Guðjohnsenshús á upphaflegum stað. Heimild: Freyja Jónsdóttir (1997, 14. júní). Dagur - Tíminn Akureyri, 110. tbl., bls. III.
Guðjohnsenshús á upphaflegum stað. Heimild: Freyja Jónsdóttir (1997, 14. júní). Dagur - Tíminn Akureyri, 110. tbl., bls. III.

Stórigarður 4, Húsavík

Heiti: Faktorshúsið - Gudjohnsenshús - Garðarshólmi
Byggingarár: 1880
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Verslun Örum & Wulffs
Aðrir eigendur:
1918: Gudjohnsensverslun
1945: Edward Friðriksen
1948: Húsavíkurhreppur
Upphafleg staðsetning: Garðarsbraut 16, Húsavík
Flutt: 1979 að Stóragarði 4, Húsavík
Hvernig flutt: Dregið á sleða
Stórigarður 4 3

Garðarshólmi við Garðarsbraut árið 1975. Ljósm.: Ljósmyndasafn Þingeyinga. Heimild: Arnhildur Pálmadóttir (2015). Húsakönnun. Búðarvöllur (áður Öskjureitur) í miðbæ Húsavíkur, bls. 9.

Stórigarður 4 2

Garðarshólmi við Garðarsbraut. Ljósm.: Ljósmyndasafn Þingeyinga. Heimild: Arnhildur Pálmadóttir (2023). Húsakönnun. Skólasvæðið á Húsavík, bls. 9.

Stórigarður 4 6

Garðarshólmi fluttur 1979. Ljósm.: Þorgrímur Aðalsteinsson. Húsavík: Fyrr og nú. Sótt 26. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=1357483121061154&set=gm.2762523800640412.

Stórigarður 4 7

Stórigarður 4, Húsavík, í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.

Saga:

Í grein í Dagblaðinu 25. júní 1979 er saga hússins sem nú stendur við Stóragarð 4 á Húsavík tíunduð. Greinin hljóðar svo:

Elzta húsið á Húsavík, aldargamalt, er nú um það bil að komast á járnsleða mikinn og mun sennilega nú í vikunni fara í sleðaferð yfir aðalgötu Húsavíkur. Á það að fá nýjan stað við norðurenda gamla barnaskólans alllangt frá sjó. Þykir mörgum Húsvíkingum sjónarsviptir að þessu gamla húsi sem sögufrægt er, sérkenniiegt og setti svip á kambinn upp af Húsavíkinni. En tímarnir breytast og mennirnir með og nú á húsið að víkja fyrir breiðgötu mikilli sem verður síðar í sumar aðalinnkeyrsluleiðin í Húsavíkurkaupstað.

Þetta gamla hús, sem í sleðaferðina fer, er svokallað Faktorshús. Það var reist um 1880 af Örum & Wulffs verzlun og var yfirsmiður Daninn Bald, sem stóð fyrir byggingu Alþingishússins í Reykjavik. Í húsinu bjuggu m.a. faktorar Örum-Wulffs og Þórður Guðjohnsen. Var húsið í eigu Guðjohnsensverzlunarinnar frá 1918 til 1944 að eigendaskipti urðu og húsið gert að hóteli og skírt Garðarshólmi. 1945 kaupir Edward Friðriksen húsið og rak þar gisti- og veitingahús til 1948 að Húsavíkurhreppur kaupir það af lánardrottnum hans og hefur átt síðan.

Húsið var lengi notað sem gagnfræðaskóli, fyrir fundi bæjarstjórnar og til íbúðar fyrir menn — lengri eða skemmri tíma — í þjónustu bæjarins allt til þessa árs.

Faktorshúsið var eitt fárra sem ekki varð eldi að bráð í brunanum mikla sem varð 1902. Hafði áður farið orð af að í verzluninni væri olía og fleira stundum knapplega mæld til viðskiptavina. Í björgunarstarfi í eldsvoðanum mikla var olíufötum rúllað frá húsinu niður fjörukambinn og út í sjó. Urðu afföll af tunnunum í fjörugrjótinu og er fræg setning sem Frímann í Grímsey mælti þá: „Þeir mæla ekki olíuna núna í pelamálum.“

Faktorshúsið kom tilsniðið til landsins, allir bitar númeraðir. Er grindin hafði verið sett upp var kalksteypa sett milli bita og veggir síðan klæddir með bambus sem kom í stað pússninganets. Síðan var kalkblöndu smurt á bambusinn og klætt með veggfóðri. Nú er flytja átti húsið varð að brjóta steininn milli bitanna. Þeir Grímur Leifsson rafvirkjameistari og Gunnar Höskuldsson kennari og „niðurrifsmaður“ (eins og hann sagði sjálfur) sögðu að út úr húsinu hefðu komið um 140 tonn af steini. Var hann allur brotinn niður með einni sleggju og ekið út í einum og sömu hjólbörunum. Eftir að steinninn var fjarlægður töldu þeir húsið vega um 70 tonn og þannig verður það flutt á sleðanum.

Við niðurrifið komu í ljós þrjár tegundir klæðningar sem settar hafa verið á veggi á síðari árum og ótal tegundir veggfóðurs í ýmsum litum. Þegar Faktorshúsið hverfur af kambinum er greið leið opnuð fyrir nýju götuna sem samanstendur af Mararbraut og Garðarsbraut. Ýmsir sjá eftir húsinu, telja það verða eins og þorsk á þurru landi á nýja staðnum og óttast að önnur gömul hús, m.a. elztu kaupfélagshús á íslandi, fari sömu leið með miklum breytingum á svip Húsavíkur.1Elzta hús Húsavíkur í sleðaferð um bæinn (1979, 25. júní). Dagblaðið, 5. árg., 141. tbl., bls. 9.

Húsið stóð upphaflega við Garðarsbraut 16, þar sem göturnar Garðarsbraut og Mararbraut mætast í dag, og skagaði út í götustæði Garðarsbrautar. Það var gert upp sem íbúðarhús um 1960 og þar sem það stendur í dag við Stóragarð 4 er það íbúðarhús í einkaeigu.2Arnhildur Pálmadóttir (2012). Húsakönnun – Miðhafnarsvæðið á Húsavík. Hafnarstétt og Garðarsbraut, bls. 12-13; Arnhildur Pálmadóttir (2023). Húsakönnun. Skólasvæðið á Húsavík, bls. 9-10. Það stendur við hlið Gamla skóla, sem einnig var fluttur að Stóragarði og lesa má um hér.

Þau sem vilja fræðast meira um Guðjohnsenshús, er bent á grein Freyju Jónsdóttur í Degi – Tímanum í júní 1997 og finna má hér.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. mars, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. mars, 2025