Gamli barnaskólinn á Borgarhól 17. júní 1911. Ljósm. í eigu Ljósmyndasafns Þingeyinga. Heimild: Arnhildur Pálmadóttir (2023). Húsakönnun. Skólasvæðið á Húsavík, bls. 10.
Gamli barnaskólinn á Borgarhól 17. júní 1911. Ljósm. í eigu Ljósmyndasafns Þingeyinga. Heimild: Arnhildur Pálmadóttir (2023). Húsakönnun. Skólasvæðið á Húsavík, bls. 10.

Stórigarður 6, Húsavík

Heiti: Barnaskólinn – Gamli skóli
Byggingarár: 1908
Upphafleg notkun: Skólahús
Fyrsti eigandi: Húsavíkurbær
Upphafleg staðsetning: Borgarhóll, Húsavík
Flutt: 1962 að Stóragarði 6, Húsavík
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Stórigarður 6 4

Gamli skólinn á upprunalegum stað með nýja barnaskólann fyrir aftan. Ljósm.: Ljósmyndasafn Þingeyinga. Heimild: Arnhildur Pálmadóttir (2023). Húsakönnun. Skólasvæðið á Húsavík, bls. 7.

Stórigarður 6 5

Stórigarður 6, Húsavík. Nýleg mynd. Ljósm.: Lögeign. Sótt 26. febrúar 2025 af https://fastinn.is/soluskra/1401617#images.

Saga:

Í húsakönnun sem gerð var á skólasvæðinu á Húsavík árið 2023 segir m.a. um húsið sem nú stendur við Stóragarð 6 á Húsavík:

Gamli Skóli var byggður árið 1908, einu ári eftir að byggingu Húsavíkurkirkju lauk en það ár höfðu ný fræðslög verið sett á þar sem lögleidd var skólaskylda allra 10-14 ára barna og var bygging skólans viðbrögð við þeim. Húsið var byggt á Borgarhóli, þar sem núverandi barnaskóli er staðsettur. Páll Kristjánsson teiknaði og smíðaði húsið. Byggingin var fjármögnuð með lánum og svo styrk frá Ríkissjóði. Í heildina var kostnaður við bygginguna 10.080 krónur. Húsið var tveggja hæða timburhús með risi og kjallara. Þó nokkrar breytingar voru gerðar á húsinu í gegnum árin, leysa þurfti vandamál með upphitun sem höfðu mikil áhrif á skólastarfsemina fyrstu árin. Til dæmis var slæmt inniloft í kjallaranum þar sem anddyri hans var notað sem kolageymsla, en leikfimikennsla fór fram í kjallarnanum. Aðrar breytingar voru að vatn var lagt inn í húsið og salerni sett upp. Einnig var kvisti bætt við húsið 1927 þegar íbúð var útbúin fyrir Benedikt Björnsson þáverandi skjólastjóra. Húsið var nýtt undir allskyns starfsemi á vegum hreppsins. Skólastofurnar voru á tveim efstu hæðunum og kjallarinn notaður sem fundarstaður og samkomusalur. Í kríngum aldamót 20.aldar var skólahúsið orðið alltof lítið og byrjað var að undirbúa drög að nýjum barnaskóla. Þegar skólastarfsemin var flutt í nýju skólabygginguna árið 1960 var eldra húsið flutt í heilu lagi að Stóragarði 6, við hlið Garðarshólma. Húsið er í dag í einkaeigu og notað sem íbúðarhús.1Arnhildur Pálmadóttir (2023). Húsakönnun. Skólasvæðið á Húsavík, bls. 23.

Húsið var í eigu Húsavíkurkaupstaðar til vorsins 2005 þegar einkaaðilar keyptu húsið. Þá var húsið í slæmu ástandi en nýju eigendurnir hafa gert það upp svo sómi er að.2Gögn um Stóragarð 6, Húsavík, í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. febrúar, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. febrúar, 2025