Húsið fremst á myndinni hægra megin er Austurvegur 8 á Selfossi árið 1967. Ljósm.: Tómas Jónsson . Héraðsskjalasafn Árnesinga. Mynd nr. 2011_14_TJ_00630. Sótt 22. júní 2025 af https://myndir.myndasetur.is/.
Húsið fremst á myndinni hægra megin er Austurvegur 8 á Selfossi árið 1967. Ljósm.: Tómas Jónsson . Héraðsskjalasafn Árnesinga. Mynd nr. 2011_14_TJ_00630. Sótt 22. júní 2025 af https://myndir.myndasetur.is/.

Hrísholt 8a, Selfossi

Heiti: Garður
Byggingarár: 1937
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Hans Jörgen Ólafsson og Ólöf Guðmundsdóttir
Aðrir eigendur:
1990: Hróbjartur Örn Eyjólfsson og Hróðný Hanna Hauksdóttir
Upphafleg staðsetning: Austurvegur 8, Selfossi
Flutt: 1990 að Hrísholti 8a, Selfossi
Hrísholt 8a 2

Austurvegur 8, Selfossi, á árunum 1981-1990. Ljósm.: Magnús Aðalbjarnarson. Héraðsskjalasafn Árnesinga. Mynd nr. 2007_35_MAÞF_00030. Sótt 22. júní 2025 af https://myndir.myndasetur.is/.

Hrísholt 8a 1

Hrísholt 8a, Selfossi, 2023. Ljósm.: Fasteignasala hús. Sótt 22. júní 2025 af https://fastinn.is/soluskra/1110717.

Saga:

Árið 1937 byggðu hjónin Hans Jörgen Ólafsson (1900-1983) frá Eyrarbakka og Ólöf Guðmundsdóttir (1901-1985) frá Þverlæk í Holtum sér myndarlegt timburhús á lóðinni númer 8 við Austurveg á Selfossi.1Húsavefur Árborgar. Garður – Hrísholt 8a (áður við Austurveg 8). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/; Ólafía J. Hansdóttir (2025, 21. júlí). Tölvupóstur.

Um húsið segir m.a. á húsavef Árborgar:

Hann [þ.e. Hans Jörgen] fékk Kristinn Vigfússon til verksins en Kristinn varð frá að hverfa vegna þess að Egill Thorarensen kallaði hann í annað verkefni sem hann vildi frekar sinna. Þá tók Kristján Ólafsson í Bár við smíðinni og kláraði húsið sem var tvílyft, bárujárnsklætt timburhús á steyptum kjallara. Húsið er 100 m² að stærð. Árið 1956 voru smíðaðir kvistir á húsið og um framkvæmdina sá Eiríkur Þorgeirsson frá Túnsbergi. Þegar húsið var fært árið 1990 var steyptur nýr sökkull undir það og húsið tekið gagngert í gegn. Skipt var um lagnir, húsið var einangrað upp á nýtt, settir nýir milliveggir og fleira.

Hans og Ólöf bjuggu í húsinu og ólu þar upp sín fjögur börn; Einar, Þorbjörgu, Guðrúnu og [Ólafíu]. Húsið var selt árið 1985 eftir að hjónin voru bæði fallin frá … Húsið var flutt um set árið 1990 og sett niður við Hrísholt 8a. Þá fluttu í það Hróbjartur Örn Eyjólfsson og Hróðný Hanna Hauksdóttir. Þau eignuðust Óskar Örn og Dagnýju Hönnu meðan þau bjuggu í húsinu. …

Hans var sonur Ólafs Sigurðssonar söðlasmiðs á Stað á Eyrarbakka sem síðar flutti hús sitt á Selfoss þar sem nú heitir Staður og stendur við Sigtún 3. Hans og Ólöf kynntust þegar hún kom til starfa í Tryggvaskála og þau giftu sig árið 1934. Þau hófu sinn búskap á loftinu á Stað hjá foreldrum Hans en reistu sitt hús árið 1937 og kölluðu það Garð. Þau bjuggu þar bæði til æviloka. Hans vann alla tíð í akstri hjá bræðrum sínum í S. Ólafsson og Co og sá einnig um kælivélar og mótora fyrirtækisins en hann var með vélstjórapróf frá því hann vann í vertíðum í Grindavík á yngri árum. Ólöf var aftur á móti heimavinnandi. Lúðvík D. Norðdal opnaði læknastofu uppi á loftinu í Garði uppúr 1937. Þar hafði hann viðtalstíma fyrir almenning tvisvar sinnum í viku. Hann flutti sig síðar yfir í barnaskólann og þaðan í sjúkrahúsið. Þegar Lúðvík hætti með læknastofuna var herbergið sem hann hafði nýtt leigt út og þar leigði Júníus Ólafsson frá Björk í nokkur ár. Nokkur haust leigði einnig Guðmundur í Austurhlíð herbergi í kjallaranum á meðan hann vann í sláturtíðinni. Eitt af sérkennum Garðs þegar það stóð við Austurveginn var að í kringum húsið var steypt girðing sem krökkunum í þorpinu þótti mjög gaman að hoppa yfir og hlaupa uppá við lítinn fögnuð Lóu húsfreyju sem þá var snögg að berja í gluggann og skipa krökkunum að koma sér af girðingunni. Í garði var alltaf mikill gestagangur enda mikið af kunningjafólki Ólafar úr sveitinni sem fékk þar gistingu og mat þegar það fór í kaupstaðaferð. Þegar húsið var flutt 8. september árið 1990 klukkan 06:52 að varð að flytja það niður Sigtúnið og aka með það Árveginn vegna þrenginga á Austurveginum. Páll Egilsson sá um flutningana.2Húsavefur Árborgar. Garður – Hrísholt 8a (áður við Austurveg 8). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/.

Á húsavefnum kemur fram að greinin um húsið hafi verið unnin úr eftirtöldum heimildum:

Guðrún Hansdóttir. Munnleg heimild, 11. Júní 2013. Munnleg heimild.

Hjónaminning Hans Jörgen Ólafsson, Ólöf Guðmundsdóttir. Morgunblaðið, 22. júní 1985. 32.

Hrísholt, 800 Selfoss. Mbl.is, 21. maí 2013. Sótt 5. júní 2013 á: http://www.mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=632657 Hus2/13.

Viðtal Guðmundu Ólafsdóttur við Erlu og Ingunni Guðmundsdætur 12. mars 2013. Í vörslu á Héraðsskjalasafni Árnesinga.

Guðmundur Kristinsson. Saga Selfoss, 1-2. Selfoss: Selfosskaupstaður, 1991.

Þór Vigfússon. Garður fluttur um set. Dagskráin, 20. september 1990. 4.3Húsavefur Árborgar. Garður – Hrísholt 8a (áður við Austurveg 8). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 22. júlí, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Húsavefur Árborgar. Garður – Hrísholt 8a (áður við Austurveg 8). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/; Ólafía J. Hansdóttir (2025, 21. júlí). Tölvupóstur.
  • 2
    Húsavefur Árborgar. Garður – Hrísholt 8a (áður við Austurveg 8). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/.
  • 3
    Húsavefur Árborgar. Garður – Hrísholt 8a (áður við Austurveg 8). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 22. júlí, 2025