Nýja-Búð, Eskifirði
Saga:
Bindindisstúkan Döggin byggði samkomuhús utan við Lambeyrará árið 1896, u.þ.b. þar sem nú er Strandgata 48 á Eskifirði. Um svipað leyti reistu Góðtemplarar sitt samkomuhús (sjá: Strandgata 45, Eskifirði – Húsaflutningar) og voru þetta fyrstu hús ætluð til mannamóta sem reist voru í Eskifjarðarkaupstað.
Líkt og Góðtemplarahúsið var Bindindishúsið flutt af sínum upprunalega byggingarstað. Árið 1903 var þetta hús rifið og endurreist í Útkaupstað beint á móti Gömlu-Búðinni (Strandgötu 39b) og nefndist því Nýja-Búðin fyrst á eftir. Fyrir því hefur Carl D. Tulinius væntanlega staðið því hann átti verslunar- og íbúðarhús á svæðinu. Húsið stóð neðan vegar á hlöðnum grunni, sem sjór féll að á flóði. Það var síðar nefnt ýmsum öðrum nöfnum, meðal annars Tuliniusarbúð og Sameinaða, meðan Hinar sameinuðu íslensku verslanir áttu húsið.1Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971). Sögurit Eskfirðinga I. bindi, bls. 50 og 72. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986). Sögurit Eskfirðinga V. bindi, bls. 22. Einar Bragi Sigurðsson tók saman. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Kristín Ágústsdóttir (2001). Byggingarár húsa á Eskifirði, kort 2.5, bls. 14. Neskaupstaður: Náttúrustofa Austurlands.
Í bók sem kom út 1971 er húsið sagt „rifið yfir allmörgum árum“.2Eskja 1 (1971), bls. 72.
Leitarorð: Eskifjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. ágúst, 2026
Heimildaskrá
- 1Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971). Sögurit Eskfirðinga I. bindi, bls. 50 og 72. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986). Sögurit Eskfirðinga V. bindi, bls. 22. Einar Bragi Sigurðsson tók saman. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Kristín Ágústsdóttir (2001). Byggingarár húsa á Eskifirði, kort 2.5, bls. 14. Neskaupstaður: Náttúrustofa Austurlands. ↩︎
- 2Eskja 1 (1971), bls. 72. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 19. ágúst, 2026