir 35 sm. Húsið hefur líklega snemma verið klætt bárujárni, bæði þak og veggir.

Húsið hefur tvisvara verið flutt til á lóðinni og er þess vegna ekki ljóst hvort hlaðið hefur verið upp í bindinginn í upphafi. Í fyrra skiptið var það flutt um 1917 er núverandi Garðhús voru byggð og sneri það þá gaflinum í suður eins og Garðhúsin. Í síðara skiptið var því nánast snúið um 90 gráður, líklega um 1935-38, e.t.v. vegna þess að það skyggði á útsýni úr Garðhúsum í átt að Grindavík. …

Húsinu hefur verið breytt á ýmsa lund í tímans rás, m.a. settur í það steinsteyptur reykháfur og stækkaðir gluggar á framhlið. Það er einnig illa farið af fúa og vanhirðu.

Hins vegar er auðvelt að lesa út úr því upphaflega gerð þess, þar sem viðir, gluggar o.fl. hafa verið endurnýttir við breytingar og hef ég m.a. fundið upphaflega glugga, gerekti, sólbekk, upphaflega liti á veggjum, oðrað þil ásamt brjóstpanil (oðruðum) í stofu og margt fleira. Málningarför sýna einnig glöggt upphaflega herbergjaskipan (aðeins eitt málningarlag er á loftum og veggjum innanhúss).3Bréf Páls V. Bjarnasonar, f.h. Grindavíkurbæjar, til Húsafriðunarnefndar dags. 5. desember 1994.

Um tíma var búið í húsinu og húsið var einnig notað sem sumarbústaður. Eftir endurbyggingu hússins var það flutt í Sjómannagarðinn í Grindavík árið 1997, þar sem það er notað sem þjónustu- og handverkshús. Húsið er nú (2024) skráð sem Mánagata 6.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025