Aðalgata 12 í Keflavík. Sótt 25. mars 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10206737375615561&set=gm.10152840210762213.
Aðalgata 12 í Keflavík. Sótt 25. mars 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10206737375615561&set=gm.10152840210762213.

Gauksstaðavegur 2, Garði

Heiti: Litla-Garðshorn - Vestra Garðshorn
Byggingarár: 1905
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sigurður Gíslason og Guðrún Þórarinsdóttir
Aðrir eigendur:
2002: Jónatan Ingimarsson
Upphafleg staðsetning: Aðalgata 12, Keflavík
Fyrst flutt: 1991-1992 að Bala á Stafnesi
Flutt: 2002 á Gauksstaðaveg 2 í Garði (Suðurnesjabæ)
Hvernig flutt: Fluttt í heilu lagi
Gauksstaðavegur 4

Litla Garðshorn híft á steinsteyptan grunn í Garði. Ljósm.: Jónatan Ingimarsson. Sótt 25. mars 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=2929667928802&set=gm.10150594930047213.

20250813_144228

Gauksstaðavegur 2, Garði, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur

Saga:

Árið 1905 byggðu hjón Sigurður Gíslason vélstjóri og Guðrún Þórarinsdóttir sér hús á Garðshornsflöt í Keflavík, sem síðar fékk númerið 12 við Aðalgötu. Byggði Sigurður hús sitt að mesu leyti sjálfur.1K. A. J. (1998, 1. desember). Garðshorn við Aðalgötu. Ættarsögubrotum raðað saman. Faxi, 58. árg., 5. tbl., bls. 120-123.

Þegar húsið hafði staðið í tæplega eina öld kom að því að breikka þurfti Aðalgötuna og var húsið þá flutt að Bala á Stafnesi árið 1991 eða 1992. Þar stóð húsið á stólpum þar til Jónatan Ingimarsson keypti húsið árið 2002 og flutti það á Gauksstaðaveg 2 í Garði, þar sem það stendur enn og er húsið þar með komið aftur í Garðhornsættina.2Jónatan Ingimarsson (2023, 4. janúar). Tölvupóstur.

Þess má geta að Garðshorn, sem var númer 14 við Aðalgötu, var einnig flutt, en eigendur þessara tveggja Garðshornshúsa tengdust fjölskylduböndum.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025