Kirkjuvegur 39, Keflavík, Reykjanesbæ
Suðurgata 8, Keflavík, hífð af grunni sínum. Ljósm.: Árni Árnason. Sótt 22. mars 2025 af Keflavík og Keflvíkingar.
Suðurgata 8 komin út á götu. Ljósm.: Friðrik Friðriksson. Sótt 22. mars 2025 af Keflavík og Keflvíkingar.
Suðurgata 8 komin út á götu. Ljósm.: Friðrik Friðriksson. Sótt 22. mars 2025 af Keflavík og Keflvíkingar.
Kirkjuvegur 39, Keflavík, í júlí 2024. Ljósm.: https://www.google.com/maps.
Saga:
Árið 1930 var gert fasteignamat á húsi Þorsteins Árnasonar við Suðurgötu í Keflavík. Þá var húsið sagt númer 6, en síðar fékk það húsnúmerið 8. Í matinu koma eftirfarandi upplýsingar fram um húsið: Húsið var byggt á árnum 1929 til 1930 úr timbri, með steinsteyptu gólfi og bárujárni á útveggjum. Grunnflötur hússins var tæpur 68 fermetrar og í því voru tvær íbúðir. Uppi voru tvö herbergi og eldhús og niðri voru 5 herbergi og eldhús. Kjallari var undir húsinu, sem var jafn stór og húsið. Þar var ekki íbúð. Húsið var hlýtt og rakalaust með miðstöðvarhitun og tveimur eldavélum. Raflýsing var í húsinu.1Gögn úr skjalasafni Reykjanesbæjar.
Þorsteinn Árnason (1885-1969) kvæntist Guðnýju Helgu Vigfúsdóttur (1882-1943) árið 1908. Þau hófu búskap að Gerðum í Garði hjá foreldrum Þorsteins, en árið 1928 fluttu þau til Keflavíkur þar sem þau byggðu sér hús á Suðurgötu 8 þar sem Þorsteinn bjó síðan alla tíð. Þorsteinn stundaði sjómennsku framan af ævi á milli þess sem hann stundaði smíðar. Eftir að hann flutti til Keflavíkur stundaði hann eingöngu smíðar og byggði mörg hús í Keflavík. Einnig rak hann um langt skeið trésmíðaverkstæði í félagi við tengdason sinn. Árið 1943 lést Guðný Helga. Þau eignuðust 10 börn. Hún tók mikinn þátt í félagsstörfum og var m.a. formaður slysavarnadeildar í Keflavík um árabil. Árið 1950 kvæntist Þorsteinn Ingveldi S. Pálsdóttur (1911-1987) og eignaðist með henni tvö börn.2Þorsteinn Árnason – Minningarorð (1969, 1. febrúar). Morgunblaðið, 56. árg., 26. tbl., bls. 14.
Þegar fyrir lá að húsið þurfti að víkja vegna viðbyggingar við hús Sparisjóðsins í Keflavík hafði sparisjóðurinn eignast húsið. Sjóðurinn bauð björgunarsveitinni Stakk húsið til eignar með því skilyrði að sveitin fjarlægði húsið af lóðinni. Stakkfélagar gripu tækifæri og fluttu húsið að Kirkjuvegi 39 þar sem húsið stendur enn. Allt verkið var unnið af sjálfboðaliðum úr Stakki með aðstoð velunnara sveitarinnar.3Garðar Sigurðsson (2021, 18. mars). Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 18. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/59627962212/search?q=su%C3%B0urgata.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Gögn úr skjalasafni Reykjanesbæjar.
- 2Þorsteinn Árnason – Minningarorð (1969, 1. febrúar). Morgunblaðið, 56. árg., 26. tbl., bls. 14.
- 3Garðar Sigurðsson (2021, 18. mars). Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 18. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/59627962212/search?q=su%C3%B0urgata.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025



