Einarsnes 56a, Reykjavík
Saga:
Húsið sem nú stendur við Einarsnes 56a í Skerjafirði í Reykjavík var upphaflega byggt sem geymsla og var bakhús við Laugveg. Húsið stóð aftan við hús númer 86 við Laugaveg. Húsið við götuna var flutt þangað árið 1922 en það hús er nú Álagrandi 4. Nú er þarna stórhýsið Laugavegur 86-94. Hægt er að komast inn í portið frá Laugavegi að þeim stað sem þar sem húsið númer 86b við Laugaveg stóð.1Nikulás Úlfar Másson og Margrét Jónsdóttir (1999). Byggingasaga. Reykjavík: Árbæjarsafn. Skýrsla númer 74.
Geymsluna við Laugaveg byggðu þeir Guðmundur Björnsson læknir og Sigvaldi Bjarnason trésmiður. Hún var einlyft hús með lágu risi, byggt af bindingi og klædd plægðum borðum, pappa, listum og járni og með járnþaki. Geymslan var um 32 fermetrar að grunnfleti og virðist ekki hafa verið hólfuð að innan.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðfnr. 735. Brunav.nr.: 899. Sótt 16. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.
Í nóvember 1916 var húsið virt að nýju, því Valdimar Árnason, sem þá var eigandi þess, hafði breytt því í íbúðarhús. Grunnflötur hússins var óbreyttur, en bætt hafði verið við inngönguskúr við vesturgafl hússins, sem var tæplega 3 fermetrar. Í húsinu voru þrjú íbúðarherbergi og eldhús og þar var nú komin vatns- og skolpleiðsla. Í risinu var geymsla.3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 26-05-1915 til 10-11-1917. Aðfnr. 738. Brunav.nr.: 899. Sótt 16. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/738-bok-26-05-1915-til-10-11-1917-adfnr-738.pdf.
Árið 1922 var ákveðið að flytja hús frá Ingólfsfirði á lóðina númer 86 við Laugaveg. „Eftir að byrjað var að reisa húsið var eiganda Laugavegs 86a gert að færa hús sitt ofar í lóðina. Í skaðabætur var það stækkað og gerður undir það kjallari.“4Nikulás Úlfar Másson (1996, 9. júlí). Bréf til Skipulagsnefndar Reykjavík. Verknr. 1226 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands Eftir þá stækkun voru 6 íbúðarherbergi á hæðinni og gangur. Hár kjallari, sem var með steypugólfi, var nú undir öllu húsinu. Þar voru 2 eldhús, 2 geymsluherbergi, miðstöðvarherbergi, vatnssalerni og gangur. Húsið hafði verið lengt og var þá rúmir 56 fermetrar að grunnfleti. Eigendur hússins voru hjónin Guðmundur Guðjónsson (1889-1965) og Kristín Brynjólfsdóttir (1901-1978) og hjónin Brynjólfur Sigurðsson (1871-1931) og Geirþrúður Geirsdóttir (1872-1961), sem voru foreldrar Kristínar.5Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-01-1926 til 10-01-1928. Aðfnr. 743. Brunav.nr.: 899. Sótt 16. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/743-bok-21-01-1926-til-10-01-1928-adfnr-743.pdf; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntöl Reykjavíkur. Sótt 16. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/is/midlun/manntol-reykjavikur; Íslendingabók. Sótt 16. janúar 2025 af https://islendingabok.is/. Guðmundur Guðjónsson var meðal fyrstu manna sem tók bílpróf hér á landi og stundaði um skeið akstur sem atvinnu og var einn að stofnendum Bifreiðastöðvar Reykjavíkur árið 1921. Þegar Egill Vilhjálmsson stofnaði sitt landskunna fyrirtæki árið 1929 hóf Guðmundur störf þar. Hann starfaði síðan þar sem gjaldkeri ævina á enda.6Guðmundur Guðjónsson – Minning (1965, 29. júlí). Morgunblaðið, 52. árg., 169. tbl., bls. 21.
Árið 2004 þurfti bæði húsið nr. 86 og 86b að víkja þegar reiturinn við Laugaveg var endurskipulagður. Húsið nær götuinni, númer 86, var flutt á Álagranda 4, en húsið númer 86b var flutt á lóð númer 56a við Einarsnes. Þar var húsið sett á nýja neðri hæð, sem er að mestu úr timbri, en efri hæð hússins er gamla húsið af Laugaveginum. Hjörleifur Stefánsson arkitekt hannaði þessar breytingar.7Fastinn. Einarsnes 56a. Sótt 16. janúar 2025 af https://fastinn.is/fasteignir/1099247; Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Einarsnes 56a. Sótt 16. janúar 2025 af https://reykjavik.is/byggingarmal/teikningavefur.
Leitarorð: Skerjafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. janúar, 2025
Heimildaskrá
- 1Nikulás Úlfar Másson og Margrét Jónsdóttir (1999). Byggingasaga. Reykjavík: Árbæjarsafn. Skýrsla númer 74.
- 2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðfnr. 735. Brunav.nr.: 899. Sótt 16. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.
- 3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 26-05-1915 til 10-11-1917. Aðfnr. 738. Brunav.nr.: 899. Sótt 16. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/738-bok-26-05-1915-til-10-11-1917-adfnr-738.pdf.
- 4Nikulás Úlfar Másson (1996, 9. júlí). Bréf til Skipulagsnefndar Reykjavík. Verknr. 1226 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands
- 5Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-01-1926 til 10-01-1928. Aðfnr. 743. Brunav.nr.: 899. Sótt 16. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/743-bok-21-01-1926-til-10-01-1928-adfnr-743.pdf; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntöl Reykjavíkur. Sótt 16. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/is/midlun/manntol-reykjavikur; Íslendingabók. Sótt 16. janúar 2025 af https://islendingabok.is/.
- 6Guðmundur Guðjónsson – Minning (1965, 29. júlí). Morgunblaðið, 52. árg., 169. tbl., bls. 21.
- 7Fastinn. Einarsnes 56a. Sótt 16. janúar 2025 af https://fastinn.is/fasteignir/1099247; Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Einarsnes 56a. Sótt 16. janúar 2025 af https://reykjavik.is/byggingarmal/teikningavefur.
Deila færslu
Síðast uppfært 16. janúar, 2025
