Suðurbraut 19, Páluhús, Hofsósi
Páluhús, Suðurbraut 19, Hofsósi árið 1996. Heimild: Páluhús. Þar sem þetta allt byrjaði ... Sótt 2. september 2024 af https://paluhus.skagafjordur.is/?page_id=55.
Páluhús, Suðurbraut 19, Hofsósi. Eigandi ljósmyndar: Þorsteinn Þorsteinsson.
Saga:
Bær við Höfðavatn á Höfðaströnd hefur verið stórbýli og höfuðból að fornu og nýju, þar sem stundaður hefur verið margvíslegur búskapur, fjárrækt, mjólkurframleiðsla, sjávarútvegur, æðarvarp, silungsveiði í Höfðavatni, hrossarækt og nú síðustu ár hefur verið þar listasetur.
Árið 1900 tók Jón Konráðsson (1876-1957) við búi í Bæ af föður sínum og stóð þar m.a. að útgerð. Sama ár flutti Stefán Jóhannsson (1874-1939) þangað, en þeir gerðu m.a. út vélbátinn Val, sem Stefán var formaður á.1Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014). Byggðasaga Skagafjarðar. VII. bindi. Hofshreppur, bls. 381-401. Ritstjóri og aðalhöfundur: Hjalti Pálsson frá Hofi. Sauðárkróki. Sögufélag Skagfirðinga; Björn í Bæ (1977, 1. október). Jóhannes Stefánsson – minning. Morgunblaðið, 64. árg., 217. tbl., bls. 34; Jóhannes Sigurðsson (1970). Horft til baka. Menn og umhverfi, bls. 200-201. Skagfirðingabók, 5. árg., 1. tbl., 190-204.
Árið 1913 reistu þau hjón Stefán og Hólmfríður Þorsteinsdóttir (1869-1949) kona hans sér íbúðarhús í Bæ, sem nefnt var Stefánshús. Um það hús má lesa í annarri grein á þessum vef.
Á árunum 1929-1930 byggðu synir Stefáns, þeir Þorsteinn (1903-1970) og Jóhannes (1901-1977) sér stórt íbúðarhús í Bæ, sem ætíð var nefnt Bræðrahús. Segja má að húsið hafi verið parhús. Það hús stóð „… nákvæmlega á þeim stað þar sem núverandi [2014] íbúðarhús stendur, byggt á grunni Bræðrahússins, en stærra. Húsið var smíðað úr timbri á góðum, steinhlöðnum kjallara og hátt ris yfir með herbergjum. Húsinu var skipt í miðju í tvær íbúðir með sérinngangi, forstofu í hvorum enda og hringstiga úr forstofunni upp á loftið. Á íbúðarhæðinni var í hvorum helmingi „stór stofa, svenherbergi og eldhús, allt dúklagt, vaskabetrekk á veggjum og hið viðfelldnasta á alla hátt.“ Þeir bræður fluttu í húsið 23. desember 1930 og sama dag gifti Jóhannes sig.“2Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014), bls. 385
Jóhannes kvæntist Kristínu Sigurgeirsdóttur (1907-2000) en eiginkona Þorsteins var Lára Árnadóttir (1904-1983). Þeir bræður báðir fluttu með fjölskyldur sínar í Hofsós árið 1945. Þar var Þorsteinn lengi fiskimatsmaður, en árið 1947 flutti Jóhannes til Siglufjarðar þar sem hann átti heima til æviloka.3Björn í Bæ (1977, 1. október); Fallnir félagar (1976, 1. september). Glóðafeykir, 15. árg., 17. hefti, bls. 52.
