Sólheimatunga er fremst á myndinni. Ljósm.: Hermann Schlenker. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. HSC 001 052 4-1. Sótt 8. mars 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn.
Sólheimatunga er fremst á myndinni. Ljósm.: Hermann Schlenker. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. HSC 001 052 4-1. Sótt 8. mars 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn.

Íshússtígur 9, Keflavík, Reykjanesbæ

Heiti: Sólheimatunga
Byggingarár: 1930
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Júlíus Jónsson og Magnea Vilborg Guðjónsdóttir / Valgerður Júlíusdóttir
Aðrir eigendur:
1982: Gísli Sigurðsson og Indriði Adólfsson
Upphafleg staðsetning: Laugamýrarblettur 25 - nú á lóð Laugarásvegar 28, Reykjavík
Fyrst flutt: 1971-1974 að Réttarvegi 9, Höfnum, Reykjanesbæ
Aftur flutt:
1992 að Íshússtíg 9 (áður Vallargötu 29), Keflavík, Reykjanesbæ
Íshússtígur 9 2

Hús Júlíusar Jónssonar Laugamýrabletti 25, dags. í desember 1930. Sótt 7. mars 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives.

20250813_125923

Íshússtígur 9 í Keflavík í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Í ágúst 1930 var virt hús í Reykjavík sem kallað var Sólheimatunga við Laugarásveg, en taldist áður til Laugamýrarbletts 25. Húsið stóð þar sem húsið Laugarásvegur 28 var byggt árið 1974. Þegar húsið var virt var Valgerður Júlíusdóttir (1925-2009) sagður eigandi þess en á teikningu af húsinu er faðir hennar Júlíus Jónsson (1892-1964) skósmíðameistari sagður eigandi hússins. Eiginkona hans var Magnea Vilborg Guðjónsdóttir (1903-1960). Valgerður var elsta barn þeirra hjóna. Af ástæðum sem ekki eru þekktar var hún skrifuð eigandi hússins þegar brunabótamatið var gert.1Drífa Kristín Þrastardóttir, verkefnastjóri Borgarsögusafni (2022, 7. júní). Tölvupóstur; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-07-1930 til 21-07-1933. Aðfnr. 745. Brunav.nr.: 2716; Guðni Kjartansson (2022, 2. júní). Facebook-hópurinn. Keflavík og Keflvíkingar; Minningar: Selma Júlíusdóttir (2014, 7. febrúar). Morgunblaðið, 102. árg., 32. tbl., bls. 26; Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Laugamýrarblettur 25. Sótt 7. mars 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives.

Í brunavirðingunni er húsið sagt nýtt íbúðarhús, einlyft með risi, byggt úr bindingi og klætt utan borðum, pappa, listum og járni á veggjum og þaki. Á aðalhæð hússins voru þrjú íbúðarherbergi, eldhús og gangur. Pappi var í binding útveggjanna og þiljur þar innan á. Skilveggir voru einnig úr binding með tvöföldum þiljum og þiljað var neðan á loftbita. Allt var lagt strig og vélapappir og ýmis veggfóðrað eða málað. Á þakbitum var gólf og þar uppi var afþiljað herbergi. Ein eldavél var í húsinu. Grunnflötur hússins var rétt tæpir 47 fermetrar.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-07-1930 til 21-07-1933. Aðfnr. 745. Brunav.nr.: 2716

Þegar til stóð að byggja ný hús við Laugarásveg í Reykjavík í upphafi áttunda áratugs síðustu aldar var Sólheimatunga fyrir og var húsið þá flutt inn í Hafnar á Reykjanesi og sett þar sem nú er húsið Réttarvegur 9 í Höfnum. Þar voru settir tveir stórir kvistir á húsið.3Facebook-hópurinn. Keflavík og Keflvíkingar; Margrét Lilja Margeirsdóttir (2019, júní). Hafnir á Suðurnesjum. Skipulagstillaga, bls. 43. MS-ritgerð. Auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands.

Árið 1992 var húsið svo aftur flutt og nú á nýjan grunn sem gerður hafði verið fyrir húsið á lóðinni sem nú er Íshússtígur 9 í Keflavík, en var áður skráð sem Vallargata 29. Það voru þeir Indriði Adólfsson (1940-2009) og Gísli Sigurðsson (f. 1958) sem gerðu lóðarleigusamning um lóðina Vallargötu 29 við bæjarstjórann í Keflavík í maí 1992.4Gögn í skjalasafni Reykjanesbæjar.

Þess má geta að á lóðinni við Íshússtíg 9 stóð áður hús sem brann árið 1964, og kemur við sögu hér, og þar áður var þar svonefndur Önnubær.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025