Brattakinn 19, Hafnarfirði
Saga:
Í fasteignaskrá er húsið númer 19 við Bröttukinn í Hafnarfirði sagt byggt árið 1954. Það mun þó ekki allskostar rétt, en það ár gerði Eiríkur Axel Jónsson (1919-2002) samning um leigu lóðarinnar við Bröttukinn. Þangað flutti hann sumarbústað sem var í eigu Jóns Mathiesen (1901-1973) og hafði staðið vestan við Urriðavatn (Urriðakotsvatn).1Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 30.
Segja má að uppbygging Kinnahverfisins hafi hafist árið 1947 þegar fyrstu húsin voru byggð við Köldukinn. Flutningshús voru flutt á svæðið og sett niður árið 1949 en formlegt skipulag fyrir hverfið var ekki samþykkt fyrr en í desember 1951. Í frétt í Alþýðublaðinu frá þeim tíma segir meðal annars: „Milli 40 og 50 umsóknir um smáhúsalóðir í Hafnarfirði. Sérstakt hverfi ætlað húsunum, en bærinn leggur til teikningar ókeypis. /…/ Hafnarfjarðarbær hefur skipulagt sérstakt hverfi fyrir þessi hús ofarlega í bænum þar, sem eru svo kallaðar Kinnar. /…/ Þeir sem þess óska geta fengið ókeypis teikningar að húsum þessum hjá bænum, en einnig er þeim leyfilegt að láta teikna hús eftir eigin fyrirsöng.“ Nokkuð var um að eldri hús í bænum væru flutt í hverfið og olli það í sumum tilfellum deildum [sic]. Dæmi um það er hús sem áður var Reykjavíkurvegur 4 en það þurfti að víkja þaðan vegna breikkunar götunnar. Þá sendu fjöldi íbúa hverfisins bréf til bæjarins til að mótmæla þeim flutningi en í frétt Alþýðublaðsins sagði meðal annars um það mál „Hafnarfjörður fer að verða furðulegur bær. Ætli menn að byggja bílskúr, verða þeir að hlíta ströngum reglum byggingarsamþykktar en Pétur og Páll viðrast geta dröslað aflógahjöllum eftirlitslaust á grunna, a.m.k. í Kinnahverfinu.2Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020), bls. 2.
Jón Mathiesen (1901-1973) var þekktur kaupmaður í Hafnarfirði og lét mikið að sér kveða í ýmsum félagsmálum í bænum. Hann kom mikið við sögu íþróttamála, lét bindindismál til sín taka, var formaður Rauða kross deildar Hafnarfjarðar, í stjórn Sjúkrasamlags Hafnarfjarðar og svo mætti lengi telja.[2]3Jón Mathiesen, kaupmaður – Minning (1973, 2. mars). Morgunblaðið, 60. árg. 51. tbl., bls. 12.
Sumarbústaðurinn var með tveimur burstum, en þegar hann var settur á grunn sinn við Bröttukinn var byggt við húsið til austurs og skotrennan milli burstanna fjarlægð með því að hækka þakið, samkvæmt teikningu Egils Egilssonar.4Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020), bls. 30.
Eiríkur Axel og Guðný Stefánsdóttir (1922-2012) gengu í hjónaband árið 1948 og bjuggu í Bröttukinn 19 flest sín búskaparár. Eiríkur var vélstjóri og vann lengst af í Norðurstjörnunni í Hafnarfirði. Hann var meðal stofnfélaga Oddfellowreglunnar í Hafnarfirði ásamt föður sínum, sem byggði húsið Sjónarhól við Reykjavíkurveg, sem lesa má um í annarri grein.5Eiríkur Smári Sigurðarson (2002, 20. ágúst). Eiríkur Axel Jónsson. Morgunblaðið, 90. árg., 193. tbl., bls. 40.
Leitarorð: Hafnarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024
Heimildaskrá
- 1Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 30.
- 2Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020), bls. 2.
- 3Jón Mathiesen, kaupmaður – Minning (1973, 2. mars). Morgunblaðið, 60. árg. 51. tbl., bls. 12.
- 4Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020), bls. 30.
- 5Eiríkur Smári Sigurðarson (2002, 20. ágúst). Eiríkur Axel Jónsson. Morgunblaðið, 90. árg., 193. tbl., bls. 40.
Deila færslu
Síðast uppfært 2. maí, 2024