Þegar þeir bræður fluttu til Hofsóss seldu þeir húsið …
Þorsteini Hjálmarssyni [1913-1981)] á Hofsósi sem tók það í sundur og endurbyggði í Hofsósi, nokkuð breytt í útliti og innréttingu. Þar bjuggu síðan lengi Þorsteinn og Pála Pálsdóttir (1912-1993) kona hans, fluttust inn í húsið 3. september 1945 og bjuggu þar síðan með stóran barnahóp. Húsið var nefnt Ægissíða en gekk jafnan undir nafninu Páluhús og stendur enn við Suðurbraut 19 á Hofsósi.4Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014), bls. 385
Í minningarorðum um Þorstein segir m.a.:
Hann lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1932, og kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands lauk hann vorið 1940. Þorsteinn átti heima á Langeyri í Álftafirði til ársins 1940. Hann var kennari í Grunnavíkurhreppi árin 1936 – 1938. Til Hofsóss fluttist hann árið 1940 og átti þar heima til hinsta dags. Þorsteinn var starfsmaður Kaupfélags Austur-Skagfirðinga í Hofsósi árin 1940 – 1946. Hann varð stöðvarstjóri pósts og síma árið 1946 og hafði þá stöðu á hendi æ síðan. Hann átti sæti í stjórn Kaupfélags Austur-Skagfirðinga frá 1953, uns það félag var sameinað Kaupfélagi Skagfirðinga 1969. Hann átti sæti í stjórn Kaupfélags Skagfirðinga frá 1970. Hann var endurskoðandi Kaupfélags Austur-Skagfírðinga 1950 – 1953. Formaður var hann í stjórn Sjúkrasamlags Hofsóss frá stofnun þess 1948. Hann átti sæti í stjórn Sparisjóðs Hofsóshrepps 1946 – 1948. í skólanefnd var hann frá 1944. Hann var formaður Leikfélags Hofsóss frá stofnun þess 1951. Hann var kjörinn í stjórn Sjúkrahúss Skagfirðinga 1970 og sat í henni til dauðadags. Hann átti sæti í sýslunefnd Skagafjarðarsýslu sem aðalmaður fyrir Hofsóshrepp.5Jóhann Salberg Guðmundsson (1984, 1. apríl). Minning. Þorsteinn Hjálmarsson póst- og símstöðvarstjóri í Hofsósi. Glóðafeykir, 19. árg., 21. hefti, bls. 22-23.
Pála útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands 1933. Að námi loknu varð hún kennari, og skólastjóri um tíma, við Barnaskóla Súðavíkur. Þar kenndi hún til vors 1939, að undanskildu árinu 1935, en þá sótti hún kennaranámskeið við lýðháskólann í Askov í Danmörku og í Vadstena í Svíþjóð. Vorið 1939 var hún skipuð kennari við barnaskólann á Hofsósi og gegndi því starfi til 1975, síðar stundakennari til 1977. 11 ára gömul byrjaði hún að læra á orgel og var organisti við Hofskirkju og síðar Fellskirkju frá 1939-1960, einnig í Hofsóskirkju 1960-1972. Hún var frumkvöðull að stofnun Kvenfélagsins Öldunnar í Hofsósi árið 1951 og formaður þess til 1965 og síðan aftur frá 1975. Hún vann einnig töluvert fyrir Samband skagfirskra kvenna.
Hún [var] sæmd hinni íslensku fálkaorðu árið 1983, sérstaklega fyrir framlag sitt til tónlistar og söngmenntunar.6Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Skjalaskrá. Sótt 2. september 2024 af https://atom.skagafjordur.is/index.php/pala-palsdottir-1912-1993;isaar?sf_culture=is.
Þau Þorsteinn og Pála eignuðust níu börn Nú eiga börn þeirra húsið og sýna því mikinn sóma með góðu viðhaldi og enn ber húsið svipmót hins virðulega Bræðrahúss.
Leitarorð: Skagafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 9. september, 2024
Heimildaskrá
- 1Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014). Byggðasaga Skagafjarðar. VII. bindi. Hofshreppur, bls. 381-401. Ritstjóri og aðalhöfundur: Hjalti Pálsson frá Hofi. Sauðárkróki. Sögufélag Skagfirðinga; Björn í Bæ (1977, 1. október). Jóhannes Stefánsson – minning. Morgunblaðið, 64. árg., 217. tbl., bls. 34; Jóhannes Sigurðsson (1970). Horft til baka. Menn og umhverfi, bls. 200-201. Skagfirðingabók, 5. árg., 1. tbl., 190-204.
- 2Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014), bls. 385
- 3Björn í Bæ (1977, 1. október); Fallnir félagar (1976, 1. september). Glóðafeykir, 15. árg., 17. hefti, bls. 52.
- 4Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason og Kári Gunnarsson (2014), bls. 385
- 5Jóhann Salberg Guðmundsson (1984, 1. apríl). Minning. Þorsteinn Hjálmarsson póst- og símstöðvarstjóri í Hofsósi. Glóðafeykir, 19. árg., 21. hefti, bls. 22-23.
- 6Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Skjalaskrá. Sótt 2. september 2024 af https://atom.skagafjordur.is/index.php/pala-palsdottir-1912-1993;isaar?sf_culture=is.
Deila færslu
Síðast uppfært 9. september, 2024

