Ránargata 12, Flateyri
Saga:
Um 1920 voru tvö íbúðarhús úr timbri við Dalssjó í Valþjófsdal, þar sem lending þeirra Dalmanna var. Annað þeirra byggðu Eyjólfur Jónsson (1851-1921) bóndi á Kirkjubóli og synir hans og var það hús í fyrstu notað sem verbúð. Um 1920 lét Kristján Eyjólfsson (1882-1921) breyta því í íbúðarhús og bjó í því ásamt konu sinni, Maríu Einarsdóttur (1894-1975). Um það hús og flutning þess til Flateyrar má lesa hér: https://husaflutningar.is/grundarstigur-15-flateyri/
Hitt húsið reistu þau Einar Jóhannesson (1862-1939) og Ragnhildur Bjarnadóttir (1865-1926), foreldrar Maríu, um 1920 þegar þau settust að við Dalssjóinn. Samkvæmt manntali árið 1920 bjuggu 10 manneskjur á þessum tveimur heimilum við sjávarkambinn í Valþjófsdal. Í fasteignamatsskjölum frá sama ári eru bæði þessi hús við Dalssjó skilgreind sem verbúðir en athygli vekur hve hátt þessar verbúðir voru metnar.1Kjartan Ólafsson (ódags.). Firðir og fólk 900-1900. Hreppar í Vestur-Ísafjarðarsýslu. Vinnuhandrit. Kirkjuból í Valþjófsdal, bls. 61-62. Sótt 23. september 2025 af https://www.safnis.is/upload/files/72KirkjubolValthjofsdal.pdf.
Þau Einar og Ragnhildur hófu búskap í Bolungarvík, þar sem Einar stundaði sjó. Árið 1913 fluttu þau í Álfadal á Ingjaldssandi þar sem þau bjuggu til ársins 1920. Þá ákváðu þau að bregða búi, enda aldurinn farinn að færast yfir og börnin uppkomin. Fluttu þau þá í Valþjófssdal, eins og áður segir.2Minning. Elísabet Einarsdóttir prestsfrú frá Holti (1985, 16. mars). NT, 69. árg., 74. tbl., bls. 11.
Um byggðina við Dalssjó segir Kjartan Ólafsson í Vestfjarðariti sínu:
Þegar árið 1921 gekk í garð benti flest til þess að byggðin hér á sjávarkambinum ætti framtíð fyrir sér en oft skipast veður í lofti með skjótum hætti. Þann 22. september 1921 fórst mótorbáturinn Valþjófur með allri áhöfn í fiskiróðri. Formaður á honum var Kristján Eyjólfsson sem hér bjó, 38 ára að aldri, en með honum fórust Pétur Einarsson, mágur hans, 24 ára, Guðjón Jörundsson, 27 ára húsmaður á Flateyri og bróðir Guðjóns, Gísli G. Jörundsson, 19 ára vinnumaður á Álfadal. Pétur átti heima hjá foreldrum sínum hér við Dalssjóinn þegar hann drukknaði.
Segja má að hið þunga áfall sem yfir dundi þegar Valþjófur fórst hafi orðið upphafið að endalokum bátaútgerðar frá Dalssjó. Ekkjan María Einarsdóttir og foreldrar hennar fluttust burt úr Valþjófsdal árið 1922 og settust að á Flateyri. Bæði íbúðarhús þeirra voru líka flutt til Flateyrar og stóðu þar enn sumarið 1993. Hús Kristjáns og Maríu var þá í eigu Kíwanismanna og er númer 15 við Grundarstíg en hús Einars og Ragnhildar stendur við Ránargötu, gjörbreytt frá því sem áður var.3Kjartan Ólafsson (ódags.), bls. 62-63.
Líkt og Grundarstíg 15 var þessu húsi fleytt yfir fjörðinn á tunnum.4Finnur Torfi Guðmundsson (2025, 25. september). Tölvupóstur.
Ekki er ósennilegt að bæði húsin hafi verið flutt með svipuðum hætti, þ.e. fleytt yfir fjörðinn, þó ekki hafi fundist heimildir um hvernig húsið sem nú stendur við Ránargötu 12 á Flateyri var flutt.
Einar og Ragnhildur bjuggu í húsinu til ársins 1929 og síðan sonur þeirra Bjarni Einarsson (1904-1980) og var þá húsið nefnt Bjarnahús.5Sigurbjörn Svavarsson (2024, 26. febrúar). Spjall í hópnum Flateyri og Flateyringar á Facebook.
Árið 1944 keyptu hjónin Guðmundur Sveinbjörn Matthías Þórðarson (1910-1985) og Kristín Gróa Ívör Bernharðsdóttir (1906-1990) húsið. Þá var eldhús, bað, forstofa og eitt svefnherbergi í öðrum helmingi hússins en í hinum var fjárhús, sem Guðmundur breytti í stofu. Síðar byggði hann við stórt eldhús og tvö herbergi við vesturhlið hússins.6Finnur Guðmundsson (2019, 14. apríl). Spjall í hópnum Flateyri og Flateyringar á Facebook. Finnur, sonur Guðmundar, sem ólst upp í húsinu lýsir umhverfi hússins þannig: „Norðan við húsið þvert á millibygginguna sem er á teikningunni frá þér, stóð lágreyst löng bygging, smíðakompa og þvottahús og þvert á það stóð góður þurkhjallur með þurklofti. Það má vera að smíðakompan og þvottahúsið hafi verið byggt úr kassafjölum, ekki ólíklegt. Síðan byggði pabbi þessa tengingu milli íbúðarhússins og þvottahússins. Þessi tengibygging var ekki innréttuð og mest notuð sem geymsla.“7Finnur Guðmundsson (2019, 14. apríl).
Líklega hafa hjónin Eggert Jónsson (1936-2022) og Laufey Guðbjartsdóttir (f. 1936) keypt húsið af þeim Guðmundi og Kristínu. Eggert og Laufey áttu húsið til 1973. Í lok þess árs keypti Grétar Arnbergsson (1942-2023) húsið og átti það þar til hann lést árið 2023.8Ómar Ingi Eggertsson (2025, 26. september). Tölvupóstur.
Enn stendur húsið við Ránargötu 12 en því hefur verið breytt mjög mikið, eins og fram hefur komið, þannig að í dag er erfitt að átta sig á hvernig húsið leit út í upphafi. Ekki er breytingum og endurbótum lokið, því sumarið 2025 var enn unnið við húsið.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. september, 2025
Heimildaskrá
- 1Kjartan Ólafsson (ódags.). Firðir og fólk 900-1900. Hreppar í Vestur-Ísafjarðarsýslu. Vinnuhandrit. Kirkjuból í Valþjófsdal, bls. 61-62. Sótt 23. september 2025 af https://www.safnis.is/upload/files/72KirkjubolValthjofsdal.pdf.
- 2Minning. Elísabet Einarsdóttir prestsfrú frá Holti (1985, 16. mars). NT, 69. árg., 74. tbl., bls. 11.
- 3Kjartan Ólafsson (ódags.), bls. 62-63.
- 4Finnur Torfi Guðmundsson (2025, 25. september). Tölvupóstur.
- 5Sigurbjörn Svavarsson (2024, 26. febrúar). Spjall í hópnum Flateyri og Flateyringar á Facebook.
- 6Finnur Guðmundsson (2019, 14. apríl). Spjall í hópnum Flateyri og Flateyringar á Facebook.
- 7Finnur Guðmundsson (2019, 14. apríl).
- 8Ómar Ingi Eggertsson (2025, 26. september). Tölvupóstur.
Deila færslu
Síðast uppfært 27. september, 2025
