Auðbrekka 16, Húsavík
Þórarinshús híft af grunni sínum við Garðarsbraut árið 1994. Heimild: Þórarinshús sett á nýjan grunn (1994, 16. ágúst). Morgunblaðið, 82.árg., 183. tbl., bls. B 21.
Þórarinshús flutt frá Garðarsbraut að Auðbrekku 16 árið 1994. Ljósm. í eigu Þjóðminjasafns Íslands.
Saga:
Árið 1906 reisti stúkan Þingey einnar hæðar timburhús á hlöðnum grunni í miðbæ Húsavíkur. Húsið stóð fast norðan við húsið sem nú er númer 9 við Garðarsbraut. Húsið var notað til fundahalda, skemmtisamkvæma og fyrir námskeið og skóla.
Árið 1915 keypti Þórarinn Stefánsson (1878-1965) hreppsstjóri húsið til íbúðar, en þar voru einnig skrifstofur hreppsins um tíma og á jarðhæðinni starfsrækti Þórarinn bókabúð sína um áratuga skeið.1Karl Kristjánsson 1981). Saga Húsavíkur. I. bindi, bls. 128. Húsavík: Húsavíkurkaupstaður; Gylfi Björn Helgason (2016, maí). Háborgir hreppa. Félagsheimili og samkomuhús á 20. öld. Fornleifafræðileg greining á almenningsbyggingum á Íslandi, bls. 35. Ritgerð til BA-prófs í fornleifafræði við Háskóla Íslands. „Sú munnmælasaga lifir, að innan templarahreyfingarinnar hafi komið upp ósátt stjórnenda út af því, að sumir vildu syngja á fundum fleiri söngva en í söngbók templara voru, en aðrir ekki og því hafi húsið verið selt.“2Þórarinshús sett á nýjan grunn (1994, 16. ágúst). Morgunblaðið, 82.árg., 183. tbl., bls. B 21.
Þórarinn kvæntist Sigríði Oddnýju Ingvarsdóttur (1889-1972) árið 1916 og eignuðust þau fjögur börn. Sigríður veitti lengst af forstöðu ljósmyndastofu sem þau hjón ráku í húsinu.
Árið eftir að Þórarinn keypti húsið byggði hann ofan á það. „Á þessum árum var næstum útilokað að fá timbur keypt, og brá hann til þess ráðs að kaupa gamalt býli, Hlíð, sem er hér í nágrenninu, og reif húsið til að fá timbur í bygginguna“, sagði Ingvar Þórarinsson, bóksali á Húsavík.“3Gott hús fær nýtt hlutverk (1994, 12. ágúst). Alþýðublaðið, 75. árg., 121. tbl., bls. 4.
Þórarinn stundaði …
… bókband, bóksölu, blaðaafgreiðslu, ljósmyndun og fjölda trúnaðarstarfa, sem á hann hlóðust.
Hann var deildarstjóri í stærstu deild Kaupfélags Þingeyinga og jafnframt gæzlustjóri Kaupfélagsins, formaður skattanefndar, í stjórn sparisjóðsins og sjúkrahússins, umboðsmaður Útvegsbanka Íslands í Þingeyjarsýslu, umboðsmaður Brunabótafélags Íslands og Happdrættis Háskólans, fékkst við málafærslustörf, formaður sóknarnefndar og sáttanefndar, umsjónarmaður og reikningshaldari Síldarverksmiðju ríkisins á Húsavík og loks hreppstjóri í 39 ár, sá eini sem verið hefur á Húsavík.4Þórarinn Stefánsson á Húsavík – Minning (1965, 11. maí). Morgunblaðið, bls. 8, 53. árg., 105. tbl., bls. 6 og 8.
Sigríður Ingvarsdóttir hóf ljósmyndanám á ljósmyndastofu Björns Pálssonar á Ísafirði árið 1906, undir leiðsögn Önnu Andersen. Sigríður veitti síðan ljósmyndastofunni forstöðu á árunum 1910-1915. Árið 1914 sótti hún um starf á ljósmyndastofu Húsavíkur og veitti henni fyrst forstöðu sumarið 1915 en rak hana svo áfram frá vori 1916 allt til ársins 1942. Stofan var fyrst til húsa í Kirkjubæ, sem Eiríkur Þorbergsson reisti úr gömlu kirkjunni á Húsavík, en frá 1916 var hún til húsa í Þórarinshúsi.5Menningarmiðstöð Þingeyinga. Úrval mynda Sigríðar Ingvarsdóttur. Sótt 2. apríl 2025 af https://www.husmus.is/is/safnahusid/ljosmyndasafn/ljosmyndasofn/urval-mynda-sigridar-ingvarsdottur.
Eftir að bókaverslun Þórarins flutti í nýtt hús við hliðina á því gamla árið 1976 voru aðrar verslanir með rekstur í húsinu auk þess sem þar var enn búið. Síðustu árin sem það stóð við Garðarsbraut var húsið hins vegar autt. Árið 1994 var svo húsið flutt á nýjan grunn við Auðbrekku 16 á Húsavík, þar sem það stendur enn.6Gott hús fær nýtt hlutverk (1994, 12. ágúst). Alþýðublaðið, 75. árg., 121. tbl., bls. 4.
Um ljósmyndaferil Sigríðar Ingvarsdóttur má fræðast í MA-ritgerð Sigurlaugar Dagsdóttur í þjóðfræði, sem ber heitið: Að fanga þig og tímann. Rannsókn og sýning á ljósmyndasöfnum Sigríðar Ingvarsdóttur og Ragnheiðar Bjarnadóttur.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. apríl, 2025
Heimildaskrá
- 1Karl Kristjánsson 1981). Saga Húsavíkur. I. bindi, bls. 128. Húsavík: Húsavíkurkaupstaður; Gylfi Björn Helgason (2016, maí). Háborgir hreppa. Félagsheimili og samkomuhús á 20. öld. Fornleifafræðileg greining á almenningsbyggingum á Íslandi, bls. 35. Ritgerð til BA-prófs í fornleifafræði við Háskóla Íslands.
- 2Þórarinshús sett á nýjan grunn (1994, 16. ágúst). Morgunblaðið, 82.árg., 183. tbl., bls. B 21.
- 3Gott hús fær nýtt hlutverk (1994, 12. ágúst). Alþýðublaðið, 75. árg., 121. tbl., bls. 4.
- 4Þórarinn Stefánsson á Húsavík – Minning (1965, 11. maí). Morgunblaðið, bls. 8, 53. árg., 105. tbl., bls. 6 og 8.
- 5Menningarmiðstöð Þingeyinga. Úrval mynda Sigríðar Ingvarsdóttur. Sótt 2. apríl 2025 af https://www.husmus.is/is/safnahusid/ljosmyndasafn/ljosmyndasofn/urval-mynda-sigridar-ingvarsdottur.
- 6Gott hús fær nýtt hlutverk (1994, 12. ágúst). Alþýðublaðið, 75. árg., 121. tbl., bls. 4.
Deila færslu
Síðast uppfært 4. apríl, 2025


