Athafnasvæði Síldarbræðslunnar hf. á Seyðisfirði, en hún var stofnuð 1935. Síldarverksmiðjur ríkisins keyptu Síldarbræðsluna árið 1962 og hóf mikla uppbyggingu. Því þurftu a.m.k. 15 hús að víkja fyrir nýrri verksmiðju, þ.á.m. Garðhús. Heimild:  Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar. 2. útg., bls. 365. Seyðisfirði: Seyðisfjarðarkaupstaður.
Athafnasvæði Síldarbræðslunnar hf. á Seyðisfirði, en hún var stofnuð 1935. Síldarverksmiðjur ríkisins keyptu Síldarbræðsluna árið 1962 og hóf mikla uppbyggingu. Því þurftu a.m.k. 15 hús að víkja fyrir nýrri verksmiðju, þ.á.m. Garðhús. Heimild: Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar. 2. útg., bls. 365. Seyðisfirði: Seyðisfjarðarkaupstaður.

Strandarvegur 5, Seyðisfirði

Heiti: Garðhús
Byggingarár: 1900
Rifið: 1962
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sigurður Sigurðsson
Aðrir eigendur:
1917: 1/2 húsið afsalað Runólfi Sigfússyni
1923: 1/2 húsið afsalað Sveini Sigurðssyni af Runólfi Sigfússyni
1926: Hjálmar Guðjónsson
1952: Síldarbræðslan hf.
1962: Síldarverksmiðjur ríkisins
Upphafleg staðsetning:

Utarlega á Fjarðarströnd, Seyðisfirði

Flutt:

1906 að Strandarvegi 5, Seyðisfirði

Hvernig flutt: Tekið niður

Saga:

Garðhús byggði Sigurður Sigurðsson aldamótaárið 1900 utarlega á Fjarðarströnd, um það bil sem Strandarsíld stóð áður. Árið 1906 var það tekið niður og flutt þangað sem þá var lóð nr. 5 við Strandarveg. Stóð húsið næst utan við þrær Síldarbræðslunnar. Húsið var 34 fermetrar að grunnfleti. Í brunabótamati árið 1926 var því lýst þannig:

Íbúðarhús, einlyft, portbyggt timburhús, innanþiljað paneli og skilrúmsborðum, málað og veggfóðrað.
Niðri: 3 stofur, eldhús og gangur. Uppi. 1 herbergi, eldhús, gangur og geymsluklefi. Í húsinu er vatnsleiðsla og raflýsing. Kjallari er undir öllu húsinu, hlaðinn úr grjóti.

Af þessari lýsingu má draga þá ályktun að húsið hafi verið tvíbýlt.

Árið 1950 varð húsið fyrir skakkaföllum af völdum skriðufalla og var ekki búið í því eftir það. Síðustu íbúarnir voru þau Þórir Daníelsson og Ragnheiður Jónsdóttir.

Árið 1962 eignuðust Síldarverksmiðjur ríkisins húsið og rifu það, því það var á athafnasvæði fyrirtækisins.1Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar. 2. útg., bls. 373. Seyðisfirði: Seyðisfjarðarkaupstaður.

 

Þess má geta að Fjarðarströnd nefnist strandsvæðið undir Strandartindi sunnan Seyðisfjarðar. Þar er mikil snjóflóðahætta og hafa þar oft fallið snjóflóð. Ekki er ólíklegt að húsið hafi verið flutt vegna þess. Sjá einnig: Hafnargata 32 B, Seyðisfirði – Húsaflutningar

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 31. janúar, 2026

Heimildaskrá

  • 1
    Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar. 2. útg., bls. 373. Seyðisfirði: Seyðisfjarðarkaupstaður.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 31. janúar, 2026