Syðri-Fjörður, Lóni
1899 að Syðri-Firði í Lóni
Saga:
Sumarið 1861 var fyrsta verslunarskipinu siglt inn á Papós í landi Syðri-Fjarðar í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu. Í byrjun árs 1863 var Papós löggiltur sem verslunarstaður og þar með mátti reisa verslunarhús við ósinn. Ári síðar hófst þar föst búseta þegar Jörgen Johnsen kaupmaður lét reisa þar verslunarhús, svokallaða Krambúð (sjá: Heppuvegur 1, Gamlabúð, Höfn – Húsaflutningar), sem jafnframt var íverustaður þeirra sem störfuðu við verslunina.
Staða Papósverslunar veiktist verulega á 9. áratug aldarinnar þegar verslun hófst á Hornafirði, sem var miklu nær miðju sýslunnar en Almannaskarð hafði ætíð verið erfiður farartálmi þeim sem það þurfti að fara. Það varð einnig verslun á Hornafirði til framdráttar að árið 1891 keypti danskur kaupmaður Papósverslunina, Christian Nielsen, sem Austur-Skaftfellingar vissu lítil sem engin deili á og höfðu enga hugmynd um framtíðaráform hans. Enda kom á daginn að verslunarreksturinn fór úr böndunum og lítið var á hann að treysta. Árið 1895 festi Thor E. Tulinius umboðsmaður íslenskra kaupmanna í Kaupmannahöfn kaup á versluninni en seldi hana bróður sínum Otto Tulinius þegar í stað og verður ekki betur séð en þeir bræður hafi frá upphafi verið staðráðnir í því að flytja verslunina til Hornafjarðar.
Árið 1890 byggðu hjónin Guðmundur Sigurðsson (1856-1947) og Sigríður Jónsdóttir (1853-1936) tveggja hæða timburhús með kjallara á grunni eldra húss á Papósi, á grasbala utan við Kastá. Nýja húsið var 48 fermetrar að grunnfleti. Guðmundur fékkst við ýmiss konar verslunarstörf á Papósi og smíðaði auk þess reiðtygi heima í stofu og tók jafnvel til sín lærlinga. Einnig ráku þau hjón lítils háttar búskap.1Arnþór Gunnarsson (1997). Saga Hafnar í Hornafirði. Fyrra bindi. Aðdragandi búsetu og frumbýlisár, bls. 23. Hornafirði: Hornafjarðarbær. Guðmundur hafði mikinn áhuga á félagsmálum og átti m.a. frumkvæði að stofnun Lestrarfélags Lónsmanna.2Stefán Jónsson og Bjarni Bjarnason (1971). Byggðasaga Austur-Skaftafellssýslu. I. bindi, bls. 102. Reykjavík: Bókaútgáfa Guðjónsó.
Þegar búið var að flytja verslunarhúsin á Papósi til Hafnar 1897 fluttu þau hjón einnig til Hafnar.3Arnþór Gunnarsson (1997), bls. 141.
Við Papós stóð gamla íbúðarhús Guðmundar og Sigríðar óhreyft. Bæjarhreppur keypti húsið og rak þar heimavistarskóla á árunum 1897-1899 undir stjórn Vilhelms Knudsens en hann sá einnig um að afgreiða til Lónsmanna vöruleifar sem Otto hafði skilið eftir í litlu húsi á verslunarlóðinni.4Arnþór Gunnarsson (1997), bls. 142.
Til styrktar skólahaldi þessu gáfu Tulinius kaupmaður, prófasturinn og fleiri peningagjafir og auk þess var uppi hugmynd um að halda „lotterí“ til að afla skólanum fjár.5Innlendar fréttir. Úr Lóni 16. febr. 1897 (1897, 9. mars). Austri, 7. árg., 7. tbl., bls. 26. Hús hreppsins gekk undir nafninu Von.6Stefán Jónsson og Bjarni Bjarnason (1971), bls. 103.
Þegar skólahaldi lauk seldi Bæjarhreppur Moritz Vilhjálmi Steinsen (skrifað þannig í islendingabok.is – 1866-1946) húsið og jörðina. Hann reif húsið og byggði sér úr því íbúðarhús í Firði og þar með var búsetu á Papós lokið. Hús Morits brann til kaldra kola í ágúst 1901.7Stefán Jónsson (1987). Um Papós. Skaftfellingur, 5, bls. 149-156. Í manntali 1901 var Moritz skráður til heimilis í Syðri-Firði ásamt Guðrúnu Benediktsdóttur (1858-1912) eiginkonu sinni, þremur börnum þeirra og þremur hjúum.8Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista. (2025). Syðri – Fjörður, Stafafellssókn, Bæjarhreppi í Austur-Skaftafellssýslu. Sögulegt mann- og bæjatal, útg. 1.0. Sótt 18. ágúst 2026 frá https://smb.mshl.is/kenni/s03ddh.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. ágúst, 2026
Heimildaskrá
- 1Arnþór Gunnarsson (1997). Saga Hafnar í Hornafirði. Fyrra bindi. Aðdragandi búsetu og frumbýlisár, bls. 23. Hornafirði: Hornafjarðarbær. ↩︎
- 2Stefán Jónsson og Bjarni Bjarnason (1971). Byggðasaga Austur-Skaftafellssýslu. I. bindi, bls. 102. Reykjavík: Bókaútgáfa Guðjónsó. ↩︎
- 3Arnþór Gunnarsson (1997), bls. 141. ↩︎
- 4Arnþór Gunnarsson (1997), bls. 142. ↩︎
- 5Innlendar fréttir. Úr Lóni 16. febr. 1897 (1897, 9. mars). Austri, 7. árg., 7. tbl., bls. 26. ↩︎
- 6Stefán Jónsson og Bjarni Bjarnason (1971), bls. 103. ↩︎
- 7Stefán Jónsson (1987). Um Papós. Skaftfellingur, 5, bls. 149-156. ↩︎
- 8Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista. (2025). Syðri – Fjörður, Stafafellssókn, Bæjarhreppi í Austur-Skaftafellssýslu. Sögulegt mann- og bæjatal, útg. 1.0. Sótt 18. ágúst 2026 frá https://smb.mshl.is/kenni/s03ddh. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 19. ágúst, 2026