Kirkjuvegur 12a, Vestmannaeyjum
Kirkjuvegur 12a í Vestmannaeyjum í júní 2010. Ljósm.: Höfundur.
Kirkjuvegur 12a í Vestmannaeyjum í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.
Saga:
Á vefnum Heimaslóð er uppruni hússins sem nú er númer 12a við Kirkjuveg í Vestmannaeyjum rakinn til ársins 1906. Þegar hið reisulega hús Jómsborg var byggt árið 1912 við Víðisveg 9 varð húsið syðsti hluti Jómsborgar, eins konar viðbygging við það. Árið 1926 var húsið flutt á Kirkjuveg austanverðan. Þar stóð það við hlið hússins Rafnseyri (sjá hér), en bæði þessi hús þurfti að færa til þegar legu Kirkjuvegar var breytt árið 1934. Rafnseyri var flutt á Faxastíg en þetta hús yfir götuna. Þá hefur húsið sennilega runnið saman við tómthús sem þar stóð fyrir og nefndist Gata, þar sem hreppurinn hafði áður fyrr „geymt“ þurfalinga sína.
Í húsinu var fyrst rekin skóbúð, en í október árið 1926 opnaði Þorsteinn Johnson (1884-1959) þar bókabúð. Óskar Þorsteinsson (1915-1999), sonur Þorsteins, tók síðan við bókabúðinni og rak hana fram að gosi. Eftir gos hefur margvísleg starfsemi verið í húsinu, m.a. reiðhjólaverkstæði, trésmíðaverkstæði og Gallerý Prýði.1Heimaslóð (2013, 22. janúar). Byggðin undir hrauninu. Jómsborg. Sótt 5. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/J%C3%B3msborg; Heimaslóð (2013, 22. janúar). Húsin á Heimaey. Bókabúðin. Sótt 5. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/B%C3%B3kab%C3%BA%C3%B0in; Arnar Sigurmundsson (2010, 22. júní). Tölvupóstur.
Leitarorð: Vestmannaeyjar
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. júlí, 2024
Heimildaskrá
- 1Heimaslóð (2013, 22. janúar). Byggðin undir hrauninu. Jómsborg. Sótt 5. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/J%C3%B3msborg; Heimaslóð (2013, 22. janúar). Húsin á Heimaey. Bókabúðin. Sótt 5. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/B%C3%B3kab%C3%BA%C3%B0in; Arnar Sigurmundsson (2010, 22. júní). Tölvupóstur.
Deila færslu
Síðast uppfært 5. júlí, 2024


